Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MARK 13

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    13:1 Þegar Jesús gekk út úr helgidóminum, segir einn lærisveina hans við hann: ,,Meistari, lít á, hvílíkir steinar, hvílíkar byggingar!``

    13:2 Jesús svaraði honum: ,,Sérðu þessar miklu byggingar? Ekki mun eftir látinn steinn yfir steini, er eigi sé niður brotinn.``

    13:3 Þá er hann sat á Olíufjallinu gegnt helgidóminum, spurðu hann einslega þeir Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés:

    13:4 ,,Seg þú oss, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess, að allt þetta sé að koma fram?``

    13:5 En Jesús tók að segja þeim: ,,Varist að láta nokkurn leiða yður í villu.

    13:6 Margir munu koma í mínu nafni og segja: ,Það er ég!` og marga munu þeir leiða í villu.

    13:7 En þegar þér spyrjið hernað og ófriðartíðindi, þá skelfist ekki. Þetta á að verða, en endirinn er ekki þar með kominn.

    13:8 Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verða landskjálftar á ýmsum stöðum og hungur. Þetta er upphaf fæðingarhríðanna.

    13:9 Gætið að sjálfum yður. Menn munu draga yður fyrir dómstóla, í samkundum verðið þér húðstrýktir, og þér munuð leiddir fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna, þeim til vitnisburðar.

    13:10 En fyrst á að prédika öllum þjóðum fagnaðarerindið.

    13:11 Þegar menn taka yður og draga fyrir rétt, hafið þá ekki fyrirfram áhyggjur af því, hvað þér eigið að segja, heldur talið það, sem yður verður gefið á þeirri stundu. Þér eruð ekki þeir sem tala, heldur heilagur andi.

    13:12 Þá mun bróðir selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða.

    13:13 Og þér munuð hataðir af öllum vegna nafns míns. En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða.

    13:14 En þegar þér sjáið viðurstyggð eyðingarinnar standa þar, er ekki skyldi _ lesandinn athugi það _ þá flýi þeir, sem í Júdeu eru, til fjalla.

    13:15 Sá sem er uppi á þaki, fari ekki ofan og inn í húsið að sækja neitt.

    13:16 Og sá sem er á akri, skal ekki hverfa aftur að taka yfirhöfn sína.

    13:17 Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum.

    13:18 Biðjið, að það verði ekki um vetur.

    13:19 Á þeim dögum verður sú þrenging, sem engin hefur þvílík verið frá upphafi sköpunar, er Guð skapaði, allt til þessa, og mun aldrei verða.

    13:20 Ef Drottinn hefði ekki stytt þessa daga, kæmist enginn maður af. En hann hefur stytt þá vegna þeirra, sem hann hefur útvalið.

    13:21 Og ef einhver segir þá við yður: ,Hér er Kristur,` eða: ,Þar,` þá trúið því ekki.

    13:22 Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn, og þeir munu gjöra tákn og undur til að leiða afvega hina útvöldu ef orðið gæti.

    13:23 Verið varir um yður. Ég hef sagt yður allt fyrir.

    13:24 En á þeim dögum, eftir þrenging þessa, mun sólin sortna og tunglið hætta að skína.

    13:25 Stjörnurnar munu hrapa af himni og kraftar himnanna bifast.

    13:26 Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýjum með miklum mætti og dýrð.

    13:27 Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta.

    13:28 Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér, að sumar er í nánd.

    13:29 Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að hann er í nánd, fyrir dyrum.

    13:30 Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt þetta er komið fram.

    13:31 Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða.

    13:32 En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né sonurinn, enginn nema faðirinn.

    13:33 Verið varir um yður, vakið! Þér vitið ekki, nær tíminn er kominn.

    13:34 Svo er þetta sem maður fari úr landi, skilji við hús sitt og feli þjónum sínum umráðin, hverjum sitt verk. Dyraverðinum býður hann að vaka.

    13:35 Vakið því, þér vitið ekki, nær húsbóndinn kemur, að kveldi, á miðnætti, í óttu eða dögun.

    13:36 Látið hann ekki finna yður sofandi, þegar hann kemur allt í einu.

    13:37 Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine