Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 30

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    30:1 En nú hlæja þeir að mér, sem yngri eru en ég, mundi ég þó ekki hafa virt feður þeirra þess að setja þá hjá fjárhundum mínum.

    30:2 Hvað hefði og kraftur handa þeirra stoðað mig, þar sem þeir aldrei verða fullþroska?

    30:3 Þeir eru örmagna af skorti og hungri, naga þurrt landið, sem í gær var auðn og eyðimörk.

    30:4 Þeir reyta hrímblöðku hjá runnunum, og gýfilrætur er fæða þeirra.

    30:5 Þeir eru flæmdir úr félagi manna, menn æpa að þeim eins og að þjóf,

    30:6 svo að þeir verða að hafast við í hræðilegum gjám, í jarðholum og berghellum.

    30:7 Milli runnanna rymja þeir, og undir netlunum safnast þeir saman,

    30:8 guðlaust og ærulaust kyn, útreknir úr landinu.

    30:9 Og nú er ég orðinn þeim að háðkvæði og orðinn umtalsefni þeirra.

    30:10 Þeir hafa andstyggð á mér, koma ekki nærri mér og hlífast jafnvel ekki við að hrækja framan í mig.

    30:11 Þar sem Guð hefir leyst streng sinn og beygt mig, þá sleppa þeir og beislinu fram af sér gagnvart mér.

    30:12 Mér til hægri handar vex hyski þeirra upp, fótum mínum hrinda þeir frá sér og leggja glötunarbrautir sínar gegn mér.

    30:13 Þeir hafa rifið upp stig minn, að falli mínu styðja þeir, sem engan hjálparmann eiga.

    30:14 Þeir koma sem inn um vítt múrskarð, velta sér áfram innan um rústir.

    30:15 Skelfingar hafa snúist móti mér, tign mín er ofsótt eins og af stormi, og gæfa mín er horfin eins og ský.

    30:16 Og nú rennur sála mín sundur í tárum, eymdardagar halda mér föstum.

    30:17 Nóttin nístir bein mín, svo að þau losna frá mér, og hinar nagandi kvalir mínar hvílast ekki.

    30:18 Fyrir mikilleik máttar hans er klæðnaður minn aflagaður, hann lykur fast um mig, eins og hálsmál kyrtils míns.

    30:19 Guð hefir kastað mér ofan í saurinn, svo að ég er orðinn eins og mold og aska.

    30:20 Ég hrópa til þín, en þú svarar ekki, ég stend þarna, en þú starir á mig.

    30:21 Þú ert orðinn grimmur við mig, með krafti handar þinnar ofsækir þú mig.

    30:22 Þú lyftir mér upp á vindinn, lætur mig þeytast áfram, og þú lætur mig farast í stormgný.

    30:23 Því að ég veit, að þú vilt leiða mig til Heljar, í samkomustað allra þeirra er lifa.

    30:24 En _ rétta menn ekki út höndina, þegar allt hrynur? eða hrópa menn ekki á hjálp, þegar þeir eru að farast?

    30:25 Eða grét ég ekki yfir þeim, sem átti illa daga, og hryggðist ekki sál mín vegna fátæklingsins?

    30:26 Já, ég bjóst við góðu, en þá kom illt, vænti ljóss, en þá kom myrkur.

    30:27 Það sýður í innýflum mínum án afláts, eymdardagar eru yfir mig komnir.

    30:28 Svartur geng ég um, þó ekki af sólarhita, ég stend upp, í söfnuðinum hrópa ég á hjálp.

    30:29 Ég er orðinn bróðir sjakalanna og félagi strútsfuglanna.

    30:30 Hörund mitt er orðið svart og flagnar af mér, og bein mín eru brunnin af hita.

    30:31 Og fyrir því varð gígja mín að gráti og hjarðpípa mín að harmakveini.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine