Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 6

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    6:1 Son minn, hafir þú gengið í ábyrgð fyrir náunga þinn, hafir þú gengið til handsala fyrir annan mann,

    6:2 hafir þú ánetjað þig með orðum munns þíns, látið veiðast með orðum munns þíns,

    6:3 þá gjör þetta, son minn, til að losa þig _ því að þú ert kominn á vald náunga þíns _ far þú, varpa þér niður og legg að náunga þínum.

    6:4 Lát þér eigi koma dúr á auga, né blund á brá.

    6:5 Losa þig eins og skógargeit úr höndum hans, eins og fugl úr höndum fuglarans.

    6:6 Far þú til maursins, letingi! skoða háttu hans og verð hygginn.

    6:7 Þótt hann hafi engan höfðingja, engan yfirboðara eða valdsherra,

    6:8 þá aflar hann sér samt vista á sumrin og dregur saman fæðu sína um uppskerutímann.

    6:9 Hversu lengi ætlar þú, letingi, að hvílast? hvenær ætlar þú að rísa af svefni?

    6:10 Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast!

    6:11 Þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi og skorturinn eins og vopnaður maður.

    6:12 Varmenni, illmenni er sá, sem gengur um með fláttskap í munni,

    6:13 sem deplar augunum, gefur merki með fótunum, bendir með fingrunum,

    6:14 elur fláræði í hjarta sínu, upphugsar ávallt illt, kveikir illdeilur.

    6:15 Fyrir því mun ógæfa skyndilega yfir hann koma, snögglega mun hann sundurmolast og engin lækning fást.

    6:16 Sex hluti hatar Drottinn og sjö eru sálu hans andstyggð:

    6:17 drembileg augu, lygin tunga og hendur sem úthella saklausu blóði,

    6:18 hjarta sem bruggar glæpsamleg ráð, fætur sem fráir eru til illverka,

    6:19 ljúgvottur sem lygar mælir, og sá er kveikir illdeilur meðal bræðra.

    6:20 Varðveit þú, son minn, boðorð föður þíns og hafna eigi viðvörun móður þinnar.

    6:21 Fest þau á hjarta þitt stöðuglega, bind þau um háls þinn.

    6:22 Þegar þú ert á gangi, þá leiði þau þig, þegar þú hvílist, vaki þau yfir þér, og þegar þú vaknar, þá ræði þau við þig.

    6:23 Því að boðorð er lampi og viðvörun ljós og agandi áminningar leið til lífsins,

    6:24 með því að þær varðveita þig fyrir vondri konu, fyrir hálli tungu hinnar lauslátu.

    6:25 Girnst eigi fríðleik hennar í hjarta þínu og lát hana eigi töfra þig með augnahárum sínum.

    6:26 Því að skækja fæst fyrir einn brauðhleif, og hórkona sækist eftir dýru lífi.

    6:27 Getur nokkur borið svo eld í barmi sínum, að föt hans sviðni ekki?

    6:28 Eða getur nokkur gengið á glóðum án þess að brenna sig á fótunum?

    6:29 Svo fer þeim, sem hefir mök við konu náunga síns, enginn sá kemst klakklaust af, sem hana snertir.

    6:30 Fyrirlíta menn eigi þjófinn, þó að hann steli til þess að seðja hungur sitt?

    6:31 Og náist hann, verður hann að borga sjöfalt, verður að láta allar eigur húss síns.

    6:32 En sá sem drýgir hór með giftri konu, er vitstola, sá einn gjörir slíkt, er tortíma vill sjálfum sér.

    6:33 Högg og smán mun hann hljóta, og skömm hans mun aldrei afmáð verða.

    6:34 Því að afbrýði er karlmanns-reiði, og hann hlífir ekki á hefndarinnar degi.

    6:35 Hann lítur ekki við neinum bótum og friðast eigi, þótt þú ryðjir í hann gjöfum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine