Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MATTHEW 28

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    28:1 Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina.

    28:2 Þá varð landskjálfti mikill, því engill Drottins sté niður af himni, kom og velti steininum og settist á hann.

    28:3 Hann var sem elding ásýndum og klæðin hvít sem snjór.

    28:4 Varðmennirnir skulfu af hræðslu við hann og urðu sem örendir.

    28:5 En engillinn mælti við konurnar: ,,Þér skuluð eigi óttast. Ég veit, að þér leitið að Jesú hinum krossfesta.

    28:6 Hann er ekki hér. Hann er upp risinn, eins og hann sagði. Komið og sjáið staðinn, þar sem hann lá.

    28:7 Farið í skyndi og segið lærisveinum hans: ,Hann er upp risinn frá dauðum, sjá hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann.` Þetta hef ég sagt yður.``

    28:8 Og þær fóru í skyndi frá gröfinni, með ótta og mikilli gleði, og hlupu að flytja lærisveinum hans boðin.

    28:9 Og sjá, Jesús kemur á móti þeim og segir: ,,Heilar þið!`` En þær komu, féllu fram fyrir honum og föðmuðu fætur hans.

    28:10 Þá segir Jesús við þær: ,,Óttist ekki, farið og segið bræðrum mínum að halda til Galíleu. Þar munu þeir sjá mig.``

    28:11 Meðan þær voru á leiðinni komu nokkrir varðmenn til borgarinnar og sögðu æðstu prestunum allt, sem gjörst hafði.

    28:12 En þeir kvöddu saman öldungana og tóku það ráð með þeim að bera mikið fé á hermennina og mæltu við þá:

    28:13 ,,Segið þetta: ,Lærisveinar hans komu á næturþeli, meðan vér sváfum, og stálu honum.`

    28:14 Og ef þetta berst landshöfðingjanum til eyrna, skulum vér sefa hann, svo að þér getið verið áhyggjulausir.``

    28:15 Þeir tóku við fénu og gjörðu sem þeim var sagt. Þessi sögusögn hefur verið borin út meðal Gyðinga allt til þessa dags.

    28:16 En lærisveinarnir ellefu fóru til Galíleu, til fjallsins, sem Jesús hafði stefnt þeim til.

    28:17 Þar sáu þeir hann og veittu honum lotningu. En sumir voru í vafa.

    28:18 Og Jesús gekk til þeirra, talaði við þá og sagði: ,,Allt vald er mér gefið á himni og jörðu.

    28:19 Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda,

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine