Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOHN 20

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    21:1 Fyrsta dag vikunnar kemur María Magdalena til grafarinnar svo snemma, að enn var myrkur, og sér steininn tekinn frá gröfinni.

    21:2 Hún hleypur því og kemur til Símonar Péturs og hins lærisveinsins, sem Jesús elskaði, og segir við þá: ,,Þeir hafa tekið Drottin úr gröfinni, og vér vitum ekki, hvar þeir hafa lagt hann.``

    21:3 Pétur fór þá út og hinn lærisveinninn, og þeir komu til grafarinnar.

    21:4 Þeir hlupu báðir saman. En hinn lærisveinninn hljóp hraðar, fram úr Pétri, og kom á undan að gröfinni.

    21:5 Hann laut inn og sá línblæjurnar liggjandi, en fór samt ekki inn.

    21:6 Nú kom líka Símon Pétur á eftir honum og fór inn í gröfina. Hann sá línblæjurnar liggja þar

    21:7 og sveitadúkinn, sem verið hafði um höfuð hans. Hann lá ekki með línblæjunum, heldur sér samanvafinn á öðrum stað.

    21:8 Þá gekk einnig inn hinn lærisveinninn, sem komið hafði fyrr til grafarinnar. Hann sá og trúði.

    21:9 Þeir höfðu ekki enn skilið ritninguna, að hann ætti að rísa upp frá dauðum.

    21:10 Síðan fóru lærisveinarnir aftur heim til sín.

    21:11 En María stóð úti fyrir gröfinni og grét. Grátandi laut hún inn í gröfina

    21:12 og sá tvo engla í hvítum klæðum sitja þar sem líkami Jesú hafði legið, annan til höfða og hinn til fóta.

    21:13 Þeir segja við hana: ,,Kona, hví grætur þú?`` Hún svaraði: ,,Þeir hafa tekið brott Drottin minn, og ég veit ekki, hvar þeir hafa lagt hann.``

    21:14 Að svo mæltu snýr hún sér við og sér Jesú standa þar. En hún vissi ekki, að það var Jesús.

    21:15 Jesús segir við hana: ,,Kona, hví grætur þú? Að hverjum leitar þú?`` Hún hélt, að hann væri grasgarðsvörðurinn, og sagði við hann: ,,Herra, ef þú hefur borið hann burt, þá segðu mér, hvar þú hefur lagt hann, svo að ég geti sótt hann.``

    21:16 Jesús segir við hana: ,,María!`` Hún snýr sér að honum og segir á hebresku: ,,Rabbúní!`` (Rabbúní þýðir meistari.)

    21:17 Jesús segir við hana: ,,Snertu mig ekki! Ég er ekki enn stiginn upp til föður míns. En farðu til bræðra minna og seg þeim: ,Ég stíg upp til föður míns og föður yðar, til Guðs míns og Guðs yðar.```

    21:18 María Magdalena kemur og boðar lærisveinunum: ,,Ég hef séð Drottin.`` Og hún flutti þeim það, sem hann hafði sagt henni.

    21:19 Um kvöldið þennan fyrsta dag vikunnar voru lærisveinarnir saman og höfðu læst dyrum af ótta við Gyðinga. Þá kom Jesús, stóð mitt á meðal þeirra og sagði við þá: ,,Friður sé með yður!``

    21:20 Þegar hann hafði þetta mælt, sýndi hann þeim hendur sínar og síðu. Lærisveinarnir urðu glaðir, er þeir sáu Drottin.

    21:21 Þá sagði Jesús aftur við þá: ,,Friður sé með yður. Eins og faðirinn hefur sent mig, eins sendi ég yður.``

    21:22 Og er hann hafði sagt þetta, andaði hann á þá og sagði: ,,Meðtakið heilagan anda.

    21:23 Ef þér fyrirgefið einhverjum syndirnar, eru þær fyrirgefnar. Ef þér synjið einhverjum fyrirgefningar, er þeim synjað.``

    21:24 En einn af þeim tólf, Tómas, nefndur tvíburi, var ekki með þeim, þegar Jesús kom.

    21:25 Hinir lærisveinarnir sögðu honum: ,,Vér höfum séð Drottin.`` En hann svaraði: ,,Sjái ég ekki naglaförin í höndum hans og geti sett fingur minn í naglaförin og lagt hönd mína í síðu hans, mun ég alls ekki trúa.``

    21:26 Að viku liðinni voru lærisveinar hans aftur saman inni og Tómas með þeim. Dyrnar voru læstar. Þá kemur Jesús, stendur mitt á meðal þeirra og segir: ,,Friður sé með yður!``

    21:27 Síðan segir hann við Tómas: ,,Kom hingað með fingur þinn og sjá hendur mínar, og kom með hönd þína og legg í síðu mína, og vertu ekki vantrúaður, vertu trúaður.``

    21:28 Tómas svaraði: ,,Drottinn minn og Guð minn!``

    21:29 Jesús segir við hann: ,,Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.``

    21:30 Jesús gjörði einnig mörg önnur tákn í augsýn lærisveina sinna, sem eigi eru skráð á þessa bók.

    21:31 En þetta er ritað til þess að þér trúið, að Jesús sé Kristur, sonur Guðs, og að þér í trúnni eigið líf í hans nafni.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine