Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MATTHEW 26

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    26:1 Þegar Jesús hafði lokið öllum þessum orðum, sagði hann við lærisveina sína:

    26:2 ,,Þér vitið, að eftir tvo daga eru páskar. Þá verður Mannssonurinn framseldur til krossfestingar.``

    26:3 Æðstu prestarnir og öldungar lýðsins söfnuðust nú saman í höll æðsta prestsins, er Kaífas hét,

    26:4 og réðu með sér að handsama Jesú með svikum og taka hann af lífi.

    26:5 En þeir sögðu: ,,Ekki á hátíðinni, annars verður uppþot með lýðnum.``

    26:6 En Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa.

    26:7 Kom þá til hans kona og hafði alabastursbuðk með dýrum smyrslum og hellti yfir höfuð honum, þar sem hann sat að borði.

    26:8 Við þessa sjón urðu lærisveinarnir gramir og sögðu: ,,Til hvers er þessi sóun?

    26:9 Þetta hefði mátt selja dýru verði og gefa fátækum.``

    26:10 Jesús varð þess vís og sagði við þá: ,,Hvað eruð þér að angra konuna? Gott verk gjörði hún mér.

    26:11 Fátæka hafið þér jafnan hjá yður, en mig hafið þér ekki ávallt.

    26:12 Þegar hún hellti þessum smyrslum yfir líkama minn, var hún að búa mig til greftrunar.

    26:13 Sannlega segi ég yður: Hvar sem fagnaðarerindi þetta verður flutt, um heim allan, mun þess og getið verða, sem hún gjörði, til minningar um hana.``

    26:14 Þá fór einn þeirra tólf, Júdas Ískaríot að nafni, til æðstu prestanna

    26:15 og sagði: ,,Hvað viljið þér gefa mér fyrir að framselja yður Jesú?`` En þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga.

    26:16 Upp frá þessu leitaði hann færis að framselja hann.

    26:17 Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: ,,Hvar vilt þú, að vér búum þér páskamáltíðina?``

    26:18 Hann mælti: ,,Farið til ákveðins manns í borginni, og segið við hann: ,Meistarinn segir: Minn tími er í nánd, hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum.```

    26:19 Lærisveinarnir gjörðu sem Jesús bauð þeim og bjuggu til páskamáltíðar.

    26:20 Um kvöldið sat hann til borðs með þeim tólf.

    26:21 Og er þeir mötuðust, sagði hann: ,,Sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig.``

    26:22 Þeir urðu mjög hryggir og sögðu við hann, einn af öðrum: ,,Ekki er það ég, herra?``

    26:23 Hann svaraði þeim: ,,Sá sem dýfði hendi í fatið með mér, mun svíkja mig.

    26:24 Mannssonurinn fer að sönnu héðan, svo sem um hann er ritað, en vei þeim manni, sem því veldur, að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.``

    26:25 En Júdas, sem sveik hann, sagði: ,,Rabbí, ekki er það ég?`` Jesús svaraði: ,,Þú sagðir það.``

    26:26 Þá er þeir mötuðust, tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf lærisveinunum og sagði: ,,Takið og etið, þetta er líkami minn.``

    26:27 Og hann tók kaleik, gjörði þakkir, gaf þeim og sagði: ,,Drekkið allir hér af.

    26:28 Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga til fyrirgefningar synda.

    26:29 Ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af þessum vínviðar ávexti til þess dags, er ég drekk hann nýjan með yður í ríki föður míns.``

    26:30 Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir til Olíufjallsins.

    26:31 Þá segir Jesús við þá: ,,Á þessari nóttu munuð þér allir hneykslast á mér, því að ritað er: ,Ég mun slá hirðinn, og sauðir hjarðarinnar munu tvístrast.`

    26:32 En eftir að ég er upp risinn, mun ég fara á undan yður til Galíleu.``

    26:33 Þá segir Pétur: ,,Þótt allir hneykslist á þér, skal ég aldrei hneykslast.``

    26:34 Jesús sagði við hann: ,,Sannlega segi ég þér: Á þessari nóttu, áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér.``

    26:35 Pétur svarar: ,,Þótt ég ætti að deyja með þér, þá mun ég aldrei afneita þér.`` Eins töluðu allir lærisveinarnir.

    26:36 Þá kemur Jesús með þeim til staðar, er heitir Getsemane, og hann segir við lærisveinana: ,,Setjist hér, meðan ég fer og biðst fyrir þarna.``

    26:37 Hann tók með sér þá Pétur og báða sonu Sebedeusar. Og nú setti að honum hryggð og angist.

    26:38 Hann segir við þá: ,,Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið með mér.``

    26:39 Þá gekk hann lítið eitt áfram, féll fram á ásjónu sína, baðst fyrir og sagði: ,,Faðir minn, ef verða má, þá fari þessi kaleikur fram hjá mér. Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt.``

    26:40 Hann kemur aftur til lærisveinanna og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: ,,Þér gátuð þá ekki vakað með mér eina stund?

    26:41 Vakið og biðjið, að þér fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt.``

    26:42 Aftur vék hann brott annað sinn og bað: ,,Faðir minn, ef eigi verður hjá því komist, að ég drekki þennan kaleik, þá verði þinn vilji.``

    26:43 Þegar hann kom aftur, fann hann þá enn sofandi, því drungi var á augum þeirra.

    26:44 Þá fór hann enn frá þeim og baðst fyrir þriðja sinn með sömu orðum og fyrr.

    26:45 Og hann kom til lærisveinanna og sagði við þá: ,,Sofið þér enn og hvílist? Sjá, stundin er komin og Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna.

    26:46 Standið upp, förum! Í nánd er sá, er mig svíkur.``

    26:47 Meðan hann var enn að tala, kom Júdas, einn þeirra tólf, og með honum mikill flokkur frá æðstu prestunum og öldungum lýðsins, og höfðu þeir sverð og barefli.

    26:48 Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: ,,Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum.``

    26:49 Hann gekk beint að Jesú og sagði: ,,Heill, rabbí!`` og kyssti hann.

    26:50 Jesús sagði við hann: ,,Vinur, hví ertu hér?`` Þá komu hinir, lögðu hendur á Jesú og tóku hann.

    26:51 Einn þeirra, sem með Jesú voru, greip til sverðs og brá því, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað.

    26:52 Jesús sagði við hann: ,,Slíðra sverð þitt! Allir, sem sverði bregða, munu fyrir sverði falla.

    26:53 Hyggur þú, að ég geti ekki beðið föður minn að senda mér nú meira en tólf sveitir engla?

    26:54 Hvernig ættu þá ritningarnar að rætast, sem segja, að þetta eigi svo að verða?``

    26:55 Á þeirri stundu sagði Jesús við flokkinn: ,,Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? Daglega sat ég í helgidóminum og kenndi, og þér tókuð mig ekki höndum.

    26:56 En allt verður þetta til þess, að ritningar spámannanna rætist.`` Þá yfirgáfu hann lærisveinarnir allir og flýðu.

    26:57 Þeir sem tóku Jesú höndum, færðu hann til Kaífasar, æðsta prests, en þar voru saman komnir fræðimennirnir og öldungarnir.

    26:58 Pétur fylgdi honum álengdar, allt að garði æðsta prestsins. Þar gekk hann inn og settist hjá þjónunum til að sjá, hver yrði endir á.

    26:59 Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu ljúgvitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann,

    26:60 en fundu ekkert, þótt margir ljúgvottar kæmu. Loks komu tveir

    26:61 og sögðu: ,,Þessi maður sagði: ,Ég get brotið niður musteri Guðs og reist það aftur á þrem dögum.```

    26:62 Þá stóð æðsti presturinn upp og sagði: ,,Svarar þú því engu, sem þessir vitna gegn þér?``

    26:63 En Jesús þagði. Þá sagði æðsti presturinn við hann: ,,Ég særi þig við lifandi Guð, segðu oss: Ertu Kristur, sonur Guðs?``

    26:64 Jesús svarar honum: ,,Þú sagðir það. En ég segi yður: Upp frá þessu munuð þér sjá Mannssoninn sitja til hægri handar máttarins og koma á skýjum himins.``

    26:65 Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: ,,Hann guðlastar, hvað þurfum vér nú framar votta við? Þér heyrðuð guðlastið.

    26:66 Hvað líst yður?`` Þeir svöruðu: ,,Hann er dauðasekur.``

    26:67 Og þeir hræktu í andlit honum og slógu hann með hnefunum, en aðrir börðu hann með stöfum

    26:68 og sögðu: ,,Spáðu nú, Kristur, hver var að slá þig?``

    26:69 En Pétur sat úti í garðinum. Þar kom að honum þerna ein og sagði: ,,Þú varst líka með Jesú frá Galíleu.``

    26:70 Því neitaði hann svo allir heyrðu og sagði: ,,Ekki veit ég, hvað þú ert að fara.``

    26:71 Hann gekk út í fordyrið. Þar sá hann önnur þerna og sagði við þá, sem þar voru: ,,Þessi var með Jesú frá Nasaret.``

    26:72 En hann neitaði sem áður og sór þess eið, að hann þekkti ekki þann mann.

    26:73 Litlu síðar komu þeir, er þar stóðu, og sögðu við Pétur: ,,Víst ertu líka einn af þeim, enda segir málfæri þitt til þín.``

    26:74 En hann sór og sárt við lagði, að hann þekkti ekki manninn. Um leið gól hani.

    26:75 Og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt: ,,Áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér.`` Og hann gekk út og grét beisklega.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine