Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MARK 4

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    4:1 Aftur tók hann að kenna við vatnið. Svo mikill mannfjöldi safnaðist að honum, að hann varð að stíga í bát og sitja þar, úti á vatninu. En allt fólkið var á landi við vatnið.

    4:2 Hann kenndi þeim margt í dæmisögum og sagði við þá:

    4:3 ,,Hlýðið á! Sáðmaður gekk út að sá,

    4:4 og þá er hann sáði, féll sumt hjá götunni, og fuglar komu og átu það upp.

    4:5 Sumt féll í grýtta jörð, þar sem var lítill jarðvegur, og það rann skjótt upp, því það hafði ekki djúpa jörð.

    4:6 En er sól hækkaði, visnaði það, og sökum þess að það hafði ekki rætur, skrælnaði það.

    4:7 Og sumt féll meðal þyrna, og þyrnarnir uxu og kæfðu það, og það bar ekki ávöxt.

    4:8 En sumt féll í góða jörð, kom upp, óx og bar ávöxt, það gaf þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan ávöxt.``

    4:9 Og hann sagði: ,,Hver sem eyru hefur að heyra, hann heyri!``

    4:10 Þegar hann var orðinn einn, spurðu þeir tólf og hinir, sem með honum voru, um dæmisögurnar.

    4:11 Hann svaraði þeim: ,,Yður er gefinn leyndardómur Guðs ríkis. Hinir, sem fyrir utan eru, fá allt í dæmisögum,

    4:12 að sjáandi sjái þeir og skynji ekki, heyrandi heyri þeir og skilji ekki, svo þeir snúi sér eigi og verði fyrirgefið.``

    4:13 Og hann segir við þá: ,,Þér skiljið eigi þessa dæmisögu. Hvernig fáið þér þá skilið nokkra dæmisögu?

    4:14 Sáðmaðurinn sáir orðinu.

    4:15 Það hjá götunni, þar sem orðinu er sáð, merkir þá sem heyra, en Satan kemur jafnskjótt og tekur burt orðið, sem í þá var sáð.

    4:16 Eins það sem sáð var í grýtta jörð, það merkir þá sem taka orðinu með fögnuði, um leið og þeir heyra það,

    4:17 en hafa enga rótfestu. Þeir eru hvikulir og er þrenging verður síðan eða ofsókn vegna orðsins, bregðast þeir þegar.

    4:18 Öðru var sáð meðal þyrna. Það merkir þá sem heyra orðið,

    4:19 en áhyggjur heimsins, tál auðæfanna og aðrar girndir koma til og kefja orðið, svo það ber engan ávöxt.

    4:20 Hitt, sem sáð var í góða jörð, merkir þá sem heyra orðið, taka við því og bera þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan ávöxt.``

    4:21 Og hann sagði við þá: ,,Ekki bera menn ljós inn og setja það undir mæliker eða bekk? Er það ekki sett á ljósastiku?

    4:22 Því að ekkert er hulið, að það verði eigi gjört opinbert, né leynt, að það komi ekki í ljós.

    4:23 Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri!``

    4:24 Enn sagði hann við þá: ,,Gætið að, hvað þér heyrið. Með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða og við yður bætt.

    4:25 Því að þeim, sem hefur, mun gefið verða, og frá þeim, sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það sem hann hefur.``

    4:26 Þá sagði hann: ,,Svo er Guðs ríki sem maður sái sæði í jörð.

    4:27 Hann sefur síðan og vakir, nætur og daga, en sæðið grær og vex, hann veit ekki með hverjum hætti.

    4:28 Sjálfkrafa ber jörðin ávöxt, fyrst stráið, þá axið og síðan fullvaxið hveiti í axinu.

    4:29 En þá er ávöxturinn er fullþroska, lætur hann þegar bera út sigðina, því að uppskeran er komin.``

    4:30 Og hann sagði: ,,Við hvað eigum vér að líkja Guðs ríki? Með hvaða dæmi eigum vér að lýsa því?

    4:31 Líkt er það mustarðskorni. Þegar því er sáð í mold, er það smærra hverju sáðkorni á jörðu.

    4:32 En eftir að því er sáð tekur það að spretta, það verður öllum jurtum meira og fær svo stórar greinar, að fuglar himins geta hreiðrað sig í skugga þess.``

    4:33 Í mörgum slíkum dæmisögum flutti hann þeim orðið, svo sem þeir gátu numið,

    4:34 og án dæmisagna talaði hann ekki til þeirra, en fyrir lærisveinum sínum skýrði hann allt, þegar þeir voru einir.

    4:35 Að kvöldi sama dags sagði hann við þá: ,,Förum yfir um!``

    4:36 Þeir skildu þá við mannfjöldann og tóku hann með sér, þar sem hann var, í bátnum, en aðrir bátar voru með honum.

    4:37 Þá brast á stormhrina mikil, og féllu öldurnar inn í bátinn, svo við lá, að hann fyllti.

    4:38 Jesús var í skutnum og svaf á kodda. Þeir vöktu hann og sögðu við hann: ,,Meistari, hirðir þú ekki um, að vér förumst?``

    4:39 Hann vaknaði, hastaði á vindinn og sagði við vatnið: ,,Þegi þú, haf hljótt um þig!`` Þá lægði vindinn og gerði stillilogn.

    4:40 Og hann sagði við þá: ,,Hví eruð þér hræddir, hafið þér enn enga trú?``

    4:41 En þeir urðu miklum ótta lostnir og sögðu hver við annan: ,,Hver er þessi? Jafnvel vindur og vatn hlýða honum.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine