Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - NUMBERS 12

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    12:1 Mirjam og Aron mæltu í gegn Móse vegna blálensku konunnar, er hann hafði gengið að eiga, því að hann hafði gengið að eiga blálenska konu.

    12:2 Og þau sögðu: ,,Hefir Drottinn aðeins talað við Móse? Hefir hann ekki talað við okkur líka?`` Og Drottinn heyrði það.

    12:3 En maðurinn Móse var einkar hógvær, framar öllum mönnum á jörðu.

    12:4 Þá talaði Drottinn allt í einu til Móse, Arons og Mirjam: ,,Farið þið þrjú til samfundatjaldsins!`` Og þau gengu þangað þrjú.

    12:5 Þá sté Drottinn niður í skýstólpanum og nam staðar í tjalddyrunum og kallaði á Aron og Mirjam, og þau gengu bæði fram.

    12:6 Og hann sagði: ,,Heyrið orð mín! Þegar spámaður er meðal yðar, þá birtist ég honum í sýn, eða tala við hann í draumi.

    12:7 Ekki er því þannig farið um þjón minn Móse. Honum er trúað fyrir öllu húsi mínu.

    12:8 Ég tala við hann munni til munns, berlega og eigi í ráðgátum, og hann sér mynd Drottins. Og hví skirrðust þið þá eigi við að mæla í gegn þjóni mínum, í gegn Móse?``

    12:9 Reiði Drottins upptendraðist gegn þeim, og hann fór burt.

    12:10 Og skýið vék burt frá tjaldinu, og sjá, Mirjam var orðin líkþrá, hvít sem snjór. Aron sneri sér að Mirjam, og sjá, hún var orðin líkþrá.

    12:11 Þá sagði Aron við Móse: ,,Æ, herra minn! Lát okkur eigi gjalda þess, að við breyttum heimskulega og syndguðum.

    12:12 Æ, lát hana eigi vera sem andvana burð, sem helmingurinn af holdinu er rotnaður á, þá er hann kemur af móðurlífi.``

    12:13 Móse hrópaði til Drottins: ,,Æ, Guð! Gjör hana aftur heila!``

    12:14 Þá sagði Drottinn við Móse: ,,Ef faðir hennar hefði hrækt í andlit henni, mundi hún þá eigi hafa orðið að bera kinnroða í sjö daga? Skal hún í sjö daga vera inni byrgð utan herbúða, en eftir það má taka hana inn aftur.``

    12:15 Og Mirjam var byrgð inni sjö daga fyrir utan herbúðirnar, og lýðurinn lagði ekki upp fyrr en Mirjam var aftur inn tekin.

    12:16 Eftir þetta lagði lýðurinn upp frá Haserót og setti herbúðir sínar í Paran-eyðimörk.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine