Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 1

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    1:1 Orðskviðir Salómons Davíðssonar, Ísraels konungs,

    1:2 til þess að menn kynnist visku og aga, læri að skilja skynsamleg orð,

    1:3 til þess að menn fái viturlegan aga, réttlæti, réttvísi og ráðvendni,

    1:4 til þess að þeir veiti hinum óreyndu hyggindi, unglingum þekking og aðgætni, _

    1:5 hinn vitri hlýðir á og eykur lærdóm sinn, og hinn hyggni nemur hollar lífsreglur _

    1:6 til þess að menn skilji orðskviði og líkingamál, orð spekinganna og gátur þeirra.

    1:7 Ótti Drottins er upphaf þekkingar, visku og aga fyrirlíta afglapar einir.

    1:8 Hlýð þú, son minn, á áminning föður þíns og hafna eigi viðvörun móður þinnar,

    1:9 því að þær eru yndislegur sveigur á höfði þér og men um háls þinn.

    1:10 Son minn, þegar skálkar ginna þig, þá gegn þeim eigi.

    1:11 Þegar þeir segja: ,,Kom með oss! Leggjumst í launsátur til manndrápa, sitjum án saka um saklausan mann,

    1:12 gleypum þá lifandi eins og Hel _ með húð og hári, eins og þá sem farnir eru til dánarheima.

    1:13 Alls konar dýra muni munum vér eignast, fylla hús vor rændum fjármunum.

    1:14 Þú skalt taka jafnan hlut með oss, einn sjóð skulum vér allir hafa`` _

    1:15 son minn, þá haf ekki samleið við þá, halt fæti þínum frá stigum þeirra.

    1:16 Því að fætur þeirra eru skjótir til ills og fljótir til að úthella blóði.

    1:17 Því að til einskis þenja menn út netið í augsýn allra fleygra fugla,

    1:18 og slíkir menn sitja um sitt eigið líf, liggja í launsátri fyrir sjálfum sér.

    1:19 Þannig fer öllum þeim, sem fíknir eru í rangfenginn gróða: fíknin verður þeim að fjörlesti.

    1:20 Spekin kallar hátt á strætunum, lætur rödd sína gjalla á torgunum.

    1:21 Hún hrópar á glaummiklum gatnamótum, við borgarhliðin heldur hún tölur sínar:

    1:22 Hversu lengi ætlið þér, fávísir, að elska fávísi og hinir háðgjörnu að hafa yndi af háði og heimskingjarnir að hata þekkingu?

    1:23 Snúist til umvöndunar minnar, sjá, ég læt anda minn streyma yfir yður, kunngjöri yður orð mín.

    1:24 En af því að þér færðust undan, þá er ég kallaði, og enginn gaf því gaum, þótt ég rétti út höndina,

    1:25 heldur létuð öll mín ráð sem vind um eyrun þjóta og skeyttuð eigi umvöndun minni,

    1:26 þá mun ég hlæja í ógæfu yðar, draga dár að, þegar skelfingin dynur yfir yður,

    1:27 þegar skelfingin dynur yfir yður eins og þrumuveður og ógæfa yðar nálgast eins og fellibylur, þegar neyð og angist dynja yfir yður.

    1:28 Þá munu þeir kalla á mig, en ég mun ekki svara, þeir munu leita mín, en ekki finna mig.

    1:29 Vegna þess að þeir hötuðu þekking og aðhylltust ekki ótta Drottins,

    1:30 skeyttu ekki ráðum mínum og smáðu alla umvöndun mína,

    1:31 þá skulu þeir fá að neyta ávaxtar breytni sinnar og mettast af sínum eigin vélræðum.

    1:32 Því að fráhvarf fávísra drepur þá, og uggleysi heimskingjanna tortímir þeim.

    1:33 En sá sem á mig hlýðir, mun búa óhultur, mun vera öruggur og engri óhamingju kvíða.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine