Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 2

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    2:1 Son minn, ef þú veitir orðum mínum viðtöku og geymir boðorð mín hjá þér,

    2:2 svo að þú ljáir spekinni athygli þína, hneigir hjarta þitt að hyggindum,

    2:3 já, ef þú kallar á skynsemina og hrópar á hyggindin,

    2:4 ef þú leitar að þeim sem að silfri og grefst eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum,

    2:5 þá munt þú skilja, hvað ótti Drottins er, og öðlast þekking á Guði.

    2:6 Því að Drottinn veitir speki, af munni hans kemur þekking og hyggindi.

    2:7 Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna, er skjöldur þeirra, sem breyta grandvarlega,

    2:8 með því að hann vakir yfir stigum réttarins og varðveitir veg sinna guðhræddu.

    2:9 Þá munt þú og skilja, hvað réttlæti er og réttur og ráðvendni, _ í stuttu máli, sérhverja braut hins góða.

    2:10 Því að speki mun koma í hjarta þitt, og þekking verða sálu þinni yndisleg.

    2:11 Aðgætni mun vernda þig, og hyggindin varðveita þig,

    2:12 til þess að frelsa þig frá vegi hins illa, frá þeim mönnum, sem fara með fals,

    2:13 sem yfirgefa stigu einlægninnar og ganga á vegum myrkursins

    2:14 sem hafa gleði af því að gjöra illt, fagna yfir illsku hrekkjum,

    2:15 sem gjöra vegu sína hlykkjótta og komnir eru út á glapstigu í breytni sinni,

    2:16 til þess að frelsa þig frá léttúðarkonu, frá blíðmálugri konu sem annar á,

    2:17 sem yfirgefið hefir unnusta æsku sinnar og gleymt sáttmála Guðs síns,

    2:18 því að hús hennar hnígur í dauðann, og brautir hennar liggja niður til framliðinna,

    2:19 þeir sem inn til hennar fara, snúa engir aftur, og aldrei komast þeir á lífsins stigu, _

    2:20 til þess að þú gangir á vegi góðra manna og haldir þig á stigum réttlátra.

    2:21 Því að hinir hreinskilnu munu byggja landið, og hinir grandvöru verða eftir í því.

    2:22 En hinir óguðlegu munu upprættir verða úr landinu, og hinum svikulu verða útrýmt þaðan.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine