Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 36

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    36:1 Og Elíhú hélt áfram og sagði:

    36:2 Haf þolinmæði við mig enn stutta stund, að ég megi fræða þig, því að enn má margt segja Guði til varnar.

    36:3 Ég ætla að sækja þekking mína langar leiðir og sanna, að skapari minn hafi á réttu að standa.

    36:4 Því að vissulega fer ég eigi með ósannindi, maður með fullkominni þekking stendur frammi fyrir þér.

    36:5 Sjá, Guð er voldugur, þó fyrirlítur hann engan, voldugur að andans krafti.

    36:6 Hann viðheldur ekki lífi hins óguðlega, en veitir hinum voluðu rétt þeirra.

    36:7 Hann hefir ekki augun af hinum réttláta, og hjá konungum í hásætinu lætur hann þá sitja að eilífu, til þess að þeir séu hátt upp hafnir.

    36:8 Og þótt þeir verði viðjum reyrðir, veiddir í snörur eymdarinnar,

    36:9 og hann setur þeim fyrir sjónir gjörðir þeirra og afbrot þeirra að þeir breyttu drambsamlega,

    36:10 og hann opnar eyru þeirra fyrir umvönduninni og segir að þeir skuli snúa sér frá ranglæti, _

    36:11 ef þeir þá hlýða og þjóna honum, þá eyða þeir dögum sínum í velgengni og árum sínum í unaði.

    36:12 En hlýði þeir ekki, þá farast þeir fyrir skotvopnum, gefa upp andann í vanhyggju sinni.

    36:13 Því að vonskufullir í hjarta ala þeir með sér reiði, hrópa eigi á hjálp, þegar hann fjötrar þá.

    36:14 Önd þeirra deyr í æskublóma og líf þeirra eins og hórsveina.

    36:15 En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni.

    36:16 Einnig þig ginnir hann út úr gini neyðarinnar út á víðlendi, þar sem engin þrengsli eru, og það sem kemur á borð þitt, er fullt af feiti.

    36:17 En ef þú vinnur til dóms hins óguðlega, þá munu dómur og réttur hremma þig.

    36:18 Lát því eigi reiðina ginna þig til spotts, og lát eigi stærð lausnargjaldsins tæla þig.

    36:19 Mun hróp þitt koma þér úr nauðunum eða nokkur áreynsla krafta þinna?

    36:20 Þráðu eigi nóttina, þá er þjóðir sópast burt af stöðvum sínum.

    36:21 Gæt þín, snú þér eigi að ranglæti, því að það kýst þú heldur en að líða.

    36:22 Sjá, Guð er háleitur í framkvæmdum máttar síns, hver er slíkur kennari sem hann?

    36:23 Hver hefir fyrirskipað honum veg hans, og hver dirfist að segja: ,,Þú hefir gjört rangt``?

    36:24 Minnstu þess, að þú vegsamir verk hans, það er mennirnir syngja um lofkvæði.

    36:25 Allir menn horfa með fögnuði á það, dauðlegur maðurinn lítur það úr fjarska.

    36:26 Já, Guð er mikill og vér þekkjum hann ekki, tala ára hans órannsakanleg.

    36:27 Því að hann dregur upp vatnsdropana og lætur ýra úr þoku sinni,

    36:28 regnið, sem skýin láta niður streyma, drjúpa yfir marga menn.

    36:29 Og hver skilur útbreiðslu skýjanna og dunurnar í tjaldi hans?

    36:30 Sjá, hann breiðir ljós sitt út kringum sig og hylur djúp hafsins.

    36:31 Því að með því dæmir hann þjóðirnar, með því veitir hann fæðu í ríkum mæli.

    36:32 Hendur sínar hylur hann ljósi og býður því út gegn fjandmanni sínum.

    36:33 Þruma hans boðar komu hans, hans sem lætur reiði sína geisa gegn ranglætinu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine