Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 33

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    33:1 En heyr þú, Job, ræðu mína, og hlýð þú á öll orð mín.

    33:2 Sjá, ég opna munn minn, og tunga mín talar í gómi mínum.

    33:3 Orð mín eru hjartans hreinskilni, og það sem varir mínar vita, mæla þær í einlægni.

    33:4 Andi Guðs hefir skapað mig, og andblástur hins Almáttka gefur mér líf.

    33:5 Ef þú getur, þá svara þú mér, bú þig út í móti mér og gakk fram.

    33:6 Sjá, ég stend eins og þú gagnvart Guði, ég er og myndaður af leiri.

    33:7 Sjá, hræðsla við mig þarf eigi að skelfa þig og þungi minn eigi þrýsta þér niður.

    33:8 En þú hefir sagt í eyru mér, og ég heyrði hljóm orðanna:

    33:9 ,,Hreinn er ég, laus við afbrot, saklaus er ég, og hjá mér er engin misgjörð.

    33:10 En Guð reynir að finna tilefni til fjandskapar við mig og ætlar að ég sé óvinur hans.

    33:11 Hann setur fætur mína í stokk og aðgætir alla vegu mína.``

    33:12 Sjá, í þessu hefir þú rangt fyrir þér, svara ég þér, því að Guð er meiri en maður.

    33:13 Hví hefir þú þráttað við hann, að hann svaraði engu öllum orðum þínum?

    33:14 Því að vissulega talar Guð einu sinni, já, tvisvar, en menn gefa því ekki gaum.

    33:15 Í draumi, í nætursýn, þá er þungur svefnhöfgi er fallinn yfir mennina, í blundi á hvílubeði,

    33:16 opnar hann eyru mannanna og innsiglar viðvörunina til þeirra

    33:17 til þess að fá manninn til þess að láta af gjörðum sínum og forða manninum við drambsemi.

    33:18 Hann hlífir sálu hans við gröfinni og lífi hans frá því að farast fyrir skotvopni.

    33:19 Maðurinn er og agaður með kvölum á sæng sinni, og stríðið geisar stöðuglega í beinum hans.

    33:20 Þá vekur lífshvötin óbeit hjá honum á brauðinu og sál hans á uppáhaldsfæðunni.

    33:21 Hold hans eyðist og verður óásjálegt, og beinin, sem sáust ekki áður, verða ber,

    33:22 svo að sál hans nálgast gröfina og líf hans engla dauðans.

    33:23 En ef þar er hjá honum árnaðarengill, talsmaður, einn af þúsund til þess að boða manninum skyldu hans,

    33:24 og miskunni hann sig yfir hann og segi: ,,Endurleys hann og lát hann eigi stíga niður í gröfina, ég hefi fundið lausnargjaldið,``

    33:25 þá svellur hold hans af æskuþrótti, hann snýr aftur til æskudaga sinna.

    33:26 Hann biður til Guðs, og Guð miskunnar honum, lætur hann líta auglit sitt með fögnuði og veitir manninum aftur réttlæti hans.

    33:27 Hann syngur frammi fyrir mönnum og segir: ,,Ég hafði syndgað og gjört hið beina bogið, og þó var mér ekki goldið líku líkt.

    33:28 Guð hefir leyst sálu mína frá því að fara ofan í gröfina, og líf mitt gleður sig við ljósið.``

    33:29 Sjá, allt þetta gjörir Guð tvisvar eða þrisvar við manninn

    33:30 til þess að hrífa sál hans frá gröfinni, til þess að lífsins ljós megi leika um hann.

    33:31 Hlýð á, Job, heyr þú mig, ver þú hljóður og lát mig tala.

    33:32 Hafir þú eitthvað að segja, þá svara mér, tala þú, því að gjarnan vildi ég, að þú reyndist réttlátur.

    33:33 Ef svo er eigi þá heyr þú mig, ver hljóður, að ég megi kenna þér speki.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine