Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - LAMENTATIONS 5

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    5:1 Minnstu þess, Drottinn, hvað yfir oss hefir gengið, lít þú á og sjá háðung vora.

    5:2 Arfleifð vor er komin í hendur annarra, hús vor í hendur útlendinga.

    5:3 Vér erum orðnir munaðarleysingjar, föðurlausir, mæður vorar orðnar sem ekkjur.

    5:4 Vatnið sem vér drekkum, verðum vér að kaupa, viðinn fáum vér aðeins gegn borgun.

    5:5 Ofsækjendur vorir sitja á hálsi vorum, þótt vér séum þreyttir, fáum vér enga hvíld.

    5:6 Til Egyptalands réttum vér út höndina, til Assýríu, til þess að seðjast af mat.

    5:7 Feður vorir syndguðu, þeir eru eigi framar til, og vér berum misgjörð þeirra.

    5:8 Þrælar drottna yfir oss, enginn hrífur oss úr höndum þeirra.

    5:9 Með lífsháska sækjum vér matbjörg vora í eyðimörkinni, þar sem sverðið vofir yfir oss.

    5:10 Hörund vort er orðið svart eins og ofn af hungurbruna.

    5:11 Konur hafa þeir svívirt í Síon, meyjar í Júda-borgum.

    5:12 Höfðingja hengdu þeir, öldungnum sýndu þeir enga virðingu.

    5:13 Æskumennirnir urðu að þræla við kvörnina, og sveinarnir duttu undir viðarbyrðunum.

    5:14 Öldungarnir eru horfnir úr borgarhliðunum, æskumennirnir frá strengleikum.

    5:15 Fögnuður hjarta vors er þrotinn, gleðidans vor snúinn í sorg.

    5:16 Kórónan er fallin af höfði voru, vei oss, því að vér höfum syndgað.

    5:17 Af því er hjarta vort sjúkt orðið, vegna þess eru augu vor döpur,

    5:18 vegna Síonarfjalls, sem er í eyði og refir nú hlaupa um.

    5:19 Þú, Drottinn, ríkir að eilífu, þitt hásæti stendur frá kyni til kyns.

    5:20 Hví vilt þú gleyma oss eilíflega, yfirgefa oss um langan aldur?

    5:21 Snú þú oss til þín, Drottinn, þá snúum vér við, lát þú daga vora aftur verða eins og forðum!

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine