Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 40

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    40:1 Og Drottinn mælti til Jobs og sagði:

    40:2 Vill ámælismaðurinn þrátta við hinn Almáttka? Sá er sakir ber á Guð, svari hann þessu!

    40:3 Þá svaraði Job Drottni og sagði:

    40:4 Sjá, ég er of lítilmótlegur, hverju á ég að svara þér? Ég legg hönd mína á munninn.

    40:5 Einu sinni hefi ég talað, og endurtek það eigi, _ tvisvar, og gjöri það ekki oftar.

    40:6 Þá svaraði Drottinn Job úr stormviðrinu og sagði:

    40:7 Gyrð lendar þínar eins og maður. Ég mun spyrja þig, og þú skalt fræða mig.

    40:8 Ætlar þú jafnvel að gjöra rétt minn að engu, dæma mig sekan, til þess að þú standir réttlættur?

    40:9 Hefir þú þá armlegg eins og Guð, og getur þú þrumað með slíkri rödd sem hann?

    40:10 Skrýð þig vegsemd og tign, íklæð þig dýrð og ljóma!

    40:11 Lát úthellast strauma reiði þinnar og varpa til jarðar með einu tilliti sérhverjum dramblátum.

    40:12 Auðmýk þú sérhvern dramblátan með einu tilliti, og troð þú hina óguðlegu niður þar sem þeir standa.

    40:13 Byrg þú þá í moldu alla saman, loka andlit þeirra inni í myrkri,

    40:14 þá skal ég líka lofa þig, fyrir það að hægri hönd þín veitir þér fulltingi.

    40:15 Sjá, nykurinn sem ég hefi skapað eins og þig, hann etur gras eins og naut.

    40:16 Sjá, kraftur hans er í lendum hans og afl hans í kviðvöðvunum.

    40:17 Hann sperrir upp stertinn eins og sedrustré, lærsinar hans eru ofnar saman.

    40:18 Leggir hans eru eirpípur, beinin eins og járnstafur.

    40:19 Hann er frumgróði Guðs verka, sá er skóp hann, gaf honum sverð hans.

    40:20 Fjöllin láta honum grasbeit í té, og þar leika sér dýr merkurinnar.

    40:21 Hann liggur undir lótusrunnum í skjóli við reyr og sef.

    40:22 Lótusrunnarnir breiða skugga yfir hann, lækjarpílviðirnir lykja um hann.

    40:23 Sjá, þegar vöxtur kemur í ána, skelfist hann ekki, hann er óhultur, þótt fljót belji á skolti hans.

    40:24 Getur nokkur veitt hann með því að ganga framan að honum, getur nokkur dregið taug gegnum nasir hans?

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine