Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOHN 18

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    19:1 Þegar Jesús hafði þetta mælt, fór hann út með lærisveinum sínum og yfir um lækinn Kedron. Þar var grasgarður, sem Jesús gekk inn í og lærisveinar hans.

    19:2 Júdas, sem sveik hann, þekkti líka þennan stað, því Jesús og lærisveinar hans höfðu oft komið þar saman.

    19:3 Júdas tók með sér flokk hermanna og verði frá æðstu prestum og faríseum. Þeir koma þar með blysum, lömpum og vopnum.

    19:4 Jesús vissi allt, sem yfir hann mundi koma, gekk fram og sagði við þá: ,,Að hverjum leitið þér?``

    19:5 Þeir svöruðu honum: ,,Að Jesú frá Nasaret.`` Hann segir við þá: ,,Ég er hann.`` En Júdas, sem sveik hann, stóð líka hjá þeim.

    19:6 Þegar Jesús sagði við þá: ,,Ég er hann,`` hopuðu þeir á hæl og féllu til jarðar.

    19:7 Þá spurði hann þá aftur: ,,Að hverjum leitið þér?`` Þeir svöruðu: ,,Að Jesú frá Nasaret.``

    19:8 Jesús mælti: ,,Ég sagði yður, að ég væri hann. Ef þér leitið mín, þá lofið þessum að fara.``

    19:9 Þannig rættist orð hans, er hann hafði mælt: ,,Engum glataði ég af þeim, sem þú gafst mér.``

    19:10 Símon Pétur hafði sverð, brá því og hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað. Þjónninn hét Malkus.

    19:11 Þá sagði Jesús við Pétur: ,,Sting sverðinu í slíðrin. Á ég ekki að drekka kaleikinn, sem faðirinn hefur fengið mér?``

    19:12 Hermennirnir, foringinn og varðmenn Gyðinga tóku nú Jesú höndum og bundu hann

    19:13 og færðu hann fyrst til Annasar. Hann var tengdafaðir Kaífasar, sem var æðsti prestur það ár.

    19:14 En Kaífas var sá sem gefið hafði Gyðingum það ráð, að betra væri, að einn maður dæi fyrir lýðinn.

    19:15 Símon Pétur fylgdi Jesú og annar lærisveinn. Sá lærisveinn var kunnugur æðsta prestinum og fór með Jesú inn í hallargarð æðsta prestsins.

    19:16 En Pétur stóð utan dyra. Hinn lærisveinninn, sem var kunnugur æðsta prestinum, kom út aftur, talaði við þernuna, sem dyra gætti, og fór inn með Pétur.

    19:17 Þernan við dyrnar sagði þá við Pétur: ,,Ert þú ekki líka einn af lærisveinum þessa manns?`` Hann sagði: ,,Ekki er ég það.``

    19:18 Þjónarnir og varðmennirnir höfðu kveikt kolaeld, því kalt var, og stóðu við hann og vermdu sig. Pétur stóð hjá þeim og ornaði sér.

    19:19 Nú spurði æðsti presturinn Jesú um lærisveina hans og kenningu hans.

    19:20 Jesús svaraði honum: ,,Ég hef talað opinskátt í áheyrn heimsins. Ég hef ætíð kennt í samkundunni og í helgidóminum, þar sem allir Gyðingar safnast saman, en í leynum hef ég ekkert talað.

    19:21 Hví spyr þú mig? Spyrðu þá, sem heyrt hafa, hvað ég hef við þá talað. Þeir vita hvað ég hef sagt.``

    19:22 Þegar Jesús sagði þetta, rak einn varðmaður, sem þar stóð, honum löðrung og sagði: ,,Svarar þú æðsta prestinum svona?``

    19:23 Jesús svaraði honum: ,,Hafi ég illa mælt, þá sanna þú, að svo hafi verið, en hafi ég rétt að mæla, hví slær þú mig?``

    19:24 Þá sendi Annas hann bundinn til Kaífasar æðsta prests.

    19:25 En Símon Pétur stóð og vermdi sig. Hann var þá spurður: ,,Ert þú ekki líka einn af lærisveinum hans?`` Hann neitaði því og sagði: ,,Ekki er ég það.``

    19:26 Þá sagði einn af þjónum æðsta prestsins, frændi þess, sem Pétur sneið af eyrað: ,,Sá ég þig ekki í grasgarðinum með honum?``

    19:27 Aftur neitaði Pétur, og um leið gól hani.

    19:28 Nú var Jesús fluttur frá Kaífasi til hallar landshöfðingjans. Það var snemma morguns. Gyðingar fóru ekki sjálfir inn í höllina, svo að þeir saurguðust ekki, heldur mættu neyta páskamáltíðar.

    19:29 Pílatus kom út til þeirra og sagði: ,,Hvaða ákæru berið þér fram gegn þessum manni?``

    19:30 Þeir svöruðu: ,,Ef þetta væri ekki illvirki, hefðum vér ekki selt hann þér í hendur.``

    19:31 Pílatus segir við þá: ,,Takið þér hann, og dæmið hann eftir yðar lögum.`` Gyðingar svöruðu: ,,Oss leyfist ekki að taka neinn af lífi.``

    19:32 Þannig rættist orð Jesú, þegar hann gaf til kynna, með hvaða hætti hann átti að deyja.

    19:33 Pílatus gekk þá aftur inn í höllina, kallaði Jesú fyrir sig og sagði við hann: ,,Ert þú konungur Gyðinga?``

    19:34 Jesús svaraði: ,,Mælir þú þetta af sjálfum þér, eða hafa aðrir sagt þér frá mér?``

    19:35 Pílatus svaraði: ,,Er ég þá Gyðingur? Þjóð þín og æðstu prestarnir hafa selt þig mér í hendur. Hvað hefur þú gjört?``

    19:36 Jesús svaraði: ,,Mitt ríki er ekki af þessum heimi. Væri mitt ríki af þessum heimi, hefðu þjónar mínir barist, svo ég yrði ekki framseldur Gyðingum. En nú er ríki mitt ekki þaðan.``

    19:37 Þá segir Pílatus við hann: ,,Þú ert þá konungur?`` Jesús svaraði: ,,Rétt segir þú. Ég er konungur. Til þess er ég fæddur og til þess er ég kominn í heiminn, að ég beri sannleikanum vitni. Hver sem er af sannleikanum, heyrir mína rödd.``

    19:38 Pílatus segir við hann: ,,Hvað er sannleikur?`` Að svo mæltu gekk hann aftur út til Gyðinga og sagði við þá: ,,Ég finn enga sök hjá honum.

    19:39 Þér eruð vanir því, að ég gefi yður einn mann lausan á páskunum. Viljið þér nú, að ég gefi yður lausan konung Gyðinga?``

    19:40 Þeir hrópuðu á móti: ,,Ekki hann, heldur Barabbas.`` En Barabbas var ræningi.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine