Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 3

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    3:1 Loks lauk Job upp munni sínum og bölvaði fæðingardegi sínum.

    3:2 Hann tók til máls og sagði:

    3:3 Farist sá dagur, sem ég fæddist á, og nóttin, sem sagði: Sveinbarn er getið!

    3:4 Sá dagur verði að myrkri, Guð á hæðum spyrji ekki eftir honum, engin dagsbirta ljómi yfir honum.

    3:5 Myrkur og niðdimma heimti hann aftur, skýflókar leggist um hann, dagmyrkvar skelfi hann.

    3:6 Sú nótt _ myrkrið hremmi hana, hún gleðji sig eigi meðal ársins daga, hún komi eigi í tölu mánaðanna.

    3:7 Sjá, sú nótt verði ófrjó, ekkert fagnaðaróp heyrist á henni.

    3:8 Þeir sem bölva deginum, formæli henni, _ þeir sem leiknir eru í að egna Levjatan.

    3:9 Myrkvist stjörnur aftureldingar hennar, vænti hún ljóss, en það komi ekki, og brágeisla morgunroðans fái hún aldrei litið,

    3:10 af því að hún lokaði eigi fyrir mér dyrum móðurlífsins og byrgði ei ógæfuna fyrir augum mínum.

    3:11 Hví dó ég ekki í móðurkviði, _ andaðist jafnskjótt og ég var kominn af móðurlífi?

    3:12 Hvers vegna tóku kné á móti mér og hví voru brjóst til handa mér að sjúga?

    3:13 Því þá lægi ég nú og hvíldist, væri sofnaður og hefði frið

    3:14 hjá konungum og ráðherrum jarðarinnar, þeim er reistu sér hallir úr rústum,

    3:15 eða hjá höfðingjum, sem áttu gull, þeim er fylltu hús sín silfri.

    3:16 Eða ég væri ekki til eins og falinn ótímaburður, eins og börn, sem aldrei hafa séð ljósið.

    3:17 Í gröfinni hætta hinir óguðlegu hávaðanum, og þar hvílast hinir örmagna.

    3:18 Bandingjarnir hafa þar allir ró, heyra þar eigi köll verkstjórans.

    3:19 Smár og stór eru þar jafnir, og þrællinn er þar laus við húsbónda sinn.

    3:20 Hví gefur Guð ljós hinum þjáðu og líf hinum sorgbitnu?

    3:21 þeim sem þrá dauðann, en hann kemur ekki, sem grafa eftir honum ákafara en eftir fólgnum fjársjóðum,

    3:22 þeim sem mundu gleðjast svo, að þeir réðu sér ekki fyrir kæti, fagna, ef þeir fyndu gröfina;

    3:23 _ þeim manni, sem enga götu sér og Guð hefir girt inni?

    3:24 Því að andvörp eru orðin mitt daglegt brauð, og kvein mitt úthellist sem vatn.

    3:25 Því að óttaðist ég eitthvað, þá hitti það mig, og það sem ég hræddist, kom yfir mig.

    3:26 Ég mátti eigi næðis njóta, eigi friðar, eigi hvíldar, þá kom ný mæða.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine