Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MATTHEW 24

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    24:1 Jesús gekk út úr helgidóminum og hélt brott. Þá komu lærisveinar hans og vildu sýna honum byggingar helgidómsins.

    24:2 Hann sagði við þá: ,,Þér sjáið allt þetta? Sannlega segi ég yður, hér mun ekki eftir látinn steinn yfir steini, er eigi sé niður brotinn.``

    24:3 Þá er hann sat á Olíufjallinu, gengu lærisveinarnir til hans og spurðu hann einslega: ,,Seg þú oss, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn komu þinnar og endaloka veraldar?``

    24:4 Jesús svaraði þeim: ,,Varist að láta nokkurn leiða yður í villu.

    24:5 Margir munu koma í mínu nafni og segja: ,Ég er Kristur!` og marga munu þeir leiða í villu.

    24:6 Þér munuð spyrja hernað og ófriðartíðindi. Gætið þess, að skelfast ekki. Þetta á að verða, en endirinn er ekki þar með kominn.

    24:7 Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verður hungur og landskjálftar á ýmsum stöðum.

    24:8 Allt þetta er upphaf fæðingarhríðanna.

    24:9 Þá munu menn framselja yður til pyndinga og taka af lífi, og allar þjóðir munu hata yður vegna nafns míns.

    24:10 Margir munu þá falla frá og framselja hver annan og hata.

    24:11 Fram munu koma margir falsspámenn og leiða marga í villu.

    24:12 Og vegna þess að lögleysi magnast, mun kærleikur flestra kólna.

    24:13 En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða.

    24:14 Og þetta fagnaðarerindi um ríkið verður prédikað um alla heimsbyggðina öllum þjóðum til vitnisburðar. Og þá mun endirinn koma.

    24:15 Þegar þér sjáið viðurstyggð eyðingarinnar, sem Daníel spámaður talar um, standa á helgum stað,`` _ lesandinn athugi það _

    24:16 ,,þá flýi þeir, sem í Júdeu eru, til fjalla.

    24:17 Sá sem er uppi á þaki, fari ekki ofan að sækja neitt í hús sitt.

    24:18 Og sá sem er á akri, skal ekki hverfa aftur að taka yfirhöfn sína.

    24:19 Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum.

    24:20 Biðjið, að flótti yðar verði ekki um vetur eða á hvíldardegi.

    24:21 Þá verður sú mikla þrenging, sem engin hefur þvílík verið frá upphafi heims allt til þessa og mun aldrei verða.

    24:22 Ef dagar þessir hefðu ekki verið styttir, kæmist enginn maður af. En vegna hinna útvöldu munu þeir dagar styttir verða.

    24:23 Ef einhver segir þá við yður: ,Hér er Kristur` eða ,þar`, þá trúið því ekki.

    24:24 Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn, og þeir munu gjöra stór tákn og undur til að leiða afvega jafnvel hina útvöldu, ef orðið gæti.

    24:25 Sjá, ég hef sagt yður það fyrir.

    24:26 Ef þeir segja við yður: ,Sjá, hann er í óbyggðum,` þá farið ekki þangað. Ef þeir segja: ,Sjá, hann er í leynum,` þá trúið því ekki.

    24:27 Eins og elding sem leiftrar frá austri til vesturs, svo mun verða koma Mannssonarins.

    24:28 Þar munu ernirnir safnast, sem hræið er.

    24:29 En þegar eftir þrenging þessara daga mun sólin sortna og tunglið hætta að skína. Stjörnurnar munu hrapa af himni og kraftar himnanna bifast.

    24:30 Þá mun tákn Mannssonarins birtast á himni, og allar kynkvíslir jarðarinnar hefja kveinstafi. Og menn munu sjá Mannssoninn koma á skýjum himins með mætti og mikilli dýrð.

    24:31 Hann mun senda út engla sína með hvellum lúðri, og þeir munu safna hans útvöldu úr áttunum fjórum, himinskauta milli.

    24:32 Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér, að sumar er í nánd.

    24:33 Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið allt þetta, að hann er í nánd, fyrir dyrum.

    24:34 Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt þetta er komið fram.

    24:35 Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða.

    24:36 En þann dag og stund veit enginn, hvorki englar á himnum né sonurinn, enginn nema faðirinn einn.

    24:37 Eins og var á dögum Nóa, svo mun verða við komu Mannssonarins.

    24:38 Dagana fyrir flóðið átu menn og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags, er Nói gekk í örkina.

    24:39 Og þeir vissu ekki, fyrr en flóðið kom og hreif þá alla burt. Eins verður við komu Mannssonarins.

    24:40 Þá verða tveir á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.

    24:41 Tvær munu mala á kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin.

    24:42 Vakið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur.

    24:43 Það skiljið þér, að húsráðandi vekti og léti ekki brjótast inn í hús sitt, ef hann vissi á hvaða stundu nætur þjófurinn kæmi.

    24:44 Verið þér og viðbúnir, því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér ætlið eigi.

    24:45 Hver er sá trúi og hyggni þjónn, sem húsbóndinn hefur sett yfir hjú sín að gefa þeim mat á réttum tíma?

    24:46 Sæll er sá þjónn, er húsbóndinn finnur breyta svo, er hann kemur.

    24:47 Sannlega segi ég yður: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar.

    24:48 En ef illur þjónn segir í hjarta sínu: ,Húsbónda mínum dvelst,`

    24:49 og hann tekur að berja samþjóna sína og eta og drekka með svöllurum,

    24:50 þá mun húsbóndi þess þjóns koma á þeim degi, sem hann væntir ekki, á þeirri stundu, sem hann veit ekki,

    24:51 höggva hann og láta hann fá hlut með hræsnurum. Þar verður grátur og gnístran tanna.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine