Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MATTHEW 27

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    27:1 Að morgni gjörðu allir æðstu prestarnir og öldungar lýðsins samþykkt gegn Jesú, að hann skyldi af lífi tekinn.

    27:2 Þeir létu binda hann og færa brott og framseldu hann Pílatusi landshöfðingja.

    27:3 Þegar Júdas, sem sveik hann, sá, að hann var dæmdur sekur, iðraðist hann og skilaði æðstu prestunum og öldungunum silfurpeningunum þrjátíu

    27:4 og mælti: ,,Ég drýgði synd, ég sveik saklaust blóð.`` Þeir sögðu: ,,Hvað varðar oss um það? Það er þitt að sjá fyrir því.``

    27:5 Hann fleygði þá silfrinu inn í musterið og hélt brott. Síðan fór hann og hengdi sig.

    27:6 Æðstu prestarnir tóku silfrið og sögðu: ,,Ekki má láta það í guðskistuna, því þetta eru blóðpeningar.``

    27:7 Og þeir urðu ásáttir um að kaupa fyrir þá leirkerasmiðs akurinn til grafreits handa útlendingum.

    27:8 Þess vegna kallast hann enn í dag Blóðreitur.

    27:9 Þá rættist það, sem sagt var fyrir munn Jeremía spámanns: ,,Þeir tóku silfurpeningana þrjátíu, það verð, sem sá var metinn á, er til verðs var lagður af Ísraels sonum,

    27:10 og keyptu fyrir þá leirkerasmiðs akurinn eins og Drottinn hafði fyrir mig lagt.``

    27:11 Jesús kom nú fyrir landshöfðingjann. Landshöfðinginn spurði hann: ,,Ert þú konungur Gyðinga?`` Jesús svaraði: ,,Þú segir það.``

    27:12 Æðstu prestarnir og öldungarnir báru á hann sakir, en hann svaraði engu.

    27:13 Þá spurði Pílatus hann: ,,Heyrir þú ekki, hve mjög þeir vitna gegn þér?``

    27:14 En hann svaraði honum ekki, engu orði hans, og undraðist landshöfðinginn mjög.

    27:15 Á hátíðinni var landshöfðinginn vanur að gefa lýðnum lausan einn bandingja, þann er þeir vildu.

    27:16 Þá var þar alræmdur bandingi í haldi, Barabbas að nafni.

    27:17 Sem þeir nú voru saman komnir, sagði Pílatus við þá: ,,Hvorn viljið þér, að ég gefi yður lausan, Barabbas eða Jesú, sem kallast Kristur?``

    27:18 Hann vissi, að þeir höfðu fyrir öfundar sakir framselt hann.

    27:19 Meðan Pílatus sat á dómstólnum, sendi kona hans til hans með þessi orð: ,,Láttu þennan réttláta mann vera, þungir hafa draumar mínir verið í nótt hans vegna.``

    27:20 En æðstu prestarnir og öldungarnir fengu múginn til að biðja um Barabbas, en að Jesús yrði deyddur.

    27:21 Landshöfðinginn spurði: ,,Hvorn þeirra tveggja viljið þér, að ég gefi yður lausan?`` Þeir sögðu: ,,Barabbas.``

    27:22 Pílatus spyr: ,,Hvað á ég þá að gjöra við Jesú, sem kallast Kristur?`` Þeir segja allir: ,,Krossfestu hann.``

    27:23 Hann spurði: ,,Hvað illt hefur hann þá gjört?`` En þeir æptu því meir: ,,Krossfestu hann!``

    27:24 Nú sér Pílatus, að hann fær ekki að gjört, en ólætin aukast. Hann tók vatn, þvoði hendur sínar frammi fyrir fólkinu og mælti: ,,Sýkn er ég af blóði þessa manns! Svarið þér sjálfir fyrir!``

    27:25 Og allur lýðurinn sagði: ,,Komi blóð hans yfir oss og yfir börn vor!``

    27:26 Þá gaf hann þeim Barabbas lausan, en lét húðstrýkja Jesú og framseldi hann til krossfestingar.

    27:27 Hermenn landshöfðingjans fóru nú með hann inn í höllina og söfnuðu um hann allri hersveitinni.

    27:28 Þeir afklæddu hann og færðu hann í skarlatsrauða kápu,

    27:29 fléttuðu þyrnikórónu og settu á höfuð honum, en reyrsprota í hægri hönd hans. Síðan féllu þeir á kné fyrir honum og höfðu hann að háði og sögðu: ,,Heill þú, konungur Gyðinga!``

    27:30 Og þeir hræktu á hann, tóku reyrsprotann og slógu hann í höfuðið.

    27:31 Þegar þeir höfðu spottað hann, færðu þeir hann úr kápunni og í hans eigin klæði. Þá leiddu þeir hann út til að krossfesta hann.

    27:32 Á leiðinni hittu þeir mann frá Kýrene, er Símon hét. Hann neyddu þeir til að bera kross Jesú.

    27:33 Og er þeir komu til þess staðar, er heitir Golgata, það þýðir hauskúpustaður,

    27:34 gáfu þeir honum vín að drekka, galli blandað. Hann bragðaði það, en vildi ekki drekka.

    27:35 Þá krossfestu þeir hann. Og þeir köstuðu hlutum um klæði hans og skiptu með sér,

    27:36 sátu þar svo og gættu hans.

    27:37 Yfir höfði hans festu þeir sakargift hans svo skráða: ÞESSI ER JESÚS, KONUNGUR GYÐINGA.

    27:38 Þá voru krossfestir með honum tveir ræningjar, annar til hægri, hinn til vinstri.

    27:39 Þeir, sem fram hjá gengu, hæddu hann, skóku höfuð sín

    27:40 og sögðu: ,,Þú sem brýtur niður musterið og reisir það á þrem dögum. Bjarga nú sjálfum þér, ef þú ert sonur Guðs, og stíg niður af krossinum!``

    27:41 Eins gjörðu æðstu prestarnir gys að honum og fræðimennirnir og öldungarnir og sögðu:

    27:42 ,,Öðrum bjargaði hann, sjálfum sér getur hann ekki bjargað. Hann er konungur Ísraels, stígi hann nú niður af krossinum, þá skulum vér trúa á hann.

    27:43 Hann treystir Guði. Nú ætti Guð að frelsa hann, ef hann hefur mætur á honum. Eða sagði hann ekki: ,Ég er sonur Guðs`?``

    27:44 Einnig ræningjarnir, sem með honum voru krossfestir, smánuðu hann á sama hátt.

    27:45 En frá hádegi varð myrkur um allt land til nóns.

    27:46 Og um nón kallaði Jesús hárri röddu: ,,Elí, Elí, lama sabaktaní!`` Það þýðir: ,,Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?``

    27:47 Nokkrir þeirra, er þar stóðu, heyrðu þetta og sögðu: ,,Hann kallar á Elía!``

    27:48 Jafnskjótt hljóp einn þeirra til, tók njarðarvött og fyllti ediki, stakk á reyrstaf og gaf honum að drekka.

    27:49 Hinir sögðu: ,,Sjáum til, hvort Elía kemur að bjarga honum.``

    27:50 En Jesús hrópaði aftur hárri röddu og gaf upp andann.

    27:51 Þá rifnaði fortjald musterisins í tvennt, ofan frá og niður úr, jörðin skalf og björgin klofnuðu,

    27:52 grafir opnuðust og margir líkamir helgra látinna manna risu upp.

    27:53 Eftir upprisu Jesú gengu þeir úr gröfum sínum og komu í borgina helgu og birtust mörgum.

    27:54 Þegar hundraðshöfðinginn og þeir, sem með honum gættu Jesú, sáu landskjálftann og atburði þessa, hræddust þeir mjög og sögðu: ,,Sannarlega var þessi maður sonur Guðs.``

    27:55 Þar voru og margar konur, sem álengdar horfðu á, þær höfðu fylgt Jesú frá Galíleu og þjónað honum.

    27:56 Meðal þeirra var María Magdalena, María, móðir þeirra Jakobs og Jósefs, og móðir Sebedeussona.

    27:57 Um kvöldið kom auðugur maður frá Arímaþeu, Jósef að nafni, er sjálfur var orðinn lærisveinn Jesú.

    27:58 Hann gekk til Pílatusar og bað hann um líkama Jesú. Pílatus bauð þá að fá Jósef hann.

    27:59 Jósef tók líkið, sveipaði það hreinu línklæði

    27:60 og lagði í nýja gröf, sem hann átti og hafði látið höggva í klett, velti síðan stórum steini fyrir grafarmunnann og fór burt.

    27:61 María Magdalena var þar og María hin, og sátu þær gegnt gröfinni.

    27:62 Næsta dag, daginn eftir aðfangadag, gengu æðstu prestarnir og farísearnir saman fyrir Pílatus

    27:63 og sögðu: ,,Herra, vér minnumst þess, að svikari þessi sagði í lifanda lífi: ,Eftir þrjá daga rís ég upp.`

    27:64 Bjóð því, að grafarinnar sé vandlega gætt allt til þriðja dags, ella gætu lærisveinar hans komið og stolið honum og sagt fólkinu: ,Hann er risinn frá dauðum.` Þá verða síðari svikin verri hinum fyrri.``

    27:65 Pílatus sagði við þá: ,,Hér hafið þér varðmenn, farið og búið svo tryggilega um sem best þér kunnið.``

    27:66 Þeir fóru og gengu tryggilega frá gröfinni og innsigluðu steininn með aðstoð varðmannanna.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine