Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MARK 2

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    2:1 Nokkrum dögum síðar kom hann aftur til Kapernaum. Þegar fréttist, að hann væri heima,

    2:2 söfnuðust þar svo margir, að hvergi var lengur rúm, ekki einu sinni fyrir dyrum úti. Og hann flutti þeim orðið.

    2:3 Þá er komið með lama mann, og báru fjórir.

    2:4 Þegar þeir gátu ekki komist með hann til Jesú fyrir fólkinu, rufu þeir þekjuna uppi yfir honum, grófu þar í gegn og létu síga ofan rekkjuna, sem hinn lami lá í.

    2:5 Þá er Jesús sér trú þeirra, segir hann við lama manninn: ,,Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.``

    2:6 Þar sátu nokkrir fræðimenn og hugsuðu í hjörtum sínum:

    2:7 ,,Hví mælir þessi maður svo? Hann guðlastar. Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?``

    2:8 Samstundis skynjaði Jesús í anda sínum, að þeir hugsuðu þannig með sér, og hann sagði við þá: ,,Hví hugsið þér slíkt í hjörtum yðar?

    2:9 Hvort er auðveldara að segja við lama manninn: ,Syndir þínar eru fyrirgefnar,` eða segja: ,Statt upp, tak rekkju þína og gakk?`

    2:10 En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald til að fyrirgefa syndir á jörðu,

    2:11 þá segi ég þér`` _ og nú talar hann við lama manninn: _ ,,Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín.``

    2:12 Hann stóð upp, tók jafnskjótt rekkjuna og gekk burt í allra augsýn, svo að allir voru furðu lostnir, lofuðu Guð og sögðu: ,,Aldrei áður höfum vér þvílíkt séð.``

    2:13 Aftur fór hann út og gekk með vatninu, og allur mannfjöldinn kom til hans, og hann kenndi þeim.

    2:14 Og er hann gekk þar, sá hann Leví Alfeusson sitja hjá tollbúðinni, og hann segir við hann: ,,Fylg þú mér!`` Og hann stóð upp og fylgdi honum.

    2:15 Svo bar við, að Jesús sat að borði í húsi hans, og margir tollheimtumenn og bersyndugir sátu þar með honum og lærisveinum hans, en margir fylgdu honum.

    2:16 Fræðimenn af flokki farísea, sem sáu, að hann samneytti bersyndugum og tollheimtumönnum, sögðu þá við lærisveina hans: ,,Hann etur með tollheimtumönnum og bersyndugum.``

    2:17 Jesús heyrði þetta og svaraði þeim: ,,Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir, sem sjúkir eru. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara.``

    2:18 Lærisveinar Jóhannesar og farísear héldu nú föstu. Þá koma menn til Jesú og spyrja hann: ,,Hví fasta lærisveinar Jóhannesar og lærisveinar farísea, en þínir lærisveinar fasta ekki?``

    2:19 Jesús svaraði þeim: ,,Hvort geta brúðkaupsgestir fastað, meðan brúðguminn er hjá þeim? Alla þá stund, sem brúðguminn er hjá þeim, geta þeir ekki fastað.

    2:20 En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta, á þeim degi.

    2:21 Enginn saumar bót af óþæfðum dúk á gamalt fat, því þá rífur nýja bótin af hinu gamla og verður af verri rifa.

    2:22 Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir vínið belgina, og vínið ónýtist og belgirnir. Nýtt vín er látið á nýja belgi.``

    2:23 Svo bar við, að Jesús fór um sáðlönd á hvíldardegi, og lærisveinar hans tóku að tína kornöx á leiðinni.

    2:24 Farísearnir sögðu þá við hann: ,,Lít á, hví gjöra þeir það, sem er ekki leyfilegt á hvíldardegi?``

    2:25 Hann svaraði þeim: ,,Hafið þér aldrei lesið, hvað Davíð gjörði, er honum lá á, þegar hann hungraði og menn hans?

    2:26 Hann fór inn í Guðs hús, þegar Abíatar var æðsti prestur, og át skoðunarbrauðin, en þau má enginn eta nema prestarnir, og gaf líka mönnum sínum.``

    2:27 Og hann sagði við þá: ,,Hvíldardagurinn varð til mannsins vegna og eigi maðurinn vegna hvíldardagsins.

    2:28 Því er Mannssonurinn einnig herra hvíldardagsins.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine