Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MARK 14

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    14:1 Nú voru tveir dagar til páska og hátíðar ósýrðu brauðanna. Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu handsamað Jesú með svikum og tekið hann af lífi.

    14:2 En þeir sögðu: ,,Ekki á hátíðinni, þá gæti orðið uppþot með lýðnum.``

    14:3 Hann var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum.

    14:4 En þar voru nokkrir, er gramdist þetta, og þeir sögðu sín á milli: ,,Til hvers er þessi sóun á smyrslum?

    14:5 Þessi smyrsl hefði mátt selja fyrir meira en þrjú hundruð denara og gefa fátækum.`` Og þeir atyrtu hana.

    14:6 En Jesús sagði: ,,Látið hana í friði! Hvað eruð þér að angra hana? Gott verk gjörði hún mér.

    14:7 Fátæka hafið þér jafnan hjá yður og getið gjört þeim gott, nær þér viljið, en mig hafið þér ekki ávallt.

    14:8 Hún gjörði það, sem í hennar valdi stóð. Hún hefur fyrirfram smurt líkama minn til greftrunar.

    14:9 Sannlega segi ég yður: Hvar sem fagnaðarerindið verður flutt, um heim allan, mun og getið verða þess, sem hún gjörði, til minningar um hana.``

    14:10 Júdas Ískaríot, einn þeirra tólf, fór þá til æðstu prestanna að framselja þeim hann.

    14:11 Þegar þeir heyrðu það, urðu þeir glaðir við og hétu honum fé fyrir. En hann leitaði færis að framselja hann.

    14:12 Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna, þegar menn slátruðu páskalambinu, sögðu lærisveinar hans við hann: ,,Hvert vilt þú, að vér förum og búum þér páskamáltíðina?``

    14:13 Þá sendi hann tvo lærisveina sína og sagði við þá: ,,Farið inn í borgina, og ykkur mun mæta maður, sem ber vatnsker. Fylgið honum,

    14:14 og þar sem hann fer inn, skuluð þið segja við húsráðandann: ,Meistarinn spyr: Hvar er herbergið, þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum?`

    14:15 Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum og til reiðu. Hafið þar viðbúnað fyrir oss.``

    14:16 Lærisveinarnir fóru, komu inn í borgina og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar.

    14:17 Um kvöldið kom hann með þeim tólf.

    14:18 Þegar þeir sátu að borði og mötuðust sagði Jesús: ,,Sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig, einn sem með mér etur.``

    14:19 Þeir urðu hryggir við og sögðu við hann, einn af öðrum: ,,Ekki er það ég?``

    14:20 Hann svaraði þeim: ,,Það er einn þeirra tólf. Hann dýfir í sama fat og ég.

    14:21 Mannssonurinn fer að sönnu héðan, svo sem um hann er ritað, en vei þeim manni, sem því veldur, að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.``

    14:22 Þá er þeir mötuðust, tók hann brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf þeim og sagði: ,,Takið, þetta er líkami minn.``

    14:23 Og hann tók kaleik, gjörði þakkir og gaf þeim, og þeir drukku af honum allir.

    14:24 Og hann sagði við þá: ,,Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga.

    14:25 Sannlega segi ég yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins til þess dags, er ég drekk hann nýjan í Guðs ríki.``

    14:26 Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir til Olíufjallsins.

    14:27 Og Jesús sagði við þá: ,,Þér munuð allir hneykslast, því að ritað er: Ég mun slá hirðinn, og sauðirnir munu tvístrast.

    14:28 En eftir að ég er upp risinn, mun ég fara á undan yður til Galíleu.``

    14:29 Þá sagði Pétur: ,,Þótt allir hneykslist, geri ég það aldrei.``

    14:30 Jesús sagði við hann: ,,Sannlega segi ég þér: Nú í nótt, áður en hani galar tvisvar, muntu þrisvar afneita mér.``

    14:31 En Pétur kvað enn fastar að: ,,Þó að ég ætti að deyja með þér, þá mun ég aldrei afneita þér.`` Eins töluðu þeir allir.

    14:32 Þeir koma til staðar, er heitir Getsemane, og Jesús segir við lærisveina sína: ,,Setjist hér, meðan ég biðst fyrir.``

    14:33 Hann tók með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes. Og nú setti að honum ógn og angist.

    14:34 Hann segir við þá: ,,Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið.``

    14:35 Þá gekk hann lítið eitt áfram, féll til jarðar og bað, að sú stund færi fram hjá sér, ef verða mætti.

    14:36 Hann sagði: ,,Abba, faðir! allt megnar þú. Tak þennan kaleik frá mér! Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt.``

    14:37 Hann kemur aftur og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: ,,Símon, sefur þú? Gastu ekki vakað eina stund?

    14:38 Vakið og biðjið, að þér fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt.``

    14:39 Aftur vék hann brott og baðst fyrir með sömu orðum.

    14:40 Þegar hann kom aftur, fann hann þá enn sofandi, því drungi var á augum þeirra. Og ekki vissu þeir, hvað þeir ættu að segja við hann.

    14:41 Í þriðja sinn kom hann og sagði við þá: ,,Sofið þér enn og hvílist? Nú er nóg. Stundin er komin. Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna.

    14:42 Standið upp, förum! Sá er í nánd, er mig svíkur.``

    14:43 Um leið, meðan hann var enn að tala, kemur Júdas, einn þeirra tólf, og með honum flokkur manna frá æðstu prestunum, fræðimönnunum og öldungunum, og höfðu þeir sverð og barefli.

    14:44 Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: ,,Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum og færið brott í tryggri vörslu.``

    14:45 Hann kemur, gengur beint að Jesú og segir: ,,Rabbí!`` og kyssti hann.

    14:46 En hinir lögðu hendur á hann og tóku hann.

    14:47 Einn þeirra, er hjá stóðu, brá sverði, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað.

    14:48 Þá sagði Jesús við þá: ,,Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig?

    14:49 Daglega var ég hjá yður í helgidóminum og kenndi, og þér tókuð mig ekki höndum. En ritningarnar hljóta að rætast.``

    14:50 Þá yfirgáfu hann allir lærisveinar hans og flýðu.

    14:51 En maður nokkur ungur fylgdist með honum. Hann hafði línklæði eitt á berum sér. Þeir vildu taka hann,

    14:52 en hann lét eftir línklæðið og flýði nakinn.

    14:53 Nú færðu þeir Jesú til æðsta prestsins. Þar komu saman allir æðstu prestarnir, öldungarnir og fræðimennirnir.

    14:54 Pétur fylgdi honum álengdar, allt inn í garð æðsta prestsins. Þar sat hann hjá þjónunum og vermdi sig við eldinn.

    14:55 Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu vitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann, en fundu eigi.

    14:56 Margir báru þó ljúgvitni gegn honum, en framburði þeirra bar ekki saman.

    14:57 Þá stóðu nokkrir upp og báru ljúgvitni gegn honum og sögðu:

    14:58 ,,Vér heyrðum hann segja: ,Ég mun brjóta niður musteri þetta, sem með höndum er gjört, og reisa annað á þrem dögum, sem ekki er með höndum gjört.` ``

    14:59 En ekki bar þeim heldur saman um þetta.

    14:60 Þá stóð æðsti presturinn upp og spurði Jesú: ,,Svarar þú því engu, sem þessir vitna gegn þér?``

    14:61 En hann þagði og svaraði engu. Enn spurði æðsti presturinn hann: ,,Ertu Kristur, sonur hins blessaða?``

    14:62 Jesús sagði: ,,Ég er sá, og þér munuð sjá Mannssoninn sitja til hægri handar máttarins og koma í skýjum himins.``

    14:63 Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: ,,Hvað þurfum vér nú framar votta við?

    14:64 Þér heyrðuð guðlastið. Hvað líst yður?`` Og þeir dæmdu hann allir sekan og dauða verðan.

    14:65 Þá tóku sumir að hrækja á hann, þeir huldu andlit hans, slógu hann með hnefunum og sögðu við hann: ,,Spáðu!`` Eins börðu þjónarnir hann.

    14:66 Pétur var niðri í garðinum. Þar kom ein af þernum æðsta prestsins

    14:67 og sá, hvar Pétur var að orna sér. Hún horfir á hann og segir: ,,Þú varst líka með manninum frá Nasaret, þessum Jesú.``

    14:68 Því neitaði hann og sagði: ,,Ekki veit ég né skil, hvað þú ert að fara.`` Og hann gekk út í forgarðinn, [en þá gól hani.]

    14:69 Þar sá þernan hann og fór enn að segja við þá, sem hjá stóðu: ,,Þessi er einn af þeim.``

    14:70 En hann neitaði sem áður. Litlu síðar sögðu þeir, er hjá stóðu enn við Pétur: ,,Víst ertu einn af þeim, enda ertu Galíleumaður.``

    14:71 En hann sór og sárt við lagði: ,,Ég þekki ekki þennan mann, sem þér talið um.``

    14:72 Um leið gól hani annað sinn, og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt við hann: ,,Áður en hani galar tvisvar muntu þrisvar afneita mér.`` Þá fór hann að gráta.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine