Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOHN 19

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    20:1 Þá lét Pílatus taka Jesú og húðstrýkja hann.

    20:2 Hermennirnir fléttuðu kórónu úr þyrnum og settu á höfuð honum og lögðu yfir hann purpurakápu.

    20:3 Þeir gengu hver af öðrum fyrir hann og sögðu: ,,Sæll þú, konungur Gyðinga,`` og slógu hann í andlitið.

    20:4 Pílatus gekk aftur út fyrir og sagði við þá: ,,Nú leiði ég hann út til yðar, svo að þér skiljið, að ég finn enga sök hjá honum.``

    20:5 Jesús kom þá út fyrir með þyrnikórónuna og í purpurakápunni. Pílatus segir við þá: ,,Sjáið manninn!``

    20:6 Þegar æðstu prestarnir og verðirnir sáu hann, æptu þeir: ,,Krossfestu, krossfestu!`` Pílatus sagði við þá: ,,Takið þér hann og krossfestið. Ég finn enga sök hjá honum.``

    20:7 Gyðingar svöruðu: ,,Vér höfum lögmál, og samkvæmt lögmálinu á hann að deyja, því hann hefur gjört sjálfan sig að Guðs syni.``

    20:8 Þegar Pílatus heyrði þessi orð, varð hann enn hræddari.

    20:9 Hann fór aftur inn í höllina og segir við Jesú: ,,Hvaðan ertu?`` En Jesús veitti honum ekkert svar.

    20:10 Pílatus segir þá við hann: ,,Viltu ekki tala við mig? Veistu ekki, að ég hef vald til að láta þig lausan, og ég hef vald til að krossfesta þig?``

    20:11 Jesús svaraði: ,,Þú hefðir ekkert vald yfir mér, ef þér væri ekki gefið það að ofan. Fyrir því ber sá þyngri sök, sem hefur selt mig þér í hendur.``

    20:12 Eftir þetta reyndi Pílatus enn að láta hann lausan. En Gyðingar æptu: ,,Ef þú lætur hann lausan, ert þú ekki vinur keisarans. Hver sem gjörir sjálfan sig að konungi, rís á móti keisaranum.``

    20:13 Þegar Pílatus heyrði þessi orð, leiddi hann Jesú út og settist í dómstólinn á stað þeim, sem nefnist Steinhlað, á hebresku Gabbata.

    20:14 Þá var aðfangadagur páska, um hádegi. Hann sagði við Gyðinga: ,,Sjáið þar konung yðar!``

    20:15 Þá æptu þeir: ,,Burt með hann! Burt með hann! Krossfestu hann!`` Pílatus segir við þá: ,,Á ég að krossfesta konung yðar?`` Æðstu prestarnir svöruðu: ,,Vér höfum engan konung nema keisarann.``

    20:16 Þá seldi hann þeim hann í hendur, að hann yrði krossfestur. Þeir tóku þá við Jesú.

    20:17 Og hann bar kross sinn og fór út til staðar, sem nefnist Hauskúpa, á hebresku Golgata.

    20:18 Þar krossfestu þeir hann og með honum tvo aðra sinn til hvorrar handar; Jesús í miðið.

    20:19 Pílatus hafði ritað yfirskrift og sett hana á krossinn. Þar stóð skrifað: JESÚS FRÁ NASARET, KONUNGUR GYÐINGA.

    20:20 Margir Gyðingar lásu þessa yfirskrift, því staðurinn, þar sem Jesús var krossfestur, var nærri borginni, og þetta var ritað á hebresku, latínu og grísku.

    20:21 Þá sögðu æðstu prestar Gyðinga við Pílatus: ,,Skrifaðu ekki ,konungur Gyðinga`, heldur að hann hafi sagt: ,Ég er konungur Gyðinga`.``

    20:22 Pílatus svaraði: ,,Það sem ég hef skrifað, það hef ég skrifað.``

    20:23 Þegar hermennirnir höfðu krossfest Jesú, tóku þeir klæði hans og skiptu í fjóra hluti, og fékk hver sinn hlut. Þeir tóku og kyrtilinn, en hann var saumlaus, ofinn í eitt ofan frá og niður úr.

    20:24 Þeir sögðu því hver við annan: ,,Rífum hann ekki sundur, köstum heldur hlut um, hver skuli fá hann.`` Svo rættist ritningin: Þeir skiptu með sér klæðum mínum og köstuðu hlut um kyrtil minn. Þetta gjörðu hermennirnir.

    20:25 En hjá krossi Jesú stóðu móðir hans og móðursystir, María, kona Klópa, og María Magdalena.

    20:26 Þegar Jesús sá móður sína standa þar og lærisveininn, sem hann elskaði, segir hann við móður sína: ,,Kona, nú er hann sonur þinn.``

    20:27 Síðan sagði hann við lærisveininn: ,,Nú er hún móðir þín.`` Og frá þeirri stundu tók lærisveinninn hana heim til sín.

    20:28 Jesús vissi, að allt var þegar fullkomnað. Þá sagði hann, til þess að ritningin rættist: ,,Mig þyrstir.``

    20:29 Þar stóð ker fullt af ediki. Þeir settu njarðarvött fylltan ediki á ísópslegg og báru að munni honum.

    20:30 Þegar Jesús hafði fengið edikið, sagði hann: ,,Það er fullkomnað.`` Þá hneigði hann höfuðið og gaf upp andann.

    20:31 Nú var aðfangadagur, og til þess að líkin væru ekki á krossunum hvíldardaginn, báðu Gyðingar Pílatus að láta brjóta fótleggi þeirra og taka líkin ofan, enda var mikil helgi þess hvíldardags.

    20:32 Hermenn komu því og brutu fótleggi þeirra, sem með honum voru krossfestir, fyrst annars, svo hins.

    20:33 Þegar þeir komu að Jesú og sáu, að hann var þegar dáinn, brutu þeir ekki fótleggi hans.

    20:34 En einn af hermönnunum stakk spjóti sínu í síðu hans, og rann jafnskjótt út blóð og vatn.

    20:35 Sá er séð hefur, vitnar þetta, svo að þér trúið líka og vitnisburður hans er sannur. Og hann veit, að hann segir satt.

    20:36 Þetta varð til þess, að ritningin rættist: ,,Ekkert bein hans skal brotið.``

    20:37 Og enn segir önnur ritning: ,,Þeir munu horfa til hans, sem þeir stungu.``

    20:38 Jósef frá Arímaþeu, sem var lærisveinn Jesú, en á laun af ótta við Gyðinga, bað síðan Pílatus að mega taka ofan líkama Jesú. Pílatus leyfði það. Hann kom þá og tók ofan líkama hans.

    20:39 Þar kom líka Nikódemus, er fyrrum hafði komið til hans um nótt, og hafði með sér blöndu af myrru og alóe, nær hundrað pundum.

    20:40 Þeir tóku nú líkama Jesú og sveipuðu hann línblæjum með ilmjurtunum, eins og Gyðingar búa lík til greftrunar.

    20:41 En á staðnum, þar sem hann var krossfestur, var grasgarður og í garðinum ný gröf, sem enginn hafði enn verið lagður í.

    20:42 Þar lögðu þeir Jesú, því það var aðfangadagur Gyðinga, og gröfin var nærri.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine