Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 27

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    27:1 Og Job hélt áfram að flytja ræðu sína og mælti:

    27:2 Svo sannarlega sem Guð lifir, sá er svipt hefir mig rétti mínum, og hinn Almáttki, er hryggt hefir sálu mína:

    27:3 meðan lífsönd er í mér og andi Guðs í nösum mínum,

    27:4 skulu varir mínar ekki tala ranglæti og tunga mín ekki mæla svik.

    27:5 Fjarri sé mér að játa, að þér hafið rétt að mæla. Þar til er ég gef upp andann, læt ég ekki taka frá mér sakleysi mitt.

    27:6 Ég held fast í réttlæti mitt og sleppi því ekki, hjarta mitt átelur mig ekki fyrir neinn daga minna.

    27:7 Fyrir óvini mínum fari eins og hinum óguðlega og fyrir mótstöðumanni mínum eins og hinum rangláta.

    27:8 Því að hvaða von hefir guðlaus maður, þegar skorið er á þráðinn, þá er Guð hrífur burt líf hans?

    27:9 Ætli Guð heyri óp hans, þá er neyð kemur yfir hann?

    27:10 Eða getur hann haft yndi af hinum Almáttka, hrópað til Guðs, hvenær sem vera skal?

    27:11 Ég vil fræða yður um hönd Guðs, eigi leyna því, er hinn Almáttki hefir í hyggju.

    27:12 Sjá, þér hafið allir séð það sjálfir, hví farið þér þá með slíka heimsku?

    27:13 Þetta er hlutskipti óguðlegs manns hjá Guði, arfleifð ofbeldismanns, sú er hann fær frá hinum Almáttka:

    27:14 Eignist hann mörg börn, þá er það handa sverðinu, og afkvæmi hans mettast eigi af brauði.

    27:15 Þeir af fólki hans er af komast, verða jarðaðir af drepsóttinni, og ekkjur þeirra halda engan harmagrát.

    27:16 Þegar hann hrúgar saman silfri eins og sandi og hleður saman klæðum sem leir,

    27:17 þá hleður hann þeim saman, en hinn réttláti klæðist þeim, og silfrinu deilir hinn saklausi.

    27:18 Hann hefir byggt hús sitt eins og köngulló og svo sem skála, er varðmaður reisir sér.

    27:19 Ríkur leggst hann til hvíldar _ hann gjörir það eigi oftar, hann lýkur upp augunum, og þá er allt farið.

    27:20 Skelfingar ná honum eins og vatnaflaumur, um nótt hrífur stormurinn hann burt.

    27:21 Austanvindurinn hefur hann á loft, svo að hann þýtur áfram, og feykir honum burt af stað hans.

    27:22 Vægðarlaust sendir hann skeyti sín á hann, fyrir hendi hans flýr hann í skyndi _

    27:23 þá skella menn saman lófum yfir honum og blístra hann burt frá bústað hans.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine