Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 4

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    4:1 Þá svaraði Elífas frá Teman og mælti:

    4:2 Munt þú taka því illa, þótt maður dirfist að yrða á þig? Og þó, hver fær orða bundist?

    4:3 Sjá, þú hefir áminnt marga, og magnþrota hendur hefir þú styrkt.

    4:4 Þann sem hrasaði, reistu orð þín á fætur, og hnígandi hnén gjörðir þú stöðug.

    4:5 En nú, þegar það kemur yfir þig, gefst þú upp, þegar það nær þér sjálfum, missir þú móðinn.

    4:6 Er ekki guðhræðsla þín athvarf þitt og þitt grandvara líferni von þín?

    4:7 Hugsaðu þig um: Hver er sá, er farist hafi saklaus, og hvar hefir hinum réttvísu verið tortímt?

    4:8 Að því, er ég hefi séð: Þeir sem plægðu rangindi og sáðu óhamingju, þeir einir hafa uppskorið það.

    4:9 Fyrir andgusti Guðs fórust þeir, fyrir reiðiblæstri hans urðu þeir að engu.

    4:10 Öskur ljónsins og rödd óargadýrsins, _ tennur ljónshvolpanna eru brotnar sundur.

    4:11 Ljónið ferst, af því að það vantar bráð, og hvolpar ljónynjunnar tvístrast.

    4:12 En til mín laumaðist orð, og eyra mitt nam óminn af því _

    4:13 í heilabrotunum, sem nætursýnirnar valda, þá er þungur svefnhöfgi er fallinn yfir mennina.

    4:14 Ótti kom yfir mig og hræðsla, svo að öll bein mín nötruðu.

    4:15 Og vindgustur straukst fram hjá andliti mínu, hárin risu á líkama mínum.

    4:16 Þarna stóð það _ útlitið þekkti ég ekki _, einhver mynd fyrir augum mínum, ég heyrði ymjandi rödd:

    4:17 ,,Er maðurinn réttlátur fyrir Guði, nokkur mannkind hrein fyrir skapara sínum?

    4:18 Sjá, þjónum sínum treystir hann ekki, og hjá englum sínum finnur hann galla,

    4:19 hvað þá hjá þeim, sem búa í leirhúsum, þeim sem eiga rót sína að rekja til moldarinnar, sem marðir eru sundur sem mölur væri.

    4:20 Milli morguns og kvelds eru þeir molaðir sundur, án þess að menn gefi því gaum, tortímast þeir gjörsamlega.

    4:21 Tjaldstaginu er kippt upp, þeir deyja, og það í vanhyggju sinni.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine