Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 31

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    31:1 Ég hafði gjört sáttmála við augu mín; hvernig hefði ég þá átt að líta til yngismeyjar?

    31:2 Og hvert væri þá hlutskiptið frá Guði hér að ofan og arfleifðin frá hinum Almáttka af hæðum?

    31:3 Er það ekki glötun fyrir glæpamanninn og ógæfa fyrir þá, er illt fremja?

    31:4 Sér hann ekki vegu mína, og telur hann ekki öll mín spor?

    31:5 Hafi ég gengið með lyginni og fótur minn hraðað sér til svika _

    31:6 vegi Guð mig á rétta vog, til þess að hann viðurkenni sakleysi mitt! _

    31:7 hafi spor mín vikið af leið, hjarta mitt farið eftir fýsn augna minna og flekkur loðað við hendur mínar,

    31:8 þá eti annar það, sem ég sái, og frjóangar mínir verði rifnir upp með rótum.

    31:9 Hafi hjarta mitt látið ginnast vegna einhverrar konu, og hafi ég staðið á hleri við dyr náunga míns,

    31:10 þá mali kona mín fyrir annan, og aðrir menn leggist með henni.

    31:11 Því að slíkt væri óhæfa og glæpur, sem dómurum ber að hegna fyrir,

    31:12 því að það væri eldur, sem eyðir ofan í undirdjúpin og hlyti að uppræta allar eigur mínar.

    31:13 Hafi ég lítilsvirt rétt þjóns míns eða þernu minnar, þá er þau áttu í deilu við mig,

    31:14 hvað ætti ég þá að gjöra, þegar Guð risi upp, og hverju svara honum, þegar hann rannsakaði?

    31:15 Hefir eigi sá er mig skóp, skapað þjón minn í móðurlífi, og hefir ekki hinn sami myndað okkur í móðurkviði?

    31:16 Hafi ég synjað fátækum bónar og látið augu ekkjunnar daprast,

    31:17 hafi ég etið bitann minn einn; og munaðarleysinginn ekkert fengið af honum _

    31:18 nei, frá barnæsku minni hefir hann vaxið upp hjá mér sem hjá föður og frá móðurlífi hefi ég leitt hann _

    31:19 hafi ég séð aumingja klæðlausan og snauðan mann ábreiðulausan,

    31:20 hafi lendar hans ekki blessað mig og hafi honum ekki hitnað við ullina af sauðum mínum;

    31:21 hafi ég reitt hnefann að munaðarleysingjanum, af því að ég sá mér liðsvon í borgarhliðinu,

    31:22 þá detti axlir mínar frá herðunum og handleggur minn brotni úr axlarliðnum.

    31:23 Því að glötunin frá Guði var mér skelfileg, og gegn hátign hans megna ég ekkert.

    31:24 Hafi ég gjört gullið að athvarfi mínu og nefnt skíragullið fulltrúa minn,

    31:25 hafi ég glaðst yfir því, að auður minn var mikill og að hönd mín aflaði svo ríkulega,

    31:26 hafi ég horft á sólina, hversu hún skein, og á tunglið, hversu dýrlega það óð áfram,

    31:27 og hafi hjarta mitt þá látið tælast í leynum, svo að ég bæri hönd að munni og kyssti hana,

    31:28 það hefði líka verið hegningarverð synd, því að þá hefði ég afneitað Guði á hæðum.

    31:29 Hafi ég glaðst yfir óförum fjandmanns míns og hlakkað yfir því, að ógæfa kom yfir hann _

    31:30 nei, aldrei hefi ég leyft munni mínum svo að syndga að ég með formælingum óskaði dauða hans.

    31:31 Hafa ekki heimilismenn mínir sagt: ,,Hvenær hefir nokkur farið ósaddur frá borði hans?``

    31:32 ég lét ekki aðkomumann nátta á bersvæði, heldur opnaði ég dyr mínar fyrir ferðamanninum.

    31:33 Hafi ég hulið yfirsjónir mínar, eins og menn gjöra, og falið misgjörð mína í brjósti mínu,

    31:34 af því að ég hræddist mannfjöldann, og af því að fyrirlitning ættanna fældi mig, svo að ég hafði hægt um mig og fór ekki út fyrir dyr,

    31:35 Ó að ég hefði þann, er hlusta vildi á mig! Hér er undirskrift mín _ hinn Almáttki svari mér! Sá sem mig ákærir, skrifi sitt ákæruskjal!

    31:36 Vissulega skyldi ég bera það á öxlinni, binda það sem höfuðsveig um ennið,

    31:37 ég skyldi segja Guði frá hverju spori mínu og ganga sem höfðingi fram fyrir hann! Hér enda ræður Jobs.

    31:38 hafi akurland mitt hrópað undan mér og öll plógför þess grátið,

    31:39 hafi ég etið gróður þess endurgjaldslaust og slökkt líf eiganda þess,

    31:40 þá spretti þyrnar upp í stað hveitis og illgresi í stað byggs.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine