Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOHN 6

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    6:1 Eftir þetta fór Jesús yfir um Galíleuvatn eða Tíberíasvatn.

    6:2 Mikill fjöldi manna fylgdi honum, því þeir sáu þau tákn, er hann gjörði á sjúku fólki.

    6:3 Þá fór Jesús upp á fjallið og settist þar niður með lærisveinum sínum.

    6:4 Þetta var laust fyrir páska, hátíð Gyðinga.

    6:5 Jesús leit upp og sá, að mikill mannfjöldi kom til hans. Hann segir þá við Filippus: ,,Hvar eigum vér að kaupa brauð, að þessir menn fái að eta?``

    6:6 En þetta sagði hann til að reyna hann, því hann vissi sjálfur, hvað hann ætlaði að gjöra.

    6:7 Filippus svaraði honum: ,,Brauð fyrir tvö hundruð denara nægðu þeim ekki, svo að hver fengi lítið eitt.``

    6:8 Annar lærisveinn hans, Andrés, bróðir Símonar Péturs, segir þá við hann:

    6:9 ,,Hér er piltur, sem er með fimm byggbrauð og tvo fiska, en hvað er það handa svo mörgum?``

    6:10 Jesús sagði: ,,Látið fólkið setjast niður.`` Þarna var gras mikið. Menn settust nú niður, um fimm þúsund karlmenn að tölu.

    6:11 Nú tók Jesús brauðin, gjörði þakkir og skipti þeim út til þeirra, sem þar sátu, og eins af fiskunum, svo mikið sem þeir vildu.

    6:12 Þegar þeir voru mettir, segir hann við lærisveina sína: ,,Safnið saman leifunum, svo ekkert spillist.``

    6:13 Þeir söfnuðu þeim saman og fylltu tólf körfur með leifum byggbrauðanna fimm, sem af gengu hjá þeim, er neytt höfðu.

    6:14 Þegar menn sáu táknið, sem hann gjörði, sögðu þeir: ,,Þessi maður er sannarlega spámaðurinn, sem koma skal í heiminn.``

    6:15 Jesús vissi nú, að þeir mundu koma og taka hann með valdi til að gjöra hann að konungi, og vék því aftur upp til fjallsins einn síns liðs.

    6:16 Þegar kvöld var komið, fóru lærisveinar hans niður að vatninu,

    6:17 stigu út í bát og lögðu af stað yfir um vatnið til Kapernaum. Myrkur var skollið á, og Jesús var ekki enn kominn til þeirra.

    6:18 Vind gerði hvassan, og tók vatnið að æsast.

    6:19 Þegar þeir höfðu róið hér um bil tuttugu og fimm eða þrjátíu skeiðrúm, sáu þeir Jesú gangandi á vatninu og nálgast bátinn. Þeir urðu hræddir,

    6:20 en hann sagði við þá: ,,Það er ég, óttist eigi.``

    6:21 Þeir vildu þá taka hann í bátinn, en í sömu svifum rann báturinn að landi, þar sem þeir ætluðu að lenda.

    6:22 Daginn eftir sá fólkið, sem eftir var handan vatnsins, að þar hafði ekki verið nema einn bátur og að Jesús hafði ekki stigið í bátinn með lærisveinum sínum, heldur höfðu þeir farið burt einir saman.

    6:23 Aðrir bátar komu frá Tíberías í nánd við staðinn, þar sem þeir höfðu etið brauðið, þegar Drottinn gjörði þakkir.

    6:24 Nú sáu menn, að Jesús var ekki þarna fremur en lærisveinar hans. Þeir stigu því í bátana og komu til Kapernaum í leit að Jesú.

    6:25 Þeir fundu hann hinum megin við vatnið og spurðu hann: ,,Rabbí, nær komstu hingað?``

    6:26 Jesús svaraði þeim: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér leitið mín ekki af því, að þér sáuð tákn, heldur af því, að þér átuð af brauðunum og urðuð mettir.

    6:27 Aflið yður eigi þeirrar fæðu, sem eyðist, heldur þeirrar fæðu, sem varir til eilífs lífs og Mannssonurinn mun gefa yður. Því á hann hefur faðirinn, Guð sjálfur, sett innsigli sitt.``

    6:28 Þá sögðu þeir við hann: ,,Hvað eigum vér að gjöra, svo að vér vinnum verk Guðs?``

    6:29 Jesús svaraði þeim: ,,Þetta er verk Guðs, að þér trúið á þann, sem hann sendi.``

    6:30 Þeir spurðu hann þá: ,,Hvaða tákn gjörir þú, svo að vér sjáum og trúum þér? Hvað afrekar þú?

    6:31 Feður vorir átu manna í eyðimörkinni, eins og ritað er: ,Brauð af himni gaf hann þeim að eta.```

    6:32 Jesús sagði við þá: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Móse gaf yður ekki brauðið af himni, heldur gefur faðir minn yður hið sanna brauð af himni.

    6:33 Brauð Guðs er sá, sem stígur niður af himni og gefur heiminum líf.``

    6:34 Þá sögðu þeir við hann: ,,Herra, gef oss ætíð þetta brauð.``

    6:35 Jesús sagði þeim: ,,Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir.

    6:36 En ég hef sagt við yður: Þér hafið séð mig og trúið þó ekki.

    6:37 Allt sem faðirinn gefur mér, mun koma til mín, og þann sem kemur til mín, mun ég alls eigi brott reka.

    6:38 Ég er stiginn niður af himni, ekki til að gjöra vilja minn, heldur vilja þess, er sendi mig.

    6:39 En sá er vilji þess, sem sendi mig, að ég glati engu af öllu því, sem hann hefur gefið mér, heldur reisi það upp á efsta degi.

    6:40 Því sá er vilji föður míns, að hver sem sér soninn og trúir á hann, hafi eilíft líf, og ég mun reisa hann upp á efsta degi.``

    6:41 Nú kom upp kurr meðal Gyðinga út af því, að hann sagði: ,,Ég er brauðið, sem niður steig af himni,``

    6:42 og þeir sögðu: ,,Er þetta ekki hann Jesús, sonur Jósefs? Vér þekkjum bæði föður hans og móður. Hvernig getur hann sagt, að hann sé stiginn niður af himni?``

    6:43 Jesús svaraði þeim: ,,Verið ekki með kurr yðar á meðal.

    6:44 Enginn getur komið til mín, nema faðirinn, sem sendi mig, dragi hann, og ég mun reisa hann upp á efsta degi.

    6:45 Hjá spámönnunum er skrifað: ,Þeir munu allir verða af Guði fræddir.` Hver sem hlýðir á föðurinn og lærir af honum, kemur til mín.

    6:46 Ekki er það svo, að nokkur hafi séð föðurinn. Sá einn, sem er frá Guði, hefur séð föðurinn.

    6:47 Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir, hefur eilíft líf.

    6:48 Ég er brauð lífsins.

    6:49 Feður yðar átu manna í eyðimörkinni, en þeir dóu.

    6:50 Þetta er brauðið, sem niður stígur af himni. Sá sem etur af því, deyr ekki.

    6:51 Ég er hið lifandi brauð, sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði, mun lifa að eilífu. Og brauðið, sem ég mun gefa, er hold mitt, heiminum til lífs.``

    6:52 Nú deildu Gyðingar sín á milli og sögðu: ,,Hvernig getur þessi maður gefið oss hold sitt að eta?``

    6:53 Þá sagði Jesús við þá: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef þér etið ekki hold Mannssonarins og drekkið blóð hans, hafið þér ekki lífið í yður.

    6:54 Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, hefur eilíft líf, og ég reisi hann upp á efsta degi.

    6:55 Hold mitt er sönn fæða, og blóð mitt er sannur drykkur.

    6:56 Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, er í mér og ég í honum.

    6:57 Eins og hinn lifandi faðir sendi mig og ég lifi fyrir föðurinn, svo mun sá lifa fyrir mig, sem mig etur.

    6:58 Þetta er það brauð, sem niður steig af himni. Það er ekki eins og brauðið, sem feðurnir átu og dóu. Sá sem etur þetta brauð, mun lifa að eilífu.``

    6:59 Þetta sagði hann, þegar hann var að kenna í samkundunni í Kapernaum.

    6:60 Margir af lærisveinum hans, er á hlýddu, sögðu: ,,Þung er þessi ræða. Hver getur hlustað á hana?``

    6:61 Jesús vissi með sjálfum sér, að kurr var með lærisveinum hans út af þessu, og sagði við þá: ,,Hneykslar þetta yður?

    6:62 En ef þér sæjuð Mannssoninn stíga upp þangað, sem hann áður var?

    6:63 Það er andinn, sem lífgar, holdið megnar ekkert. Orðin, sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf.

    6:64 En meðal yðar eru nokkrir, sem ekki trúa.`` Jesús vissi frá upphafi, hverjir þeir voru, sem trúðu ekki, og hver sá var, sem mundi svíkja hann.

    6:65 Og hann bætti við: ,,Vegna þess sagði ég við yður: Enginn getur komið til mín, nema faðirinn veiti honum það.``

    6:66 Upp úr þessu hurfu margir af lærisveinum hans frá og voru ekki framar með honum.

    6:67 Þá sagði Jesús við þá tólf: ,,Ætlið þér að fara líka?``

    6:68 Símon Pétur svaraði honum: ,,Herra, til hvers ættum vér að fara? Þú hefur orð eilífs lífs,

    6:69 og vér trúum og vitum, að þú ert hinn heilagi Guðs.``

    6:70 Jesús svaraði þeim: ,,Hef ég eigi sjálfur útvalið yður tólf? Þó er einn yðar djöfull.``

    6:71 En hann átti við Júdas Símonarson Ískaríots, sem varð til að svíkja hann, einn þeirra tólf.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine