Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - LAMENTATIONS 4

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    4:1 Æ, hversu blakkt er gullið orðið, umbreyttur málmurinn dýri, æ, hversu var helgum steinum fleygt út á öllum strætamótum.

    4:2 Síon-búar hinir dýrmætu, jafnvægir skíragulli, hversu voru þeir metnir jafnt og leirker, jafnt og smíð úr pottara höndum.

    4:3 Jafnvel sjakalarnir bjóða júgrið og gefa hvolpum sínum að sjúga, en dóttir þjóðar minnar er orðin harðbrjósta, eins og strútsfuglarnir í eyðimörkinni.

    4:4 Tunga brjóstmylkingsins loddi við góminn af þorsta, börnin báðu um brauð, en enginn miðlaði þeim neinu.

    4:5 Þeir sem vanir hafa verið að eta krásir, örmagnast nú á strætunum, þeir sem bornir voru á purpura, faðma nú mykjuhauga.

    4:6 Því að misgjörð dóttur þjóðar minnar var meiri en synd Sódómu, sem umturnað var svo að segja á augabragði, án þess að manna hendur kæmu þar nærri.

    4:7 Höfðingjar hennar voru hreinni en mjöll, hvítari en mjólk, líkami þeirra rauðari en kórallar, ásýnd þeirra eins og safír.

    4:8 Útlit þeirra er orðið blakkara en sót, þeir þekkjast ekki á strætunum. Skinnið á þeim er skorpið að beinum, það er þornað eins og tré.

    4:9 Sælli voru þeir er féllu fyrir sverði heldur en þeir er féllu fyrir hungri, þeir er hnigu hungurmorða, af því að enginn var akurgróðinn.

    4:10 Viðkvæmar konur suðu með eigin höndum börnin sín, þau voru þeim til næringar, þá er dóttir þjóðar minnar var eydd.

    4:11 Drottinn tæmdi heift sína, úthellti sinni brennandi reiði og kveikti eld í Síon, er eyddi henni til grunna.

    4:12 Konungar jarðarinnar hefðu ekki trúað því, né neinn af íbúum jarðríkis, að fjendur og óvinir mundu inn fara um hlið Jerúsalem.

    4:13 Vegna synda spámanna hennar, misgjörða presta hennar, er úthelltu inni í henni blóði réttlátra,

    4:14 reika þeir eins og blindir menn um strætin, ataðir blóði, svo að eigi mættu menn snerta klæði þeirra.

    4:15 ,,Víkið úr vegi! Óhreinn maður!`` kölluðu menn á undan þeim, ,,víkið úr vegi, víkið úr vegi, snertið hann eigi!`` Þegar þeir skjögruðu, sögðu menn meðal heiðingjanna: ,,Þeir skulu eigi dveljast hér lengur.``

    4:16 Reiðitillit Drottins hefir tvístrað þeim, hann lítur eigi framar við þeim. Hann virti prestana að vettugi og miskunnaði sig ekki yfir gamalmennin.

    4:17 Hversu lengi störðu augu vor sig þreytt eftir hjálp sem ekki kom. Af sjónarhól vorum mændum vér eftir þjóð sem ekki hjálpar.

    4:18 Menn röktu slóðir vorar, svo að vér gátum ekki gengið á götum vorum. Endalok vor nálguðust, dagar vorir fullnuðust, já, endalok vor komu.

    4:19 Ofsækjendur vorir voru léttfærari en ernirnir í loftinu, þeir eltu oss yfir fjöllin, sátu um oss í eyðimörkinni.

    4:20 Andi nasa vorra, Drottins smurði, varð fanginn í gryfjum þeirra _ hann sem vér sögðum um: ,,Í skjóli hans skulum vér lifa meðal þjóðanna!``

    4:21 Fagna þú og ver glöð, dóttirin Edóm, þú sem býr í Ús-landi: Til þín mun og bikarinn koma, þú munt verða drukkin og bera blygðan þína!

    4:22 Sekt þín er á enda, dóttirin Síon, hann mun eigi framar gjöra þig landræka. Hann vitjar misgjörðar þinnar, dóttirin Edóm, dregur skýluna af syndum þínum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine