Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 7

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    7:1 Er ekki líf mannsins á jörðinni herþjónusta og dagar hans sem dagar daglaunamanns?

    7:2 Eins og þræll, sem þráir forsælu, og eins og daglaunamaður, sem bíður eftir kaupi sínu,

    7:3 svo hafa mér hlotnast mæðumánuðir og kvalanætur orðið hlutskipti mitt.

    7:4 Þegar ég leggst til hvíldar, hugsa ég: ,,Nær mun ég rísa á fætur?`` Og kveldið er langt, og ég fæ mig fullsaddan á að bylta mér uns aftur eldir.

    7:5 Líkami minn er þakinn ormum og moldarskánum, húð mín skorpnar og rifnar upp aftur.

    7:6 Dagar mínir eru hraðfleygari en vefjarskyttan, og þeir hverfa án vonar.

    7:7 Minnstu þess, Guð, að líf mitt er andgustur! Aldrei framar mun auga mitt gæfu líta.

    7:8 Það auga, sem nú sér mig, mun eigi líta mig framar, augu þín leita mín, en ég er horfinn.

    7:9 Eins og skýið eyðist og hverfur, svo kemur og sá eigi aftur, er niður stígur til Heljar.

    7:10 Hann hverfur aldrei aftur til húss síns, og heimili hans þekkir hann eigi framar.

    7:11 Ég ætla þá ekki heldur að hafa taum á tungu minni, ég ætla að tala í hugarangist minni, ég ætla að kveina í sálarkvöl minni.

    7:12 Er ég haf eða sjóskrímsl, svo að þú þurfir að setja vörð yfir mig?

    7:13 Þegar ég hugsa með sjálfum mér: ,,Rúmið mitt skal hugga mig, hvílan mín létta mér hörmung mína``

    7:14 þá hræðir þú mig með draumum og skelfir mig með sýnum,

    7:15 svo að ég kýs heldur að kafna, heldur að deyja en að vera slík beinagrind.

    7:16 Ég er leiður á þessu _ ekki lifi ég eilíflega _, slepptu mér, því að dagar mínir eru andartak.

    7:17 Hvað er maðurinn, að þú metir hann svo mikils og að þú snúir huga þínum til hans?

    7:18 að þú heimsækir hann á hverjum morgni og reynir hann á hverri stundu?

    7:19 Hvenær ætlar þú loks að líta af mér, loks að sleppa mér, meðan ég renni niður munnvatninu?

    7:20 Hafi ég syndgað _ hvað get ég gert þér, þú vörður manna? Hvers vegna hefir þú mig þér að skotspæni, svo að ég er sjálfum mér byrði?

    7:21 Og hví fyrirgefur þú mér eigi synd mína og nemur burt sekt mína? Því að nú leggst ég til hvíldar í moldu, og leitir þú mín, þá er ég eigi framar til.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine