Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOHN 4

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    4:1 Er Jesús varð þess vís, að farísear hefðu heyrt, að hann fengi fleiri lærisveina og skírði fleiri en Jóhannes,

    4:2 _ reyndar skírði Jesús ekki sjálfur, heldur lærisveinar hans _

    4:3 þá hvarf hann brott úr Júdeu og hélt aftur til Galíleu.

    4:4 Hann varð að fara um Samaríu.

    4:5 Nú kemur hann til borgar í Samaríu, er Síkar heitir, nálægt þeirri landspildu, sem Jakob gaf Jósef syni sínum.

    4:6 Þar var Jakobsbrunnur. Jesús var vegmóður, og settist hann þarna við brunninn. Þetta var um hádegisbil.

    4:7 Samversk kona kemur að sækja vatn. Jesús segir við hana: ,,Gef mér að drekka.``

    4:8 En lærisveinar hans höfðu farið inn í borgina að kaupa vistir.

    4:9 Þá segir samverska konan við hann: ,,Hverju sætir, að þú, sem ert Gyðingur, biður mig um að drekka, samverska konu?`` [En Gyðingar hafa ekki samneyti við Samverja.]

    4:10 Jesús svaraði henni: ,,Ef þú þekktir gjöf Guðs og vissir, hver sá er, sem segir við þig: ,Gef mér að drekka,` þá mundir þú biðja hann, og hann gæfi þér lifandi vatn.``

    4:11 Hún segir við hann: ,,Herra, þú hefur enga skjólu að ausa með, og brunnurinn er djúpur. Hvaðan hefur þú þetta lifandi vatn?

    4:12 Ertu meiri en Jakob forfaðir vor, sem gaf oss brunninn og drakk sjálfur úr honum og synir hans og fénaður?``

    4:13 Jesús svaraði: ,,Hvern sem drekkur af þessu vatni mun aftur þyrsta,

    4:14 en hvern sem drekkur af vatninu, er ég gef honum, mun aldrei þyrsta að eilífu. Því vatnið, sem ég gef honum, verður í honum að lind, sem streymir fram til eilífs lífs.``

    4:15 Þá segir konan við hann: ,,Herra, gef mér þetta vatn, svo að mig þyrsti ekki og ég þurfi ekki að fara hingað að ausa.``

    4:16 Hann segir við hana: ,,Farðu, kallaðu á manninn þinn, og komdu hingað.``

    4:17 Konan svaraði: ,,Ég á engan mann.`` Jesús segir við hana: ,,Rétt er það, að þú eigir engan mann,

    4:18 því þú hefur átt fimm menn, og sá sem þú átt nú, er ekki þinn maður. Þetta sagðir þú satt.``

    4:19 Konan segir við hann: ,,Herra, nú sé ég, að þú ert spámaður.

    4:20 Feður vorir hafa tilbeðið Guð á þessu fjalli, en þér segið, að í Jerúsalem sé sá staður, þar sem tilbiðja skuli.``

    4:21 Jesús segir við hana: ,,Trú þú mér, kona. Sú stund kemur, að þér munuð hvorki tilbiðja föðurinn á þessu fjalli né í Jerúsalem.

    4:22 Þér tilbiðjið það, sem þér þekkið ekki. Vér tilbiðjum það, sem vér þekkjum, því hjálpræðið kemur frá Gyðingum.

    4:23 En sú stund kemur, já, hún er nú komin, er hinir sönnu tilbiðjendur munu tilbiðja föðurinn í anda og sannleika. Faðirinn leitar slíkra, er þannig tilbiðja hann.

    4:24 Guð er andi, og þeir, sem tilbiðja hann, eiga að tilbiðja í anda og sannleika.``

    4:25 Konan segir við hann: ,,Ég veit, að Messías kemur _ það er Kristur. Þegar hann kemur, mun hann kunngjöra oss allt.``

    4:26 Jesús segir við hana: ,,Ég er hann, ég sem við þig tala.``

    4:27 Í sama bili komu lærisveinar hans og furðuðu sig á því, að hann var að tala við konu. Þó sagði enginn: ,,Hvað viltu?`` eða: ,,Hvað ertu að tala við hana?``

    4:28 Nú skildi konan eftir skjólu sína, fór inn í borgina og sagði við menn:

    4:29 ,,Komið og sjáið mann, er sagði mér allt, sem ég hef gjört. Skyldi hann vera Kristur?``

    4:30 Þeir fóru úr borginni og komu til hans.

    4:31 Meðan þessu fór fram, báðu lærisveinarnir hann: ,,Rabbí, fá þér að eta.``

    4:32 Hann svaraði þeim: ,,Ég hef mat að eta, sem þér vitið ekki um.``

    4:33 Þá sögðu lærisveinarnir sín á milli: ,,Skyldi nokkur hafa fært honum að eta?``

    4:34 Jesús sagði við þá: ,,Minn matur er að gjöra vilja þess, sem sendi mig, og fullna verk hans.

    4:35 Segið þér ekki: Enn eru fjórir mánuðir, þá kemur uppskeran? En ég segi yður: Lítið upp og horfið á akrana, þeir eru hvítir til uppskeru.

    4:36 Sá sem upp sker, tekur þegar laun og safnar ávexti til eilífs lífs, svo að sá gleðjist, er sáir, og með honum hinn, sem upp sker.

    4:37 Hér sannast orðtakið: Einn sáir, og annar sker upp.

    4:38 Ég sendi yður að skera upp það sem þér hafið ekki unnið við. Aðrir hafa erfiðað, en þér eruð gengnir inn í erfiði þeirra.``

    4:39 Margir Samverjar úr þessari borg trúðu á hann vegna orða konunnar, sem vitnaði um það, að hann hefði sagt henni allt, sem hún hafði gjört.

    4:40 Þegar því Samverjarnir komu til hans, báðu þeir hann að staldra við hjá sér. Var hann þar um kyrrt tvo daga.

    4:41 Og miklu fleiri tóku trú, þegar þeir heyrðu hann sjálfan.

    4:42 Þeir sögðu við konuna: ,,Það er ekki lengur sakir orða þinna, að vér trúum, því að vér höfum sjálfir heyrt hann og vitum, að hann er sannarlega frelsari heimsins.``

    4:43 Eftir þessa tvo daga fór hann þaðan til Galíleu.

    4:44 En sjálfur hafði Jesús sagt, að spámaður væri ekki metinn í föðurlandi sínu.

    4:45 Þegar hann kom nú til Galíleu, tóku Galíleumenn honum vel, þar eð þeir höfðu séð allt sem hann gjörði á hátíðinni í Jerúsalem, enda höfðu þeir sjálfir sótt hátíðina.

    4:46 Nú kom hann aftur til Kana í Galíleu, þar sem hann hafði gjört vatn að víni. Í Kapernaum var konungsmaður nokkur, sem átti sjúkan son.

    4:47 Þegar hann frétti, að Jesús væri kominn frá Júdeu til Galíleu, fór hann til hans og bað hann að koma niður eftir og lækna son sinn. En hann var dauðvona.

    4:48 Þá sagði Jesús við hann: ,,Þér trúið ekki, nema þér sjáið tákn og stórmerki.``

    4:49 Konungsmaður bað hann: ,,Herra, kom þú áður en barnið mitt andast.``

    4:50 Jesús svaraði: ,,Far þú, sonur þinn lifir.`` Maðurinn trúði því orði, sem Jesús mælti til hans, og fór af stað.

    4:51 En meðan hann var á leiðinni ofan eftir, mættu honum þjónar hans og sögðu, að sonur hans væri á lífi.

    4:52 Hann spurði þá, hvenær honum hefði farið að létta, og þeir svöruðu: ,,Í gær upp úr hádegi fór hitinn úr honum.``

    4:53 Þá sá faðirinn, að það var á þeirri stundu, þegar Jesús hafði sagt við hann: ,,Sonur þinn lifir.`` Og hann tók trú og allt hans heimafólk.

    4:54 Þetta var annað táknið, sem Jesús gjörði, þegar hann kom frá Júdeu til Galíleu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine