Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MATTHEW 9

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    9:1 Þá sté Jesús í bát og hélt yfir um og kom til borgar sinnar.

    9:2 Þar færa menn honum lama mann, sem lá í rekkju. Þegar Jesús sá trú þeirra, sagði hann við lama manninn: ,,Vertu hughraustur, barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.``

    9:3 Nokkrir fræðimenn sögðu þá með sjálfum sér: ,,Hann guðlastar!``

    9:4 En Jesús þekkti hugsanir þeirra og sagði: ,,Hví hugsið þér illt í hjörtum yðar?

    9:5 Hvort er auðveldara að segja: ,Syndir þínar eru fyrirgefnar` eða: ,Statt upp og gakk`?

    9:6 En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald á jörðu að fyrirgefa syndir, þá segi ég þér`` _ og nú talar hann við lama manninn: ,,Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín!``

    9:7 Og hann stóð upp og fór heim til sín.

    9:8 En fólkið, sem horfði á þetta, varð ótta slegið og lofaði Guð, sem gefið hafði mönnum slíkt vald.

    9:9 Þá er hann gekk þaðan, sá hann mann sitja hjá tollbúðinni, Matteus að nafni, og hann segir við hann: ,,Fylg þú mér!`` Og hann stóð upp og fylgdi honum.

    9:10 Nú bar svo við, er Jesús sat að borði í húsi hans, að margir tollheimtumenn og bersyndugir komu og settust þar með honum og lærisveinum hans.

    9:11 Þegar farísear sáu það, sögðu þeir við lærisveina hans: ,,Hvers vegna etur meistari yðar með tollheimtumönnum og bersyndugum?``

    9:12 Jesús heyrði þetta og sagði: ,,Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru.

    9:13 Farið og nemið, hvað þetta merkir: ,Miskunnsemi vil ég, ekki fórnir.` Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara.``

    9:14 Þá koma til hans lærisveinar Jóhannesar og segja: ,,Hví föstum vér og farísear, en þínir lærisveinar fasta ekki?``

    9:15 Jesús svaraði þeim: ,,Hvort geta brúðkaupsgestir verið hryggir, meðan brúðguminn er hjá þeim? En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn. Þá munu þeir fasta.

    9:16 Enginn lætur bót af óþæfðum dúk á gamalt fat, því þá rífur bótin út frá sér og verður af verri rifa.

    9:17 Ekki láta menn heldur nýtt vín á gamla belgi, því þá springa belgirnir, og vínið fer niður, en belgirnir ónýtast. Menn láta nýtt vín á nýja belgi, og varðveitist þá hvort tveggja.``

    9:18 Meðan hann var að segja þetta við þá, kom forstöðumaður einn, laut honum og sagði: ,,Dóttir mín var að skilja við, kom og legg hönd þína yfir hana, þá mun hún lifna.``

    9:19 Jesús stóð upp og fór með honum og lærisveinar hans.

    9:20 Kona, sem hafði haft blóðlát í tólf ár, kom þá að baki honum og snart fald klæða hans.

    9:21 Hún hugsaði með sér: ,,Ef ég fæ aðeins snert klæði hans, mun ég heil verða.``

    9:22 Jesús sneri sér við, og er hann sá hana, sagði hann: ,,Vertu hughraust, dóttir, trú þín hefur bjargað þér.`` Og konan varð heil frá þeirri stundu.

    9:23 Þegar Jesús kom að húsi forstöðumannsins og sá pípuleikara og fólkið í uppnámi,

    9:24 sagði hann: ,,Farið burt! Stúlkan er ekki dáin, hún sefur.`` En þeir hlógu að honum.

    9:25 Þegar fólkið hafði verið látið fara, gekk hann inn og tók hönd hennar, og reis þá stúlkan upp.

    9:26 Og þessi tíðindi bárust um allt það hérað.

    9:27 Þá er Jesús hélt þaðan, fóru tveir blindir menn eftir honum og kölluðu: ,,Miskunna þú okkur, sonur Davíðs.``

    9:28 Þegar hann kom heim, gengu blindu mennirnir til hans. Jesús spyr þá: ,,Trúið þið, að ég geti gjört þetta?`` Þeir sögðu: ,,Já, herra.``

    9:29 Þá snart hann augu þeirra og mælti: ,,Verði ykkur að trú ykkar.``

    9:30 Og augu þeirra lukust upp. Jesús lagði ríkt á við þá og sagði: ,,Gætið þess, að enginn fái að vita þetta.``

    9:31 En þeir fóru og víðfrægðu hann í öllu því héraði.

    9:32 Þegar þeir voru að fara, var komið til hans með mállausan mann, haldinn illum anda.

    9:33 Og er illi andinn var út rekinn, tók málleysinginn að mæla. Mannfjöldinn undraðist og sagði: ,,Aldrei hefur þvílíkt sést í Ísrael.``

    9:34 En farísearnir sögðu: ,,Með fulltingi höfðingja illra anda rekur hann út illu andana.``

    9:35 Jesús fór nú um allar borgir og þorp og kenndi í samkundum þeirra. Hann flutti fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi.

    9:36 En er hann sá mannfjöldann, kenndi hann í brjósti um þá, því þeir voru hrjáðir og umkomulausir eins og sauðir, er engan hirði hafa.

    9:37 Þá sagði hann við lærisveina sína: ,,Uppskeran er mikil, en verkamenn fáir.

    9:38 Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine