Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 28

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    28:1 Að sönnu á silfrið upptökustað og gullið, sem menn hreinsa, fundarstað.

    28:2 Járn er tekið úr jörðu, og steinn er bræddur að eiri.

    28:3 Maðurinn hefir gjört enda á myrkrinu, og til ystu takmarka rannsakar hann steinana, sem faldir eru í kolniðamyrkri.

    28:4 Hann brýtur námugöng fjarri þeim, sem í dagsbirtunni búa, gleymdur mannafótum, fjarlægur mönnum hangir hann, svífur hann.

    28:5 Upp úr jörðinni sprettur brauð, en niðri í henni er öllu umturnað eins og af eldi.

    28:6 Safírinn finnst í grjóti jarðarinnar, og gullkorn fær sá er grefur.

    28:7 Örninn þekkir eigi veginn þangað, og valsaugað sér hann ekki,

    28:8 hin drembnu rándýr ganga hann eigi, ekkert ljón fer hann.

    28:9 Á tinnusteinana leggur maðurinn hönd sína, umturnar fjöllunum frá rótum.

    28:10 Hann heggur göng í björgin, og auga hans sér alls konar dýrindi.

    28:11 Hann bindur fyrir vatnsæðarnar, til þess að þær tárist ekki, og leiðir leynda hluti fram í dagsbirtuna.

    28:12 En spekin, hvar er hana að finna, og hvar á viskan heima?

    28:13 Enginn maður þekkir veginn til hennar, og hana er ekki að finna á landi lifenda.

    28:14 Undirdjúpið segir: ,,Í mér er hún ekki!`` og hafið segir: ,,Ekki er hún hjá mér!``

    28:15 Hún fæst ekki fyrir skíragull, og ekki verður silfur reitt sem andvirði hennar.

    28:16 Eigi verður hún Ófírgulli goldin né dýrum sjóam- og safírsteinum.

    28:17 Gull og gler kemst ekki til jafns við hana, og hún fæst ekki í skiptum fyrir ker af skíragulli.

    28:18 Kóralla og krystalla er ekki að nefna, og að eiga spekina er meira um vert en perlur.

    28:19 Tópasar Blálands komast ekki til jafns við hana, hún verður ekki goldin með hreinasta gulli.

    28:20 Já spekin, hvaðan kemur hún, og hvar á viskan heima?

    28:21 Hún er falin augum allra þeirra er lifa, og fuglum loftsins er hún hulin.

    28:22 Undirdjúpin og dauðinn segja: ,,Með eyrum vorum höfum vér heyrt hennar getið.``

    28:23 Guð veit veginn til hennar, og hann þekkir heimkynni hennar.

    28:24 Því að hann sér til endimarka jarðar, lítur allt, sem undir himninum er.

    28:25 Þá er hann ákvað þunga vindarins og ákvarðaði takmörk vatnsins,

    28:26 þá er hann setti regninu lög og veg eldingunum,

    28:27 þá sá hann hana og kunngjörði hana, fékk henni stað og rannsakaði hana einnig.

    28:28 Og við manninn sagði hann: ,,Sjá, að óttast Drottin _ það er speki, og að forðast illt _ það er viska.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine