Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 41

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    41:1 Getur þú veitt krókódílinn á öngul, getur þú heft tungu hans með snæri?

    41:2 Dregur þú seftaug gegnum nasir hans og rekur þú krók gegnum kjálka honum?

    41:3 Ætli hann beri fram fyrir þig margar auðmjúkar bænir eða mæli til þín blíðum orðum?

    41:4 Mun hann gjöra við þig sáttmála, svo að þú takir hann að ævinlegum þræli?

    41:5 Munt þú leika þér að honum eins og litlum fugli og getur þú bundið hann fastan fyrir smámeyjar þínar?

    41:6 Manga fiskveiðafélagar um hann, skipta þeir honum meðal kaupmanna?

    41:7 Getur þú fyllt húð hans broddum og haus hans skutlum?

    41:8 Legg hönd þína á hann _ hugsaðu þér, hvílík viðureign! Þú gjörir það ekki aftur.

    41:9 Já, von mannsins bregst, hann fellur þegar flatur fyrir sjóninni einni saman.

    41:10 Enginn er svo fífldjarfur, að hann þori að egna hann, _ og hver er þá sá, er þori að ganga fram fyrir mitt auglit?

    41:11 Hver hefir að fyrra bragði gefið mér, svo að ég ætti að endurgjalda? Allt sem undir himninum er, það er mitt!

    41:12 Ég vil ekki þegja um limu hans, né um styrkleik og fegurð vaxtar hans.

    41:13 Hver hefir flett upp skjaldkápu hans að framan, hver fer inn undir tvöfaldan tanngarð hans?

    41:14 Hver hefir opnað hliðin að gini hans? Ógn er kringum tennur hans.

    41:15 Tignarprýði eru skjaldaraðirnar, lokaðar með traustu innsigli.

    41:16 Hver skjöldurinn liggur fast að öðrum, ekkert loft kemst á milli þeirra.

    41:17 Þeir eru fastir hver við annan, eru svo samfelldir, að þeir verða eigi skildir sundur.

    41:18 Þegar hann hnerrar, standa ljósgeislar úr nösum hans, og augu hans eru sem brágeislar morgunroðans.

    41:19 Úr gini hans standa blys, eldneistar ganga fram úr honum.

    41:20 Úr nösum hans stendur eimur, eins og upp úr sjóðandi potti, sem kynt er undir með sefgrasi.

    41:21 Andi hans kveikir í kolum, og logi stendur úr gini hans.

    41:22 Kraftur situr á hálsi hans, og angist stökkur á undan honum.

    41:23 Vöðvar holds hans loða fastir við, eru steyptir á hann og hreyfast ekki.

    41:24 Hjarta hans er hart sem steinn, já, hart sem neðri kvarnarsteinn.

    41:25 Þegar hann stökkur upp, skelfast kapparnir, þeir verða ringlaðir af hræðslu.

    41:26 Ráðist einhver að honum með sverði, þá vinnur það eigi á, eigi heldur lensa, skotspjót eða ör.

    41:27 Hann metur járnið sem strá, eirinn sem maðksmoginn við.

    41:28 Eigi rekur örin hann á flótta, slöngusteinarnir verða hálmur fyrir honum.

    41:29 Kylfur metur hann sem hálmstrá, og að hvin spjótsins hlær hann.

    41:30 Neðan á honum eru oddhvöss brot, hann markar för í aurinn sem för eftir þreskisleða.

    41:31 Hann lætur vella í djúpinu sem í potti, gjörir hafið eins og smyrslaketil.

    41:32 Aftur undan honum er ljósrák, ætla mætti, að sjórinn væri silfurhærur.

    41:33 Enginn er hans maki á jörðu, hans sem skapaður er til þess að kunna ekki að hræðast.

    41:34 Hann lítur niður á allt hátt, hann er konungur yfir öllum drembnum dýrum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine