Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MARK 3

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    3:1 Öðru sinni gekk hann í samkunduhús. Þar var maður með visna hönd,

    3:2 og höfðu þeir nánar gætur á Jesú, hvort hann læknaði hann á hvíldardegi. Þeir hugðust kæra hann.

    3:3 Og Jesús segir við manninn með visnu höndina: ,,Statt upp og kom hér fram!``

    3:4 Síðan spyr hann þá: ,,Hvort er heldur leyfilegt að gjöra gott eða gjöra illt á hvíldardegi, bjarga lífi eða deyða?`` En þeir þögðu.

    3:5 Og hann leit í kring á þá með reiði, sárhryggur yfir harðúð hjartna þeirra, og sagði við manninn: ,,Réttu fram hönd þína.`` Hann rétti fram höndina, og hún varð heil.

    3:6 Þá gengu farísearnir út og tóku þegar með Heródesarsinnum saman ráð sín gegn honum, hvernig þeir gætu náð lífi hans.

    3:7 Jesús fór með lærisveinum sínum út að vatninu, og fylgdi mikill fjöldi úr Galíleu og úr Júdeu,

    3:8 frá Jerúsalem, Ídúmeu, landinu handan Jórdanar, og úr byggðum Týrusar og Sídonar kom til hans fjöldi manna, er heyrt höfðu, hve mikið hann gjörði.

    3:9 Og hann bauð lærisveinum sínum að hafa til bát fyrir sig, svo að mannfjöldinn þrengdi eigi að honum.

    3:10 En marga hafði hann læknað, og því þustu að honum allir þeir, sem einhver mein höfðu, til að snerta hann.

    3:11 Og hvenær sem óhreinir andar sáu hann, féllu þeir fram fyrir honum og æptu upp: ,,Þú ert sonur Guðs.``

    3:12 En hann lagði ríkt á við þá, að þeir gjörðu hann eigi kunnan.

    3:13 Síðan fór hann til fjalls og kallaði til sín þá er hann sjálfur vildi, og þeir komu til hans.

    3:14 Hann skipaði tólf, er skyldu vera með honum og hann gæti sent út að prédika,

    3:15 með valdi að reka út illa anda.

    3:16 Hann skipaði þá tólf: Símon, er hann gaf nafnið Pétur,

    3:17 Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróður hans, en þeim gaf hann nafnið Boanerges, sem þýðir þrumusynir,

    3:18 og Andrés, Filippus og Bartólómeus, Matteus og Tómas, Jakob Alfeusson, Taddeus og Símon vandlætara

    3:19 og Júdas Ískaríot, þann er sveik hann.

    3:20 Þegar hann kemur heim, safnast þar aftur mannfjöldi, svo þeir gátu ekki einu sinni matast.

    3:21 Hans nánustu fréttu það og fóru út og vildu ná honum, enda sögðu þeir, að hann væri frá sér.

    3:22 Og fræðimennirnir, er komnir voru ofan frá Jerúsalem, sögðu: ,,Beelsebúl er í honum. Með fulltingi höfðingja illra anda rekur hann út illu andana.``

    3:23 En Jesús kallaði þá til sín og mælti við þá í líkingum: ,,Hvernig getur Satan rekið Satan út?

    3:24 Verði ríki sjálfu sér sundurþykkt, fær það ríki eigi staðist,

    3:25 og verði heimili sjálfu sér sundurþykkt, fær það heimili eigi staðist.

    3:26 Sé nú Satan risinn gegn sjálfum sér og orðinn sér sundurþykkur, fær hann ekki staðist, þá er úti um hann.

    3:27 Enginn getur brotist inn í hús hins sterka og rænt föngum hans, nema hann bindi áður hinn sterka, þá getur hann rænt hús hans.

    3:28 Sannlega segi ég yður: Allt verður mannanna börnum fyrirgefið, allar syndir þeirra og lastmælin, hve mjög sem þeir kunna að lastmæla,

    3:29 en sá sem lastmælir gegn heilögum anda, fær eigi fyrirgefningu um aldur, hann er sekur um eilífa synd.``

    3:30 En þeir höfðu sagt: ,,Óhreinn andi er í honum.``

    3:31 Nú koma móðir hans og bræður, standa úti og gera honum orð að koma.

    3:32 Mikill fjöldi sat í kringum hann, og var honum sagt: ,,Móðir þín, bræður og systur eru hér úti og spyrja eftir þér.``

    3:33 Hann svarar þeim: ,,Hver er móðir mín og bræður?``

    3:34 Og hann leit á þá, er kringum hann sátu, og segir: ,,Hér er móðir mín og bræður mínir!

    3:35 Hver, sem gjörir vilja Guðs, sá er bróðir minn, systir og móðir.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine