Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 8

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    8:1 Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:

    8:2 Hversu lengi ætlar þú slíkt að mæla og orðin í munni þínum að vera hvass vindur?

    8:3 Hallar þá Guð réttinum, eða hallar hinn Almáttki réttlætinu?

    8:4 Hafi börn þín syndgað móti honum, þá hefir hann selt þau misgjörð þeirra á vald.

    8:5 En ef þú leitar Guðs og biður hinn Almáttka miskunnar _

    8:6 ef þú ert hreinn og einlægur _ já, þá mun hann þegar vakna til að sinna þér og endurreisa bústað þíns réttlætis.

    8:7 Þá mun þinn fyrri hagur virðast lítilfjörlegur, en framtíðarhagur þinn vaxa stórum.

    8:8 Spyr þú hina fyrri kynslóð og gef þú gaum að reynslu feðranna.

    8:9 Vér erum síðan í gær og vitum ekkert, því að skuggi eru dagar vorir á jörðunni.

    8:10 En þeir munu fræða þig, segja þér það og bera fram orð úr sjóði hjarta síns:

    8:11 ,,Sprettur pappírssefið þar sem engin mýri er? vex störin nema í vatni?

    8:12 Enn stendur hún í blóma og verður eigi slegin, en hún skrælnar fyrr en nokkurt annað gras.``

    8:13 Svo fer fyrir hverjum þeim, sem gleymir Guði, og von hins guðlausa verður að engu.

    8:14 Athvarf hans brestur sundur, og köngullóarvefur er það, sem hann treystir.

    8:15 Hann styðst við hús sitt, en það stendur ekki, hann heldur sér fast í það, en það stenst ekki.

    8:16 Hann er safarík skríðandi flétta í sólskini, sem teygir jarðstöngla sína um garðinn

    8:17 og vefur rótum sínum um grjóthrúgur og læsir sig milli steinanna.

    8:18 En ef hann er upprættur frá stað sínum, þá afneitar staðurinn honum og segir: ,,Ég hefi aldrei séð þig!``

    8:19 Sjá, þetta er öll gleði hans, og aðrir spretta í staðinn upp úr moldinni.

    8:20 Sjá, Guð hafnar ekki hinum ráðvanda og heldur ekki í hönd illgjörðamanna.

    8:21 Enn mun hann fylla munn þinn hlátri og varir þínar fagnaðarópi.

    8:22 Þeir sem hata þig, munu skömminni klæðast, og tjald hinna óguðlegu mun horfið vera.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine