Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MATTHEW 19

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    19:1 Þegar Jesús hafði mælt þessum orðum, fór hann úr Galíleu og hélt til byggða Júdeu handan Jórdanar.

    19:2 Fjöldi manna fylgdi honum, og þar læknaði hann þá.

    19:3 Þá komu til hans farísear og vildu freista hans. Þeir spurðu: ,,Leyfist manni að skilja við konu sína fyrir hvaða sök sem er?``

    19:4 Hann svaraði: ,,Hafið þér eigi lesið, að skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu

    19:5 og sagði: ,Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og bindast konu sinni, og þau tvö skulu verða einn maður.`

    19:6 Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman, má maður eigi sundur skilja.``

    19:7 Þeir segja við hann: ,,Hvers vegna bauð þá Móse að gefa konu skilnaðarbréf og skilja svo við hana?``

    19:8 Hann svarar: ,,Vegna harðúðar hjartna yðar leyfði Móse yður að skilja við konur yðar, en frá upphafi var þetta eigi þannig.

    19:9 Ég segi yður: Sá sem skilur við konu sína nema sakir hórdóms og kvænist annarri, drýgir hór.``

    19:10 Þá sögðu lærisveinar hans: ,,Fyrst svo er háttað stöðu karls gagnvart konu, þá er ekki vænlegt að kvænast.``

    19:11 Hann svaraði þeim: ,,Þetta er ekki á allra færi, heldur þeirra einna, sem það er gefið.

    19:12 Sumir eru vanhæfir til hjúskapar frá móðurlífi, sumir eru vanhæfir gjörðir af manna völdum, sumir hafa sjálfir gjört sig vanhæfa vegna himnaríkis. Sá höndli, sem höndlað fær.``

    19:13 Þá færðu menn til hans börn, að hann legði hendur yfir þau og bæði fyrir þeim, en lærisveinar hans átöldu þá.

    19:14 En Jesús sagði: ,,Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er himnaríki.``

    19:15 Og hann lagði hendur yfir þau og fór þaðan.

    19:16 Þá kom til hans maður og spurði: ,,Meistari, hvað gott á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?``

    19:17 Jesús sagði við hann: ,,Hví spyr þú mig um hið góða? Einn er sá hinn góði. Ef þú vilt inn ganga til lífsins, þá haltu boðorðin.``

    19:18 Hann spurði: ,,Hver?`` Jesús sagði: ,,Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni,

    19:19 heiðra föður þinn og móður, og þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.``

    19:20 Þá sagði ungi maðurinn: ,,Alls þessa hef ég gætt. Hvers er mér enn vant?``

    19:21 Jesús sagði við hann: ,,Ef þú vilt vera fullkominn, skaltu fara, selja eigur þínar og gefa fátækum, og munt þú fjársjóð eiga á himnum. Kom síðan, og fylg mér.``

    19:22 Þegar ungi maðurinn heyrði þessi orð, fór hann brott hryggur, enda átti hann miklar eignir.

    19:23 En Jesús sagði við lærisveina sína: ,,Sannlega segi ég yður: Torvelt verður auðmanni inn að ganga í himnaríki.

    19:24 Enn segi ég: Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.``

    19:25 Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta, urðu þeir steini lostnir og sögðu: ,,Hver getur þá orðið hólpinn?``

    19:26 Jesús horfði á þá og sagði: ,,Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en Guð megnar allt.``

    19:27 Þá sagði Pétur við hann: ,,Vér yfirgáfum allt og fylgdum þér. Hvað munum vér hljóta?``

    19:28 Jesús sagði við þá: ,,Sannlega segi ég yður: Þegar allt er orðið endurfætt og Mannssonurinn situr í dýrðarhásæti sínu, munuð þér, sem fylgið mér, einnig sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.

    19:29 Og hver sem hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, föður eða móður, börn eða akra sakir nafns míns, mun fá margfalt aftur og öðlast eilíft líf.

    19:30 En margir hinir fyrstu munu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine