Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MATTHEW 15

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    15:1 Nú komu til Jesú farísear og fræðimenn frá Jerúsalem og sögðu:

    15:2 ,,Hvers vegna brjóta lærisveinar þínir erfikenning forfeðranna? Þeir taka ekki handlaugar, áður en þeir neyta matar.``

    15:3 Hann svaraði þeim: ,,Hvers vegna brjótið þér sjálfir boðorð Guðs sakir erfikenningar yðar?

    15:4 Guð hefur sagt: ,Heiðra föður þinn og móður,` og: ,Hver sem formælir föður eða móður, skal dauða deyja.`

    15:5 En þér segið: Hver sem segir við föður sinn eða móður: ,Það sem þér hefði getað orðið til styrktar frá mér, er musterisfé,`

    15:6 hann á ekki að heiðra föður sinn [eða móður]. Þér ógildið orð Guðs með erfikenning yðar.

    15:7 Hræsnarar, sannspár var Jesaja um yður, er hann segir:

    15:8 Lýður þessi heiðrar mig með vörunum, en hjarta þeirra er langt frá mér.

    15:9 Til einskis dýrka þeir mig, er þeir kenna þá lærdóma, sem eru mannasetningar einar.``

    15:10 Og hann kallaði til sín mannfjöldann og sagði: ,,Heyrið og skiljið.

    15:11 Ekki saurgar það manninn, sem inn fer í munninn, hitt saurgar manninn, sem út fer af munni.``

    15:12 Þá komu lærisveinar hans og sögðu við hann: ,,Veistu, að farísearnir hneyksluðust, þegar þeir heyrðu orð þín?``

    15:13 Hann svaraði: ,,Sérhver jurt, sem faðir minn himneskur hefur eigi gróðursett, mun upprætt verða.

    15:14 Látið þá eiga sig! Þeir eru blindir, leiðtogar blindra. Ef blindur leiðir blindan, falla báðir í gryfju.``

    15:15 Þá sagði Pétur við hann: ,,Skýrðu fyrir oss líkinguna.``

    15:16 Hann svaraði: ,,Eruð þér líka skilningslausir ennþá?

    15:17 Skiljið þér ekki, að allt sem inn kemur í munninn, fer í magann og lendir síðan í safnþrónni?

    15:18 En það sem út fer af munni, kemur frá hjartanu. Og slíkt saurgar manninn.

    15:19 Því að frá hjartanu koma illar hugsanir, manndráp, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, ljúgvitni, lastmælgi.

    15:20 Þetta er það, sem saurgar manninn. En að eta með óþvegnum höndum saurgar engan mann.``

    15:21 Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar.

    15:22 Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: ,,Miskunna þú mér, herra, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af illum anda.``

    15:23 En hann svaraði henni engu orði. Lærisveinar hans komu þá og báðu hann: ,,Láttu hana fara, hún eltir oss með hrópum.``

    15:24 Hann mælti: ,,Ég er ekki sendur nema til týndra sauða af Ísraelsætt.``

    15:25 Konan kom, laut honum og sagði: ,,Herra, hjálpa þú mér!``

    15:26 Hann svaraði: ,,Ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.``

    15:27 Hún sagði: ,,Satt er það, herra, þó eta hundarnir mola þá, sem falla af borðum húsbænda þeirra.``

    15:28 Þá mælti Jesús við hana: ,,Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt.`` Og dóttir hennar varð heil frá þeirri stundu.

    15:29 Þaðan fór Jesús og kom að Galíleuvatni. Og hann gekk upp á fjall og settist þar.

    15:30 Menn komu til hans hópum saman og höfðu með sér halta menn og blinda, fatlaða, mállausa og marga aðra og lögðu þá fyrir fætur hans, og hann læknaði þá.

    15:31 Fólkið undraðist, þegar það sá mállausa mæla, fatlaða heila, halta ganga og blinda sjá. Og þeir lofuðu Guð Ísraels.

    15:32 Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði: ,,Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Þeir hafa nú hjá mér verið þrjá daga og hafa ekkert til matar. Ég vil ekki láta þá fara fastandi frá mér, þeir gætu örmagnast á leiðinni.``

    15:33 Lærisveinarnir sögðu: ,,Hvar fáum vér nóg brauð til að metta allt þetta fólk hér í óbyggðum?``

    15:34 Jesús spyr: ,,Hve mörg brauð hafið þér?`` Þeir svara: ,,Sjö, og fáeina smáfiska.``

    15:35 Þá bauð hann fólkinu að setjast á jörðina,

    15:36 tók brauðin sjö og fiskana, gjörði þakkir og braut þau og gaf lærisveinunum, en lærisveinarnir fólkinu.

    15:37 Allir neyttu og urðu mettir. Síðan tóku þeir saman leifarnar, sjö körfur fullar.

    15:38 En þeir, sem neytt höfðu, voru fjórar þúsundir karlmanna auk kvenna og barna.

    15:39 Síðan lét hann fólkið fara, sté í bátinn og kom í Magadanbyggðir.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine