Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 32

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    32:1 Og þessir þrír menn hættu að svara Job, því að hann þóttist vera réttlátur.

    32:2 Þá upptendraðist reiði Elíhú Barakelssonar Búsíta af Rams kynstofni. Upptendraðist reiði hans gegn Job, af því að hann taldi sig hafa á réttu að standa gagnvart Guði.

    32:3 Reiði hans upptendraðist og gegn vinum hans þremur, fyrir það að þeir fundu engin andsvör til þess að sanna Job, að hann hefði á röngu að standa.

    32:4 En Elíhú hafði beðið með að mæla til Jobs, því að hinir voru eldri en hann.

    32:5 En er Elíhú sá, að mennirnir þrír gátu engu svarað, upptendraðist reiði hans.

    32:6 Þá tók Elíhú Barakelsson Búsíti til máls og sagði: Ég er ungur að aldri, en þér eruð öldungar, þess vegna fyrirvarð ég mig og kom mér eigi að því að kunngjöra yður það, sem ég veit.

    32:7 Ég hugsaði: Aldurinn tali, og árafjöldinn kunngjöri speki!

    32:8 En _ það er andinn í manninum og andblástur hins Almáttka, sem gjörir þá vitra.

    32:9 Elstu mennirnir eru ekki ávallt vitrastir, og öldungarnir skynja eigi, hvað réttast er.

    32:10 Fyrir því segi ég: Hlýð á mig, nú ætla einnig ég að kunngjöra það, sem ég veit.

    32:11 Sjá, ég beið eftir ræðum yðar, hlustaði á röksemdir yðar, uns þér fynduð orðin, sem við ættu.

    32:12 Og að yður gaf ég gaum, en sjá, enginn sannfærði Job, enginn yðar hrakti orð hans.

    32:13 Segið ekki: ,,Vér höfum hitt fyrir speki, Guð einn fær sigrað hann, en enginn maður!``

    32:14 Gegn mér hefir hann ekki sett fram neinar sannanir, og með yðar orðum ætla ég ekki að svara honum.

    32:15 Þeir eru skelkaðir, svara eigi framar, þeir standa uppi orðlausir.

    32:16 Og ætti ég að bíða, þar sem þeir þegja, þar sem þeir standa og svara eigi framar?

    32:17 Ég vil og svara af minni hálfu, ég vil og kunngjöra það, sem ég veit.

    32:18 Því að ég er fullur af orðum, andinn í brjósti mínu knýr mig.

    32:19 Sjá, brjóst mitt er sem vín, er ekki fær útrás, ætlar að rifna, eins og nýfylltir belgir.

    32:20 Ég ætla að tala til þess að létta á mér, ætla að opna varir mínar og svara.

    32:21 Ég ætla ekki að draga taum neins, og ég ætla engan að skjalla.

    32:22 Því að ég kann ekki að skjalla, ella kynni skapari minn bráðlega að kippa mér burt.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine