Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 34

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    34:1 Og Elíhú tók aftur til máls og sagði:

    34:2 Heyrið, þér vitrir menn, orð mín, og þér fróðir menn, hlustið á mig.

    34:3 Því að eyrað prófar orðin, eins og gómurinn smakkar matinn.

    34:4 Vér skulum rannsaka, hvað rétt er, komast að því hver með öðrum, hvað gott er.

    34:5 Því að Job hefir sagt: ,,Ég er saklaus, en Guð hefir svipt mig rétti mínum.

    34:6 Þótt ég hafi rétt fyrir mér, stend ég sem lygari, banvæn ör hefir hitt mig, þótt ég hafi í engu brotið.``

    34:7 Hvaða maður er eins og Job, sem drekkur guðlast eins og vatn

    34:8 og gefur sig í félagsskap við þá, sem illt fremja, og er í fylgi við óguðlega menn?

    34:9 Því að hann hefir sagt: ,,Maðurinn hefir ekkert gagn af því að vera í vinfengi við Guð.``

    34:10 Fyrir því, skynsamir menn, heyrið mig! Fjarri fer því, að Guð aðhafist illt og hinn Almáttki fremji ranglæti.

    34:11 Nei, hann geldur manninum verk hans og lætur manninum farnast eftir breytni hans.

    34:12 Já, vissulega fremur Guð ekki ranglæti, og hinn Almáttki hallar ekki réttinum.

    34:13 Hver hefir fengið honum jörðina til varðveislu, og hver hefir grundvallað allan heiminn?

    34:14 Ef hann hugsaði aðeins um sjálfan sig, ef hann drægi til sín anda sinn og andardrátt,

    34:15 þá mundi allt hold gefa upp andann og maðurinn aftur verða að dufti.

    34:16 Hafir þú vit, þá heyr þú þetta, hlusta þú á hljóm orða minna.

    34:17 Getur sá stjórnað, sem hatar réttinn? Eða vilt þú dæma hinn réttláta, volduga?

    34:18 þann sem segir við konunginn: ,,Þú varmenni!`` við tignarmanninn: ,,Þú níðingur!``

    34:19 sem ekki dregur taum höfðingjanna og gjörir ekki ríkum hærra undir höfði en fátækum, því að handaverk hans eru þeir allir.

    34:20 Skyndilega deyja þeir, og það um miðja nótt, fólkið verður skelkað, og þeir hverfa, og hinn sterki er hrifinn burt, en eigi af manns hendi.

    34:21 Því að augu Guðs hvíla yfir vegum hvers manns, og hann sér öll spor hans.

    34:22 Ekkert það myrkur er til eða sú niðdimma, að illgjörðamenn geti falið sig þar.

    34:23 Því að Guð þarf ekki fyrst að gefa manni gaum, til þess að hann komi fyrir dóm hans.

    34:24 Hann brýtur hina voldugu sundur rannsóknarlaust og setur aðra í þeirra stað.

    34:25 Þannig þekkir hann verk þeirra og steypir þeim um nótt, og þeir verða marðir sundur.

    34:26 Hann hirtir þá sem misgjörðamenn í augsýn allra manna,

    34:27 vegna þess að þeir hafa frá honum vikið og vanrækt alla vegu hans

    34:28 og látið kvein hins fátæka berast til hans, en hann heyrði kvein hinna voluðu.

    34:29 Haldi hann kyrru fyrir, hver vill þá sakfella hann? og byrgi hann auglitið, hver fær þá séð hann? Þó vakir hann yfir þjóð og einstaklingi,

    34:30 til þess að guðlausir menn skuli ekki drottna, til þess að þeir séu ekki snörur lýðsins.

    34:31 Því að segir nokkur við Guð: ,,Mér hefir verið hegnt og breyti þó ekki illa.

    34:32 Kenn þú mér það, sem ég sé ekki. Hafi ég framið ranglæti, skal ég eigi gjöra það framar``?

    34:33 Á hann að endurgjalda eftir geðþótta þínum, af því að þú hafnar? því að þú átt að velja, en ekki ég. Og seg nú fram það, er þú veist!

    34:34 Skynsamir menn munu segja við mig, og vitur maður, sem á mig hlýðir:

    34:35 ,,Job talar ekki hyggilega, og orð hans eru ekki skynsamleg.``

    34:36 Ó að Job mætti reyndur verða æ að nýju, af því að hann svarar eins og illir menn svara.

    34:37 Því að hann bætir misgjörð ofan á synd sína, hann klappar saman höndunum framan í oss og heldur langar ræður móti Guði.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine