Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 3

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    3:1 Son minn, gleym eigi kenning minni, og hjarta þitt varðveiti boðorð mín,

    3:2 því að langa lífdaga og farsæl ár og velgengni munu þau veita þér í ríkum mæli.

    3:3 Kærleiki og trúfesti munu aldrei yfirgefa þig. Bind þau um háls þér, rita þau á spjald hjarta þíns,

    3:4 þá munt þú ávinna þér hylli og fögur hyggindi, bæði í augum Guðs og manna.

    3:5 Treystu Drottni af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.

    3:6 Mundu til hans á öllum þínum vegum, þá mun hann gjöra stigu þína slétta.

    3:7 Þú skalt ekki þykjast vitur, óttast Drottin og forðast illt,

    3:8 það mun verða heilnæmt fyrir líkama þinn og hressandi fyrir bein þín.

    3:9 Tigna Drottin með eigum þínum og með frumgróða allrar uppskeru þinnar,

    3:10 þá munu hlöður þínar verða nægtafullar og vínberjalögurinn flóa út af vínlagarþróm þínum.

    3:11 Son minn, lítilsvirð eigi ögun Drottins og lát þér eigi gremjast umvöndun hans,

    3:12 því að Drottinn agar þann, sem hann elskar, og lætur þann son kenna til, sem hann hefir mætur á.

    3:13 Sæll er sá maður, sem öðlast hefir speki, sá maður, sem hyggindi hlotnast.

    3:14 Því að betra er að afla sér hennar en að afla silfurs, og arðurinn af henni ágætari en gull.

    3:15 Hún er dýrmætari en perlur, og allir dýrgripir þínir jafnast ekki á við hana.

    3:16 Langir lífdagar eru í hægri hendi hennar, auður og mannvirðingar í vinstri hendi hennar.

    3:17 Vegir hennar eru yndislegir vegir og allar götur hennar velgengni.

    3:18 Hún er lífstré þeim, sem grípa hana, og sæll er hver sá, er heldur fast í hana.

    3:19 Drottinn grundvallaði jörðina með visku, festi himininn af hyggjuviti.

    3:20 Fyrir þekking hans mynduðust hafdjúpin og drýpur döggin úr skýjunum.

    3:21 Son minn, varðveit þú visku og gætni, lát þær eigi víkja frá augum þínum,

    3:22 þá munu þær verða líf sálu þinni og prýði fyrir háls þinn.

    3:23 Þá muntu ganga óhultur veg þinn og eigi drepa við fæti.

    3:24 Þegar þú leggst til hvíldar, þarft þú ekki að hræðast, og hvílist þú, mun svefninn verða vær.

    3:25 Þú þarft ekki að óttast skyndilega hræðslu, né eyðilegging hinna óguðlegu, þegar hún dynur yfir.

    3:26 Því að Drottinn mun vera athvarf þitt og varðveita fót þinn, að hann verði eigi fanginn.

    3:27 Synja eigi góðs þeim, er þarfnast þess, ef það er á þínu valdi að gjöra það.

    3:28 Seg þú ekki við náunga þinn: ,,Far og kom aftur! á morgun skal ég gefa þér`` _ ef þú þó átt það til.

    3:29 Brugga eigi illt gegn náunga þínum, þegar hann býr öruggur hjá þér.

    3:30 Deil ekki við neinn að ástæðulausu, ef hann hefir ekki gjört þér neitt mein.

    3:31 Öfunda ekki ofbeldismanninn og haf engar mætur á neinum gjörðum hans.

    3:32 Því að andstyggð er sá Drottni, er afvega fer, en ráðvandir menn alúðarvinir hans.

    3:33 Bölvun Drottins er yfir húsi hins óguðlega, en bústað réttlátra blessar hann.

    3:34 Spottsama spottar hann, en lítillátum veitir hann náð.

    3:35 Vitrir menn munu heiður hljóta, en heimskingjar bera smán úr býtum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine