Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 5

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    5:1 Son minn, gef gaum að speki minni, hneig eyra þitt að hyggindum mínum,

    5:2 til þess að þú megir varðveita mannvit og varir þínar geymi þekkingu.

    5:3 Því að hunangsseimur drýpur af vörum lauslátrar konu, og gómur hennar er hálli en olía.

    5:4 En að síðustu er hún beiskari en malurt, beitt eins og tvíeggjað sverð.

    5:5 Fætur hennar ganga niður til dauðans, spor hennar liggja til Heljar.

    5:6 Til þess að hún hitti ekki leið lífsins, eru brautir hennar á reiki, og hún veit ekki hvert hún fer.

    5:7 Heyrið mig því, synir, og víkið eigi frá orðum munns míns.

    5:8 Legg leið þína langt frá henni og kom þú ekki nálægt húsdyrum hennar,

    5:9 svo að þú gefir ekki öðrum æskublóma þinn og ár þín grimmum manni,

    5:10 svo að útlendir menn mettist ekki af eigum þínum og aflafé þitt lendi ekki í annarlegu húsi,

    5:11 og þú andvarpir að lokum, þá er líkami þinn og hold veslast upp,

    5:12 og segir: ,,Hversu hefi ég hatað aga og hjarta mitt fyrirlitið umvöndun!

    5:13 að ég skyldi ekki hlýða raustu kennara minna og hneigja eyra mitt til þeirra, er fræddu mig!

    5:14 Við sjálft lá, að ég hefði ratað í mestu ógæfu á miðju dómþingi safnaðarins.``

    5:15 Drekk þú vatn úr vatnsþró þinni og rennandi vatn úr brunni þínum.

    5:16 Eiga lindir þínar að flóa út á götuna, lækir þínir út á torgin?

    5:17 Þér einum skulu þær tilheyra og engum óviðkomandi með þér.

    5:18 Uppspretta þín sé blessuð, og gleð þig yfir festarmey æsku þinnar,

    5:19 elsku-hindinni, yndis-gemsunni. Brjóst hennar gjöri þig ætíð drukkinn, og ást hennar fjötri þig ævinlega.

    5:20 En hví skyldir þú, son minn, láta léttúðarkonu töfra þig, og faðma barm lauslátrar konu?

    5:21 Því að vegir sérhvers manns blasa við Drottni, og allar brautir hans gjörir hann sléttar.

    5:22 Misgjörðir hins óguðlega fanga hann, og hann verður veiddur í snörur synda sinna.

    5:23 Hann mun deyja vegna skorts á aga og kollsteypast vegna sinnar miklu heimsku.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine