Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MARK 8

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    8:1 Um þessar mundir bar enn svo við, að mikill mannfjöldi var saman kominn og hafði ekkert til matar. Jesús kallar þá til sín lærisveinana og segir við þá:

    8:2 ,,Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Þeir hafa nú hjá mér verið þrjá daga og hafa ekkert til matar.

    8:3 Láti ég þá fara fastandi heim til sín, örmagnast þeir á leiðinni, en sumir þeirra eru langt að.``

    8:4 Þá svöruðu lærisveinarnir: ,,Hvar er hægt að fá brauð til að metta þetta fólk hér í óbyggðum?``

    8:5 Hann spurði þá: ,,Hve mörg brauð hafið þér?`` Þeir sögðu: ,,Sjö.``

    8:6 Þá bauð hann fólkinu að setjast á jörðina, tók brauðin sjö, gjörði þakkir og braut þau og gaf lærisveinum sínum, að þeir bæru þau fram. En þeir báru þau fram fyrir fólkið.

    8:7 Þeir höfðu og fáeina smáfiska. Hann þakkaði Guði og bauð, að einnig þeir skyldu fram bornir.

    8:8 Menn neyttu og urðu mettir. Síðan tóku þeir saman leifarnar, sjö körfur.

    8:9 En þeir voru um fjórar þúsundir. Síðan lét hann þá fara.

    8:10 Og hann sté þegar í bátinn með lærisveinum sínum og kom í Dalmanútabyggðir.

    8:11 Þangað komu farísear og tóku að þrátta við hann, þeir vildu freista hans og kröfðu hann um tákn af himni.

    8:12 Hann andvarpaði þungan innra með sér og mælti: ,,Hví heimtar þessi kynslóð tákn? Sannlega segi ég yður: Tákn verður alls ekki gefið þessari kynslóð.``

    8:13 Hann skildi síðan við þá, sté aftur í bátinn og fór yfir um.

    8:14 Þeir höfðu gleymt að taka brauð, höfðu ekki nema eitt brauð með sér í bátnum.

    8:15 Jesús áminnti þá og sagði: ,,Gætið yðar, varist súrdeig farísea og súrdeig Heródesar.``

    8:16 En þeir ræddu sín á milli, að þeir hefðu ekki brauð.

    8:17 Hann varð þess vís og segir við þá: ,,Hvað eruð þér að tala um, að þér hafið ekki brauð? Skynjið þér ekki enn né skiljið? Eru hjörtu yðar forhert?

    8:18 Þér hafið augu, sjáið þér ekki? Þér hafið eyru, heyrið þér ekki? Eða munið þér ekki?

    8:19 Þegar ég braut brauðin fimm handa fimm þúsundum, hve margar körfur fullar af brauðbitum tókuð þér saman?`` Þeir svara honum: ,,Tólf.``

    8:20 ,,Eða brauðin sjö handa fjórum þúsundunum, hve margar körfur fullar af brauðbitum tókuð þér þá saman?`` Þeir svara: ,,Sjö.``

    8:21 Og hann sagði við þá: ,,Skiljið þér ekki enn?``

    8:22 Þeir koma nú til Betsaídu. Þar færa menn til Jesú blindan mann og biðja, að hann snerti hann.

    8:23 Hann tók í hönd hins blinda, leiddi hann út úr þorpinu, skyrpti í augu hans, lagði hendur yfir hann og spurði: ,,Sér þú nokkuð?``

    8:24 Hann leit upp og mælti: ,,Ég sé menn, ég greini þá líkt og tré, þeir ganga.``

    8:25 Þá lagði hann aftur hendur yfir augu hans, og nú sá hann skýrt, varð albata og heilskyggn á allt.

    8:26 Jesús sendi hann síðan heim til sín og sagði: ,,Inn í þorpið máttu ekki fara.``

    8:27 Jesús fór nú ásamt lærisveinum sínum til þorpanna hjá Sesareu Filippí. Á leiðinni spurði hann lærisveina sína: ,,Hvern segja menn mig vera?``

    8:28 Þeir svöruðu honum: ,,Jóhannes skírara, aðrir Elía og aðrir einn af spámönnunum.``

    8:29 Og hann spurði þá: ,,En þér, hvern segið þér mig vera?`` Pétur svaraði honum: ,,Þú ert Kristur.``

    8:30 Og hann lagði ríkt á við þá að segja engum frá sér.

    8:31 Þá tók hann að kenna þeim: ,,Mannssonurinn á margt að líða, honum mun útskúfað verða af öldungum, æðstu prestum og fræðimönnum, hann mun líflátinn, en upp rísa eftir þrjá daga.``

    8:32 Þetta sagði hann berum orðum. En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann.

    8:33 Jesús sneri sér við, leit til lærisveina sinna, ávítaði Pétur og sagði: ,,Vík frá mér, Satan, eigi hugsar þú um það, sem Guðs er, heldur það, sem manna er.``

    8:34 Og hann kallaði til sín mannfjöldann ásamt lærisveinum sínum og sagði við þá: ,,Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér.

    8:35 Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu vegna mín og fagnaðarerindisins, mun bjarga því.

    8:36 Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn, en fyrirgjöra sálu sinni?

    8:37 Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína?

    8:38 En þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð hjá þessari ótrúu, syndugu kynslóð, mun Mannssonurinn blygðast sín fyrir, er hann kemur í dýrð föður síns með heilögum englum.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine