Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOHN 1

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    1:1 Í upphafi var Orðið, og Orðið var hjá Guði, og Orðið var Guð.

    1:2 Hann var í upphafi hjá Guði.

    1:3 Allir hlutir urðu fyrir hann, án hans varð ekki neitt, sem til er.

    1:4 Í honum var líf, og lífið var ljós mannanna.

    1:5 Ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið tók ekki á móti því.

    1:6 Maður kom fram, sendur af Guði. Hann hét Jóhannes.

    1:7 Hann kom til vitnisburðar, til að vitna um ljósið, svo að allir skyldu trúa fyrir hann.

    1:8 Ekki var hann ljósið, hann kom til að vitna um ljósið.

    1:9 Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn.

    1:10 Hann var í heiminum, og heimurinn var orðinn til fyrir hann, en heimurinn þekkti hann ekki.

    1:11 Hann kom til eignar sinnar, en hans eigin menn tóku ekki við honum.

    1:12 En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, er trúa á nafn hans.

    1:13 Þeir eru ekki af blóði bornir, ekki að holds vild né manns vilja, heldur af Guði fæddir.

    1:14 Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika, og vér sáum dýrð hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðurnum.

    1:15 Jóhannes vitnar um hann og hrópar: ,,Þetta er sá sem ég átti við, þegar ég sagði: Sá sem kemur eftir mig, var á undan mér, enda fyrri en ég.``

    1:16 Af gnægð hans höfum vér allir þegið, náð á náð ofan.

    1:17 Lögmálið var gefið fyrir Móse, en náðin og sannleikurinn kom fyrir Jesú Krist.

    1:18 Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Sonurinn eini, Guð, sem er í faðmi föðurins, hann hefur birt hann.

    1:19 Þessi er vitnisburður Jóhannesar, þegar Gyðingar sendu til hans presta og levíta frá Jerúsalem að spyrja hann: ,,Hver ert þú?``

    1:20 Hann svaraði ótvírætt og játaði: ,,Ekki er ég Kristur.``

    1:21 Þeir spurðu hann: ,,Hvað þá? Ertu Elía?`` Hann svarar: ,,Ekki er ég hann.`` ,,Ertu spámaðurinn?`` Hann kvað nei við.

    1:22 Þá sögðu þeir við hann: ,,Hver ertu? Vér verðum að svara þeim, er sendu oss. Hvað segir þú um sjálfan þig?``

    1:23 Hann sagði: ,,Ég er rödd hrópanda í eyðimörk: Gjörið beinan veg Drottins, eins og Jesaja spámaður segir.``

    1:24 Sendir voru menn af flokki farísea.

    1:25 Þeir spurðu hann: ,,Hvers vegna skírir þú, fyrst þú ert hvorki Kristur, Elía né spámaðurinn?``

    1:26 Jóhannes svaraði: ,,Ég skíri með vatni. Mitt á meðal yðar stendur sá, sem þér þekkið ekki,

    1:27 hann, sem kemur eftir mig, og skóþveng hans er ég ekki verður að leysa.``

    1:28 Þetta bar við í Betaníu, handan Jórdanar, þar sem Jóhannes var að skíra.

    1:29 Daginn eftir sér hann Jesú koma til sín og segir: ,,Sjá, Guðs lamb, sem ber synd heimsins.

    1:30 Þar er sá er ég sagði um: ,Eftir mig kemur maður, sem var á undan mér, því hann er fyrri en ég.`

    1:31 Sjálfur þekkti ég hann ekki. En til þess kom ég og skíri með vatni, að hann opinberist Ísrael.``

    1:32 Og Jóhannes vitnaði: ,,Ég sá andann koma af himni ofan eins og dúfu, og hann nam staðar yfir honum.

    1:33 Sjálfur þekkti ég hann ekki, en sá er sendi mig að skíra með vatni, sagði mér: ,Sá sem þú sérð andann koma yfir og nema staðar á, hann er sá sem skírir með heilögum anda.`

    1:34 Þetta sá ég, og ég vitna, að hann er sonur Guðs.``

    1:35 Daginn eftir var Jóhannes þar aftur staddur og tveir lærisveinar hans.

    1:36 Hann sér Jesú á gangi og segir: ,,Sjá, Guðs lamb.``

    1:37 Lærisveinar hans tveir heyrðu orð hans og fóru á eftir Jesú.

    1:38 Jesús sneri sér við, sá þá koma á eftir sér og sagði við þá: ,,Hvers leitið þið?`` Þeir svara: ,,Rabbí (það þýðir meistari), hvar dvelst þú?``

    1:39 Hann segir: ,,Komið og sjáið.`` Þeir komu og sáu, hvar hann dvaldist, og voru hjá honum þann dag. Þetta var síðdegis.

    1:40 Annar þessara tveggja, sem heyrðu orð Jóhannesar og fóru á eftir Jesú, var Andrés, bróðir Símonar Péturs.

    1:41 Hann finnur fyrst bróður sinn, Símon, og segir við hann: ,,Við höfum fundið Messías!`` (Messías þýðir Kristur, Hinn smurði.)

    1:42 Hann fór með hann til Jesú. Jesús horfði á hann og sagði: ,,Þú ert Símon Jóhannesson, þú skalt heita Kefas`` (Pétur, það þýðir klettur).

    1:43 Næsta dag hugðist Jesús fara til Galíleu. Hann hitti þá Filippus og sagði við hann: ,,Fylg þú mér!``

    1:44 Filippus var frá Betsaídu, sömu borg og Andrés og Pétur.

    1:45 Filippus fann Natanael og sagði við hann: ,,Vér höfum fundið þann, sem Móse skrifar um í lögmálinu og spámennirnir, Jesú frá Nasaret, son Jósefs.``

    1:46 Natanael sagði: ,,Getur nokkuð gott komið frá Nasaret?`` Filippus svaraði: ,,Kom þú og sjá.``

    1:47 Jesús sá Natanael koma til sín og sagði við hann: ,,Hér er sannur Ísraelíti, sem engin svik eru í.``

    1:48 Natanael spyr: ,,Hvaðan þekkir þú mig?`` Jesús svarar: ,,Ég sá þig undir fíkjutrénu, áður en Filippus kallaði á þig.``

    1:49 Þá segir Natanael: ,,Rabbí, þú ert sonur Guðs, þú ert konungur Ísraels.``

    1:50 Jesús spyr hann: ,,Trúir þú, af því að ég sagði við þig: ,Ég sá þig undir fíkjutrénu`? Þú munt sjá það, sem þessu er meira.``

    1:51 Og hann segir við hann: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og stíga niður yfir Mannssoninn.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine