Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - LAMENTATIONS 3

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    3:1 Ég er maðurinn, sem eymd hefi reynt undir sprota reiði hans.

    3:2 Mig hefir hann rekið og fært út í myrkur og niðdimmu.

    3:3 Já, gegn mér snýr hann æ að nýju hendi sinni allan daginn.

    3:4 Hann hefir tálgað af mér hold mitt og hörund, brotið sundur bein mín,

    3:5 hlaðið hringinn í kringum mig fári og mæðu,

    3:6 hneppt mig í myrkur eins og þá sem dánir eru fyrir löngu.

    3:7 Hann hefir girt fyrir mig, svo að ég kemst ekki út, gjört fjötra mína þunga.

    3:8 Þótt ég hrópi og kalli, hnekkir hann bæn minni.

    3:9 Hann girti fyrir vegu mína með höggnum steinum, gjörði stigu mína ófæra.

    3:10 Hann var mér eins og björn, sem situr um bráð, eins og ljón í launsátri.

    3:11 Hann hefir leitt mig afleiðis og tætt mig sundur, hann hefir látið mig eyddan,

    3:12 hann hefir bent boga sinn og reist mig að skotspæni fyrir örina,

    3:13 hefir sent í nýru mín sonu örvamælis síns.

    3:14 Ég varð öllum þjóðum að athlægi, þeim að háðkvæði liðlangan daginn.

    3:15 Hann mettaði mig á beiskum jurtum, drykkjaði mig á malurt

    3:16 og lét tennur mínar myljast sundur á malarsteinum, lét mig velta mér í ösku.

    3:17 Þú sviptir sálu mína friði, ég gleymdi því góða

    3:18 og sagði: ,,Horfinn er lífskraftur minn, von mín fjarri Drottni.``

    3:19 Minnstu eymdar minnar og mæðu, malurtarinnar og eitursins.

    3:20 Sál mín hugsar stöðugt um þetta og er döpur í brjósti mér.

    3:21 Þetta vil ég hugfesta, þess vegna vil ég vona:

    3:22 Náð Drottins er ekki þrotin, miskunn hans ekki á enda,

    3:23 hún er ný á hverjum morgni, mikil er trúfesti þín!

    3:24 Drottinn er hlutdeild mín, segir sál mín, þess vegna vil ég vona á hann.

    3:25 Góður er Drottinn þeim er á hann vona, og þeirri sál er til hans leitar.

    3:26 Gott er að bíða hljóður eftir hjálp Drottins.

    3:27 Gott er fyrir manninn að bera ok í æsku.

    3:28 Hann sitji einmana og hljóður, af því að Hann hefir lagt það á hann.

    3:29 Hann beygi munninn ofan að jörðu, vera má að enn sé von,

    3:30 hann bjóði þeim kinnina sem slær hann, láti metta sig með smán.

    3:31 Því að ekki útskúfar Drottinn um alla eilífð,

    3:32 heldur miskunnar hann aftur, þegar hann hrellir, eftir sinni miklu náð.

    3:33 Því að ekki langar hann til að þjá né hrella mannanna börn.

    3:34 Að menn troða undir fótum alla bandingja landsins,

    3:35 að menn halla rétti manns fyrir augliti hins Hæsta,

    3:36 að menn beita mann ranglæti í máli hans, _ skyldi Drottinn ekki sjá það?

    3:37 Hver er sá er talaði, og það varð, án þess að Drottinn hafi boðið það?

    3:38 Fram gengur ekki af munni hins Hæsta bæði hamingja og óhamingja?

    3:39 Hví andvarpar maðurinn alla ævi? Hver andvarpi yfir eigin syndum!

    3:40 Rannsökum breytni vora og prófum og snúum oss til Drottins.

    3:41 Fórnum hjarta voru og höndum til Guðs í himninum.

    3:42 Vér höfum syndgað og verið óhlýðnir, þú hefir ekki fyrirgefið,

    3:43 þú hefir hulið þig í reiði og ofsótt oss, myrt vægðarlaust,

    3:44 þú hefir hulið þig í skýi, svo að engin bæn kemst í gegn.

    3:45 Þú gjörðir oss að afhraki og viðbjóð mitt á meðal þjóðanna.

    3:46 Yfir oss glenntu upp ginið allir óvinir vorir.

    3:47 Geigur og gildra urðu hlutskipti vort, eyðing og tortíming.

    3:48 Táralækir streyma af augum mér út af tortíming þjóðar minnar.

    3:49 Hvíldarlaust fljóta augu mín í tárum, án þess að hlé verði á,

    3:50 uns niður lítur og á horfir Drottinn af himnum.

    3:51 Auga mitt veldur sál minni kvöl, vegna allra dætra borgar minnar.

    3:52 Með ákefð eltu mig, eins og fugl, þeir er voru óvinir mínir án saka.

    3:53 Þeir gjörðu því nær út af við mig í gryfju og köstuðu steinum á mig.

    3:54 Vatn flóði yfir höfuð mitt, ég hugsaði: ,,Ég er frá.``

    3:55 Ég hrópaði á nafn þitt, Drottinn, úr hyldýpi gryfjunnar.

    3:56 Þú heyrðir hróp mitt: ,,Byrg ekki eyra þitt, kom mér til fróunar, kom mér til hjálpar.``

    3:57 Þú varst nálægur, þá er ég hrópaði til þín, sagðir: ,,Óttastu ekki!``

    3:58 Þú varðir, Drottinn, mál mitt, leystir líf mitt.

    3:59 Þú hefir, Drottinn, séð undirokun mína, rétt þú hluta minn!

    3:60 Þú hefir séð alla hefnigirni þeirra, allt ráðabrugg þeirra gegn mér,

    3:61 þú hefir heyrt smánanir þeirra, Drottinn, allt ráðabrugg þeirra í gegn mér,

    3:62 skraf mótstöðumanna minna og hinar stöðugu ráðagjörðir þeirra gegn mér.

    3:63 Lít þú á, hvort sem þeir sitja eða standa, þá er ég háðkvæði þeirra.

    3:64 Þú munt endurgjalda þeim, Drottinn, eins og þeir hafa til unnið.

    3:65 Þú munt leggja hulu yfir hjarta þeirra, bölvan þín komi yfir þá.

    3:66 Þú munt ofsækja þá í reiði og afmá þá undan himni Drottins.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine