Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MATTHEW 8

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    8:1 Nú gekk Jesús niður af fjallinu, og fylgdi honum mikill mannfjöldi.

    8:2 Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði: ,,Herra, ef þú vilt, getur þú hreinsað mig.``

    8:3 Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: ,,Ég vil, verð þú hreinn!`` Jafnskjótt varð hann hreinn af líkþránni.

    8:4 Jesús sagði við hann: ,,Gæt þess að segja þetta engum, en far þú, sýn þig prestinum, og færðu þá fórn, sem Móse bauð, þeim til vitnisburðar.``

    8:5 Þegar hann kom til Kapernaum, gekk til hans hundraðshöfðingi og bað hann:

    8:6 ,,Herra, sveinn minn liggur heima lami, mjög þungt haldinn.``

    8:7 Jesús sagði: ,,Ég kem og lækna hann.``

    8:8 Þá sagði hundraðshöfðinginn: ,,Herra, ég er ekki verður þess, að þú gangir inn undir þak mitt. Mæl þú aðeins eitt orð, og mun sveinn minn heill verða.

    8:9 Því að sjálfur er ég maður, sem verð að lúta valdi og ræð yfir hermönnum, og ég segi við einn: ,Far þú,` og hann fer, og við annan: ,Kom þú,` og hann kemur, og við þjón minn: ,Gjör þetta,` og hann gjörir það.``

    8:10 Þegar Jesús heyrði þetta, undraðist hann og mælti við þá, sem fylgdu honum: ,,Sannlega segi ég yður, þvílíka trú hef ég ekki fundið hjá neinum í Ísrael.

    8:11 En ég segi yður: Margir munu koma frá austri og vestri og sitja til borðs með Abraham, Ísak og Jakob í himnaríki,

    8:12 en synir ríkisins munu út reknir í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.``

    8:13 Þá sagði Jesús við hundraðshöfðingjann: ,,Far þú, verði þér sem þú trúir.`` Og sveinninn varð heill á þeirri stundu.

    8:14 Jesús kom í hús Péturs og sá, að tengdamóðir hans lá með sótthita.

    8:15 Hann snart hönd hennar, og sótthitinn fór úr henni. Hún reis á fætur og gekk honum fyrir beina.

    8:16 Þegar kvöld var komið, færðu menn til hans marga, er haldnir voru illum öndum. Illu andana rak hann út með orði einu, og alla þá, er sjúkir voru, læknaði hann.

    8:17 Það átti að rætast, sem sagt er fyrir munn Jesaja spámanns: ,,Hann tók á sig mein vor og bar sjúkdóma vora.``

    8:18 En þegar Jesús sá mikinn mannfjölda kringum sig, bauð hann að fara yfir um vatnið.

    8:19 Þá kom fræðimaður einn til hans og sagði: ,,Meistari, ég vil fylgja þér, hvert sem þú ferð.``

    8:20 Jesús sagði við hann: ,,Refar eiga greni og fuglar himins hreiður, en Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að að halla.``

    8:21 Annar, úr hópi lærisveinanna, sagði við hann: ,,Herra, leyf mér fyrst að fara og jarða föður minn.``

    8:22 Jesús svarar honum: ,,Fylg þú mér, en lát hina dauðu jarða sína dauðu.``

    8:23 Nú fór hann í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum.

    8:24 Þá gjörði svo mikið veður á vatninu, að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf.

    8:25 Þeir fara til, vekja hann og segja: ,,Herra, bjarga þú, vér förumst.``

    8:26 Hann sagði við þá: ,,Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir?`` Síðan reis hann upp og hastaði á vindinn og vatnið, og varð stillilogn.

    8:27 Mennirnir undruðust og sögðu: ,,Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.``

    8:28 Þegar hann kom yfir um, í byggð Gadarena, komu á móti honum frá gröfunum tveir menn haldnir illum öndum, svo skæðir, að enginn mátti þann veg fara.

    8:29 Þeir æpa: ,,Hvað vilt þú okkur, sonur Guðs? Komstu hingað að kvelja okkur fyrir tímann?``

    8:30 En langt frá þeim var mikil svínahjörð á beit.

    8:31 Illu andarnir báðu hann og sögðu: ,,Ef þú rekur okkur út, sendu okkur þá í svínahjörðina.``

    8:32 Hann sagði: ,,Farið!`` Út fóru þeir og í svínin, og öll hjörðin ruddist fram af hamrinum í vatnið og týndist þar.

    8:33 En hirðarnir flýðu, komu til borgarinnar og sögðu öll tíðindin, líka frá mönnunum, sem haldnir voru illum öndum.

    8:34 Og allir borgarmenn fóru út til móts við Jesú, og þegar þeir sáu hann, báðu þeir hann að fara burt úr héruðum þeirra.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine