Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOHN 3

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    3:1 Maður hét Nikódemus, af flokki farísea, ráðsherra meðal Gyðinga.

    3:2 Hann kom til Jesú um nótt og sagði við hann: ,,Rabbí, vér vitum, að þú ert lærifaðir kominn frá Guði. Enginn getur gjört þessi tákn, sem þú gjörir, nema Guð sé með honum.``

    3:3 Jesús svaraði honum: ,,Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki, nema hann fæðist að nýju.``

    3:4 Nikódemus segir við hann: ,,Hvernig getur maður fæðst, þegar hann er orðinn gamall? Skyldi hann geta komist aftur í líf móður sinnar og fæðst?``

    3:5 Jesús svaraði: ,,Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur komist inn í Guðs ríki, nema hann fæðist af vatni og anda.

    3:6 Það sem af holdinu fæðist, er hold, en það sem af andanum fæðist, er andi.

    3:7 Undrast eigi, að ég segi við þig: Yður ber að fæðast að nýju.

    3:8 Vindurinn blæs þar sem hann vill, og þú heyrir þyt hans. Samt veistu ekki, hvaðan hann kemur né hvert hann fer. Svo er um þann, sem af andanum er fæddur.``

    3:9 Þá spurði Nikódemus: ,,Hvernig má þetta verða?``

    3:10 Jesús svaraði honum: ,,Þú ert lærifaðir í Ísrael og veist ekki þetta?

    3:11 Sannlega, sannlega segi ég þér: Vér tölum um það, sem vér þekkjum, og vitnum um það, sem vér höfum séð, en þér takið ekki á móti vitnisburði vorum.

    3:12 Ef þér trúið eigi, þegar ég ræði við yður jarðnesk efni, hvernig skylduð þér þá trúa, er ég ræði við yður um hin himnesku?

    3:13 Enginn hefur stigið upp til himins, nema sá er steig niður frá himni, Mannssonurinn.

    3:14 Og eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á Mannssonurinn að verða upp hafinn,

    3:15 svo að hver sem trúir hafi eilíft líf í honum.

    3:16 Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.

    3:17 Guð sendi ekki soninn í heiminn til að dæma heiminn, heldur að heimurinn skyldi frelsast fyrir hann.

    3:18 Sá sem trúir á hann, dæmist ekki. Sá sem trúir ekki, er þegar dæmdur, því að hann hefur ekki trúað á nafn Guðs sonarins eina.

    3:19 En þessi er dómurinn: Ljósið er komið í heiminn, en menn elskuðu myrkrið fremur en ljósið, því að verk þeirra voru vond.

    3:20 Hver sem illt gjörir hatar ljósið og kemur ekki til ljóssins, svo að verk hans verði ekki uppvís.

    3:21 En sá sem iðkar sannleikann kemur til ljóssins, svo að augljóst verði, að verk hans eru í Guði gjörð.``

    3:22 Eftir þetta fór Jesús og lærisveinar hans út í Júdeuhérað. Þar dvaldist hann með þeim og skírði.

    3:23 Jóhannes var líka að skíra í Aínon nálægt Salím, en þar var mikið vatn. Menn komu þangað og létu skírast.

    3:24 Þá var ekki enn búið að varpa Jóhannesi í fangelsi.

    3:25 Nú varð deila um hreinsun milli lærisveina Jóhannesar og Gyðings eins.

    3:26 Þeir komu til Jóhannesar og sögðu við hann: ,,Rabbí, sá sem var hjá þér handan við Jórdan og þú barst vitni um, hann er að skíra, og allir koma til hans.``

    3:27 Jóhannes svaraði þeim: ,,Enginn getur tekið neitt, nema honum sé gefið það af himni.

    3:28 Þér getið sjálfir vitnað um, að ég sagði: ,Ég er ekki Kristur, heldur er ég sendur á undan honum.`

    3:29 Sá er brúðguminn, sem á brúðina, en vinur brúðgumans, sem stendur hjá og hlýðir á hann, gleðst mjög við rödd hans. Þessi gleði er nú mín að fullu.

    3:30 Hann á að vaxa, en ég að minnka.

    3:31 Sá sem kemur að ofan, er yfir öllum. Sá sem er af jörðu, hann er af jörðu og talar af jörðu. Sá sem kemur af himni, er yfir öllum

    3:32 og vitnar um það, sem hann hefur séð og heyrt, og enginn tekur á móti vitnisburði hans.

    3:33 En sá sem hefur tekið á móti vitnisburði hans, hefur staðfest, að Guð sé sannorður.

    3:34 Sá sem Guð sendi, talar Guðs orð, því ómælt gefur Guð andann.

    3:35 Faðirinn elskar soninn og hefur lagt allt í hönd honum.

    3:36 Sá sem trúir á soninn, hefur eilíft líf, en sá sem óhlýðnast syninum, mun ekki sjá líf, heldur varir reiði Guðs yfir honum.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine