Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 37

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    37:1 Já, yfir þessu titrar hjarta mitt og hrökkur upp úr stað sínum.

    37:2 Heyrið, heyrið drunur raddar hans og hvininn, sem út fer af munni hans.

    37:3 Undir öllum himninum lætur hann eldinguna þjóta og leiftur sitt út á jaðra jarðarinnar.

    37:4 Á eftir því kemur öskrandi skrugga, hann þrumar með sinni tignarlegu raust og heldur eldingunum ekki aftur, þá er raust hans lætur til sín heyra.

    37:5 Guð þrumar undursamlega með raust sinni, hann sem gjörir mikla hluti, er vér eigi skiljum.

    37:6 Því að hann segir við snjóinn: ,,Fall þú á jörðina,`` og eins við hellirigninguna og hennar dynjandi helliskúrir.

    37:7 Hann innsiglar hönd sérhvers manns, til þess að allir menn viðurkenni verk hans.

    37:8 Þá fara villidýrin í fylgsni sín og hvílast í bælum sínum.

    37:9 Stormurinn kemur úr forðabúrinu og kuldinn af norðanvindunum.

    37:10 Fyrir andgust Guðs verður ísinn til, og víð vötnin eru lögð í læðing.

    37:11 Hann hleður skýin vætu, tvístrar leifturskýi sínu víðsvegar.

    37:12 En það snýst í allar áttir, eftir því sem hann leiðir það, til þess að það framkvæmi allt það er hann býður því, á yfirborði allrar jarðarinnar.

    37:13 Hann lætur því ljósta niður, hvort sem það er til hirtingar eða til að vökva jörðina eða til að blessa hana.

    37:14 Hlýð þú á þetta, Job, stattu kyrr og gef gaum að dásemdum Guðs.

    37:15 Skilur þú, hvernig Guð felur þeim hlutverk þeirra og lætur leiftur skýja sinna skína?

    37:16 Skilur þú, hvernig skýin svífa, dásemdir hans, sem fullkominn er að vísdómi,

    37:17 þú, sem fötin hitna á, þá er jörðin mókir í sunnanmollu?

    37:18 Þenur þú út með honum heiðhimininn, sem fastur er eins og steyptur spegill?

    37:19 Kenn oss, hvað vér eigum að segja við hann! Vér megnum ekkert fram að færa fyrir myrkri.

    37:20 Á að segja honum, að ég ætli að tala? Eða hefir nokkur sagt, að hann óski að verða gjöreyddur?

    37:21 Og nú sjá menn að sönnu ekki ljósið, sem skín skært að skýjabaki, en vindurinn þýtur áfram og sópar skýjunum burt.

    37:22 Gullið kemur úr norðri, um Guð lykur ógurlegur ljómi.

    37:23 Vér náum eigi til hins Almáttka, til hans, sem er mikill að mætti. En réttinn og hið fulla réttlæti vanrækir hann ekki.

    37:24 Fyrir því óttast mennirnir hann, en hann lítur ekki við neinum sjálfbirgingum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine