Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MATTHEW 20

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    20:1 Líkt er um himnaríki og húsbónda einn, sem gekk út árla morguns að ráða verkamenn í víngarð sinn.

    20:2 Hann samdi við verkamennina um denar í daglaun og sendi þá í víngarð sinn.

    20:3 Síðan gekk hann út um dagmál og sá aðra menn standa á torginu iðjulausa.

    20:4 Hann sagði við þá: ,Farið þér einnig í víngarðinn, og ég mun greiða yður sanngjörn laun.`

    20:5 Þeir fóru. Aftur gekk hann út um hádegi og nón og gjörði sem fyrr.

    20:6 Og síðdegis fór hann enn út og sá menn standa þar. Hann spyr þá: ,Hví hímið þér hér iðjulausir allan daginn?`

    20:7 Þeir svara: ,Enginn hefur ráðið oss.` Hann segir við þá: ,Farið þér einnig í víngarðinn.`

    20:8 Þegar kvöld var komið, sagði eigandi víngarðsins við verkstjóra sinn: ,Kalla þú á verkamennina og greið þeim kaupið. Þú skalt byrja á þeim síðustu og enda á þeim fyrstu.`

    20:9 Nú komu þeir, sem ráðnir voru síðdegis, og fengu hver sinn denar.

    20:10 Þegar þeir fyrstu komu, bjuggust þeir við að fá meira, en fengu sinn denarinn hver.

    20:11 Þeir tóku við honum og fóru að mögla gegn húsbónda sínum.

    20:12 Þeir sögðu: ,Þessir síðustu hafa unnið aðeins eina stund, og þú gjörir þá jafna oss, er höfum borið hita og þunga dagsins.`

    20:13 Hann sagði þá við einn þeirra: ,Vinur, ekki gjöri ég þér rangt til, sömdum við ekki um einn denar?

    20:14 Taktu þitt og farðu leiðar þinnar. Ég vil gjalda þessum síðasta eins og þér.

    20:15 Er ég ekki sjálfur fjár míns ráðandi? Eða sérðu ofsjónum yfir því, að ég er góðgjarn?`

    20:16 Þannig verða hinir síðustu fyrstir og hinir fyrstu síðastir.``

    20:17 Jesús hélt nú upp til Jerúsalem, og á leiðinni tók hann þá tólf afsíðis og sagði við þá:

    20:18 ,,Nú förum vér upp til Jerúsalem. Þar verður Mannssonurinn framseldur æðstu prestum og fræðimönnum. Þeir munu dæma hann til dauða

    20:19 og framselja hann heiðingjum, að þeir hæði hann, húðstrýki og krossfesti. En á þriðja degi mun hann upp rísa.``

    20:20 Þá kom til hans móðir þeirra Sebedeussona með sonum sínum, laut honum og vildi biðja hann bónar.

    20:21 Hann spyr hana: ,,Hvað viltu?`` Hún segir: ,,Lát þú þessa tvo syni mína sitja þér við hlið í ríki þínu, annan til hægri handar þér og hinn til vinstri.``

    20:22 Jesús svarar: ,,Þið vitið ekki, hvers þið biðjið. Getið þið drukkið þann kaleik, sem ég á að drekka?`` Þeir segja við hann: ,,Það getum við.``

    20:23 Hann segir við þá: ,,Kaleik minn munuð þið drekka. En mitt er ekki að veita, hver situr mér til hægri handar eða vinstri. Það veitist þeim, sem það er fyrirbúið af föður mínum.``

    20:24 Þegar hinir tíu heyrðu þetta, gramdist þeim við bræðurna tvo.

    20:25 En Jesús kallaði þá til sín og mælti: ,,Þér vitið, að þeir, sem ráða fyrir þjóðum, drottna yfir þeim, og höfðingjar láta menn kenna á valdi sínu.

    20:26 En eigi sé svo meðal yðar, heldur sé sá, sem mikill vill verða meðal yðar, þjónn yðar.

    20:27 Og sá er vill fremstur vera meðal yðar, sé þræll yðar,

    20:28 eins og Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga.``

    20:29 Þegar þeir fóru frá Jeríkó, fylgdi honum mikill mannfjöldi.

    20:30 Tveir menn blindir sátu þar við veginn. Þegar þeir heyrðu, að þar færi Jesús, hrópuðu þeir: ,,Herra, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!``

    20:31 Fólkið hastaði á þá, að þeir þegðu, en þeir hrópuðu því meir: ,,Herra, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!``

    20:32 Jesús nam staðar, kallaði á þá og sagði: ,,Hvað viljið þið að ég gjöri fyrir ykkur?``

    20:33 Þeir mæltu: ,,Herra, lát augu okkar opnast.``

    20:34 Jesús kenndi í brjósti um þá og snart augu þeirra. Jafnskjótt fengu þeir sjónina og fylgdu honum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine