Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 35

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    35:1 Og Elíhú tók enn til máls og sagði:

    35:2 Hyggur þú það vera rétt, kallar þú það ,,réttlæti mitt fyrir Guði,``

    35:3 að þú spyr, hvað það stoði þig? ,,Hvaða gagn hefi ég af því, fremur en ef ég syndgaði?``

    35:4 Ég ætla að veita þér andsvör í móti og vinum þínum með þér.

    35:5 Horf þú á himininn og sjá, virtu fyrir þér skýin, sem eru hátt yfir þér.

    35:6 Syndgir þú, hvað getur þú gjört honum? Og séu afbrot þín mörg, hvaða skaða gjörir þú honum?

    35:7 Sért þú ráðvandur, hvað gefur þú honum, eða hvað þiggur hann af þinni hendi?

    35:8 Mann, eins og þig, varðar misgjörð þín og mannsins barn ráðvendni þín.

    35:9 Menn æpa að sönnu undan hinni margvíslegu kúgan, kveina undan armlegg hinna voldugu,

    35:10 en enginn þeirra segir: ,,Hvar er Guð, skapari minn, sá er leiðir fram lofsöngva um nótt,

    35:11 sem fræðir oss meira en dýr merkurinnar og gjörir oss vitrari en fugla loftsins?``

    35:12 Þá æpa menn _ en hann svarar ekki _ undan drambsemi hinna vondu.

    35:13 Nei, hégómamál heyrir Guð eigi, og hinn Almáttki gefur því engan gaum,

    35:14 hvað þá, er þú segir, að þú sjáir hann ekki. Málið er lagt fram fyrir hann, og þú átt að bíða eftir honum.

    35:15 En nú, af því að reiði hans hefir eigi refsað, á hann alls eigi að hafa vitað neitt um yfirsjónina!

    35:16 En Job opnar munninn til að mæla hégóma, heldur langar ræður í vanhyggju sinni.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine