Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 29

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    29:1 Og Job hélt áfram að flytja ræðu sína og mælti:

    29:2 Ó að mér liði eins og forðum daga, eins og þá er Guð varðveitti mig,

    29:3 þá er lampi hans skein yfir höfði mér, og ég gekk við ljós hans í myrkrinu,

    29:4 eins og þá er ég var á sumri ævi minnar, þá er vinátta Guðs var yfir tjaldi mínu,

    29:5 þá er hinn Almáttki var enn með mér og börn mín hringinn í kringum mig,

    29:6 þá er ég óð í rjóma, og olífuolían rann í lækjum úr klettinum hjá mér,

    29:7 þá er ég gekk út í borgarhliðið, upp í borgina, bjó mér sæti á torginu.

    29:8 Þegar sveinarnir sáu mig, földu þeir sig, og öldungarnir risu úr sæti og stóðu.

    29:9 Höfðingjarnir hættu að tala og lögðu hönd á munn sér.

    29:10 Rödd tignarmannanna þagnaði, og tunga þeirra loddi við góminn.

    29:11 Því að ef eyra heyrði, taldi það mig sælan, og ef auga sá, bar það mér vitni.

    29:12 Því að ég bjargaði bágstöddum, sem hrópuðu á hjálp, og munaðarleysingjum, sem enga aðstoð áttu.

    29:13 Blessunarósk aumingjans kom yfir mig, og hjarta ekkjunnar fyllti ég fögnuði.

    29:14 Ég íklæddist réttlætinu, og það íklæddist mér, ráðvendni mín var mér sem skikkja og vefjarhöttur.

    29:15 Ég var auga hins blinda og fótur hins halta.

    29:16 Ég var faðir hinna snauðu, og málefni þess, sem ég eigi þekkti, rannsakaði ég.

    29:17 Ég braut jaxlana í hinum rangláta og reif bráðina úr tönnum hans.

    29:18 Þá hugsaði ég: ,,Í hreiðri mínu mun ég gefa upp andann og lifa langa ævi, eins og Fönix-fuglinn.

    29:19 Rót mín er opin fyrir vatninu, og döggin hefir náttstað á greinum mínum.

    29:20 Heiður minn er æ nýr hjá mér, og bogi minn yngist upp í hendi minni.``

    29:21 Þeir hlustuðu á mig og biðu og hlýddu þegjandi á tillögu mína.

    29:22 Þá er ég hafði talað, tóku þeir eigi aftur til máls, og ræða mín draup niður á þá.

    29:23 Þeir biðu mín eins og regns, og opnuðu munn sinn, eins og von væri á vorskúr.

    29:24 Ég brosti til þeirra, þegar þeim féllst hugur, og ljós auglitis míns gjörðu þeir aldrei dapurt.

    29:25 Fús lagði ég leið til þeirra og sat þar efstur, sat þar sem konungur umkringdur af hersveit sinni, eins og huggari harmþrunginna.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine