Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MARK 9

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    9:1 Og hann sagði við þá: ,,Sannlega segi ég yður: Nokkrir þeirra, sem hér standa, munu eigi dauða bíða, fyrr en þeir sjá Guðs ríki komið með krafti.``

    9:2 Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes og fer með þá upp á hátt fjall, að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra,

    9:3 og klæði hans urðu fannhvít og skínandi, og fær enginn bleikir á jörðu svo hvítt gjört.

    9:4 Og þeim birtist Elía ásamt Móse, og voru þeir á tali við Jesú.

    9:5 Þá tekur Pétur til máls og segir við Jesú: ,,Rabbí, gott er, að vér erum hér. Gjörum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.``

    9:6 Hann vissi ekki, hvað hann átti að segja, enda urðu þeir mjög skelfdir.

    9:7 Þá kom ský og skyggði yfir þá, og rödd kom úr skýinu: ,,Þessi er minn elskaði sonur, hlýðið á hann!``

    9:8 Og snögglega, þegar þeir litu í kring, sáu þeir engan framar hjá sér nema Jesú einan.

    9:9 Á leiðinni ofan fjallið bannaði hann þeim að segja nokkrum frá því, er þeir höfðu séð, fyrr en Mannssonurinn væri risinn upp frá dauðum.

    9:10 Þeir festu orðin í minni og ræddu um, hvað væri að rísa upp frá dauðum.

    9:11 Og þeir spurðu hann: ,,Hví segja fræðimennirnir, að Elía eigi fyrst að koma?``

    9:12 Hann svaraði þeim: ,,Víst kemur Elía fyrst og færir allt í lag. En hvernig er ritað um Mannssoninn? Á hann ekki margt að líða og smáður verða?

    9:13 En ég segi yður: Elía er kominn, og þeir gjörðu honum allt, sem þeir vildu, eins og ritað er um hann.``

    9:14 Þegar þeir komu til lærisveinanna, sáu þeir mannfjölda mikinn kringum þá og fræðimenn að þrátta við þá.

    9:15 En um leið og fólkið sá hann, sló þegar felmtri á alla, og þeir hlupu til og heilsuðu honum.

    9:16 Hann spurði þá: ,,Um hvað eruð þér að þrátta við þá?``

    9:17 En einn úr mannfjöldanum svaraði honum: ,,Meistari, ég færði til þín son minn, sem málleysis andi er í.

    9:18 Hvar sem andinn grípur hann, slengir hann honum flötum, og hann froðufellir, gnístir tönnum og stirðnar upp. Ég bað lærisveina þína að reka hann út, en þeir gátu það ekki.``

    9:19 Jesús svarar þeim: ,,Ó, þú vantrúa kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá yður? Hversu lengi á ég að umbera yður? Færið hann til mín.``

    9:20 Þeir færðu hann þá til Jesú, en um leið og andinn sá hann, teygði hann drenginn ákaflega, hann féll til jarðar, veltist um og froðufelldi.

    9:21 Jesús spurði þá föður hans: ,,Hve lengi hefur honum liðið svo?`` Hann sagði: ,,Frá bernsku.

    9:22 Og oft hefur hann kastað honum bæði í eld og vatn til að fyrirfara honum. En ef þú getur nokkuð, þá sjá aumur á okkur og hjálpa okkur.``

    9:23 Jesús sagði við hann: ,,Ef þú getur! Sá getur allt sem trúir.``

    9:24 Jafnskjótt hrópaði faðir sveinsins: ,,Ég trúi, hjálpa þú vantrú minni.``

    9:25 Nú sér Jesús, að mannfjöldi þyrpist að. Þá hastar hann á óhreina andann og segir: ,,Þú dumbi, daufi andi, ég býð þér, far út af honum, og kom aldrei framar í hann.``

    9:26 Þá æpti andinn, teygði hann mjög og fór, en sveinninn varð sem nár, svo að flestir sögðu: ,,Hann er dáinn.``

    9:27 En Jesús tók í hönd honum og reisti hann upp, og hann stóð á fætur.

    9:28 Þegar Jesús var kominn inn og orðinn einn með lærisveinum sínum, spurðu þeir hann: ,,Hví gátum vér ekki rekið hann út?``

    9:29 Hann mælti: ,,Þetta kyn verður eigi út rekið nema með bæn.``

    9:30 Þeir héldu nú brott þaðan og fóru um Galíleu, en hann vildi ekki, að neinn vissi það,

    9:31 því að hann var að kenna lærisveinum sínum. Hann sagði þeim: ,,Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur, og þeir munu lífláta hann, en þá er hann hefur líflátinn verið, mun hann upp rísa eftir þrjá daga.``

    9:32 En þeir skildu ekki það sem hann sagði og þorðu ekki að spyrja hann.

    9:33 Þeir komu til Kapernaum. Þegar hann var kominn inn, spurði hann þá: ,,Hvað voruð þér að ræða á leiðinni?``

    9:34 En þeir þögðu. Þeir höfðu verið að ræða það sín á milli á leiðinni, hver væri mestur.

    9:35 Hann settist niður, kallaði á þá tólf og sagði við þá: ,,Hver sem vill vera fremstur, sé síðastur allra og þjónn allra.``

    9:36 Og hann tók lítið barn, setti það meðal þeirra, tók það sér í faðm og sagði við þá:

    9:37 ,,Hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni, tekur við mér, og hver sem tekur við mér, tekur ekki aðeins við mér, heldur og við þeim er sendi mig.``

    9:38 Jóhannes sagði við hann: ,,Meistari, vér sáum mann reka út illa anda í þínu nafni, og vildum vér varna honum þess, af því að hann fylgdi oss ekki.``

    9:39 Jesús sagði: ,,Varnið honum þess ekki, því að enginn er sá, að hann gjöri kraftaverk í mínu nafni og geti þegar á eftir talað illa um mig.

    9:40 Sá sem er ekki á móti oss, er með oss.

    9:41 Hver sem gefur yður bikar vatns að drekka, vegna þess að þér eruð Krists, sannlega segi ég yður, hann mun alls ekki missa af launum sínum.

    9:42 Hverjum þeim, sem tælir til falls einn af þessum smælingjum, sem trúa, væri betra að vera varpað í hafið með mylnustein um hálsinn.

    9:43 Ef hönd þín tælir þig til falls, þá sníð hana af. Betra er þér handarvana inn að ganga til lífsins en hafa báðar hendur og fara til helvítis, í hinn óslökkvanda eld. [

    9:44 Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.]

    9:45 Ef fótur þinn tælir þig til falls, þá sníð hann af. Betra er þér höltum inn að ganga til lífsins en hafa báða fætur og verða kastað í helvíti. [

    9:46 Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.]

    9:47 Og ef auga þitt tælir þig til falls, þá ríf það úr. Betra er þér eineygðum inn að ganga í Guðs ríki en hafa bæði augu og verða kastað í helvíti,

    9:48 þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.

    9:49 Sérhver mun eldi saltast.

    9:50 Saltið er gott, en ef saltið missir seltuna, með hverju viljið þér þá krydda það? Hafið salt í sjálfum yður, og haldið frið yðar á milli.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine