Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 4

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    4:1 Heyrið, synir, áminning föður yðar og hlýðið til, svo að þér lærið hyggindi!

    4:2 Því að góðan lærdóm gef ég yður, hafnið eigi kenning minni!

    4:3 Þegar ég var sonur í föðurhúsum, viðkvæmt einkabarn heima hjá móður minni,

    4:4 þá kenndi faðir minn mér og sagði við mig: ,,Hjarta þitt haldi fast orðum mínum, varðveit þú boðorð mín, og muntu lifa!

    4:5 Afla þér visku, afla þér hygginda! Gleym eigi og vík eigi frá orðum munns míns!

    4:6 Hafna henni eigi, þá mun hún varðveita þig, elska hana, þá mun hún vernda þig.

    4:7 Upphaf viskunnar er: afla þér visku, afla þér hygginda fyrir allar eigur þínar!

    4:8 Haf hana í hávegum, þá mun hún hefja þig, hún mun koma þér til vegs, ef þú umfaðmar hana.

    4:9 Hún mun setja yndislegan sveig á höfuð þér, sæma þig prýðilegri kórónu.``

    4:10 Heyr þú, son minn, og veit viðtöku orðum mínum, þá munu æviár þín mörg verða.

    4:11 Ég vísa þér veg spekinnar, leiði þig á brautir ráðvendninnar.

    4:12 Gangir þú þær, skal leið þín ekki verða þröng, og hlaupir þú, skalt þú ekki hrasa.

    4:13 Haltu fast í agann, slepptu honum ekki, varðveittu hann, því að hann er líf þitt.

    4:14 Kom þú eigi á götu óguðlegra og gakk eigi á vegi vondra manna.

    4:15 Sneið hjá honum, farðu hann ekki, snú þú frá honum og farðu fram hjá.

    4:16 Því að þeir geta ekki sofið, nema þeir hafi gjört illt, og þeim kemur ekki dúr á auga, nema þeir hafi fellt einhvern.

    4:17 Því að þeir eta glæpabrauð og drekka ofbeldisvín.

    4:18 Gata réttlátra er eins og bjartur árdagsljómi, sem verður æ skærari fram á hádegi.

    4:19 Vegur óguðlegra er eins og niðamyrkur, þeir vita ekki, um hvað þeir hrasa.

    4:20 Son minn, gef gaum að ræðu minni, hneig eyra þitt að orðum mínum.

    4:21 Lát þau eigi víkja frá augum þínum, varðveit þau innst í hjarta þínu.

    4:22 Því að þau eru líf þeirra, er öðlast þau, og lækning fyrir allan líkama þeirra.

    4:23 Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru, því að þar eru uppsprettur lífsins.

    4:24 Haltu fláræði munnsins burt frá þér og lát fals varanna vera fjarri þér.

    4:25 Augu þín líti beint fram og augnalok þín horfi beint fram undan þér.

    4:26 Gjör braut fóta þinna slétta, og allir vegir þínir séu staðfastir.

    4:27 Vík hvorki til hægri né vinstri, haltu fæti þínum burt frá illu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine